Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu, en ég vil lýsa andstöðu minni við þessa till. til þál. um að veita heimild til að ganga til samninga um að kaupa Hótel Borg. Reyndar fannst mér að hv. 1. flm. legði þetta upp sem till. til heimildar til að gera könnun á hugsanlegum kaupum, en samkvæmt tillögutextanum þá fer ekkert á milli mála að það er verið að fara fram á heimild til að gera samning um kaup á hótelinu. Þetta get ég ekki fallist á einfaldlega vegna þess að ég tel að í fyrsta lagi sé Hótel Borg ekki hentugt húsnæði fyrir starfsemi þingsins og í öðru lagi er enn og aftur verið að biðja þingið um að samþykkja óútfylltan víxil. Ég tel að mjög fljótt kæmi í ljós að þær breytingar sem þyrfti að gera á þessu húsnæði eru allverulegar og mundu hlaupa hér á tugum ef ekki hundruðum milljóna þegar upp væri staðið, enda hef ég heyrt að t.d. þak Hótel Borgar sé lekt og þurfi mikilla viðgerða við og aðrar stórviðgerðir þurfi að gera á þessu húsi.
Þar fyrir utan skilst mér eftir fróðum mönnum að enda þótt við keyptum Hótel Borg yrði starfsemi þingsins áfram í fimm húsum þannig að það er lítið unnið með því. Með því að gera slíkt tel ég að framkvæmdir við nýtt þinghús, og þá er ég ekki að mæla með þeim tillögum sem nú liggja fyrir um nýtt þinghús, en einhvern tímann þurfum við á nýju þinghúsi að halda, mundu tefjast allverulega við það að við færum út í það að kaupa Hótel Borg.
Ég fer ekkert dult með það að ég er sammála þeim mönnum sem tala fyrir því að Alþingi eigi að hafa höfuðsetur á Þingvöllum þó það væru ekki nema sögulegu tengslin sem gerðu það að verkum. En það er kannski annað mál að þessu sinni.
Hér er verið að fara fram á það við alla aðila þjóðfélagsins að útgjöld séu dregin saman og sparað á flestum sviðum, en ríkið virðist ekki ætla að fara fyrir sem fyrirmynd í því efni. Hér er verið að biðja um að afhenda heimild til nokkur hundruð milljón króna útgjalda, jafnframt því að það er beðið um heimildir til svipaðrar útgjaldaaukningar á t.a.m. Bessastöðum og annars staðar. Auðvitað á ríkið að draga saman eins og aðrir þegnar í þessu landi og fyrirtæki og stofnanir.
Ég tel að hér verði fyrst að liggja fyrir fullnaðarkönnun á því hvað kostar að breyta Hótel Borg í það horf sem viðunandi væri áður en við gefum heimild til að ganga til samninga. Hins vegar tel ég að ef Hótel Borg verður keypt og starfsemi þingsins fer þangað hverfi þar með einn af hornsteinum menningarlífsins í miðborg Reykjavíkur. Það væri skarð fyrir skildi ef svo færi. Nógu hart hefur nú verið gengið að miðbænum fram að þessu.
Ég vil senda þau skilaboð til Davíðs Oddssonar að hann ætti öllu heldur að hætta við að byggja veitingahús uppi í Öskjuhlíð og snúa sér að því að íhuga að kaupa Hótel Borg og reka þar áfram hótel.
Ég hef ekki mikið meira um þetta að segja, en ég vil þó geta þess, hæstv. forseti, að sökum einkennilegra aðstæðna hefur þingflokkur frjálslyndra
hægrimanna ekki haft tök á því að kynna sér þetta mál. Þó að það væri nú ekki nema þess vegna væri rétt að draga það aðeins.