Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Þessar umræður, sem hér hafa farið fram um till. til þál. um heimild til handa forsetum Alþingis að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg eins og hún er orðuð, hafa verið mjög gagnlegar að mínu mati. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt að hv. þm. fái tækifæri til að tjá sig um hugmyndir forsetanna sem þeir hafa unnið að að undanförnu til þess að reyna að finna lausn á þeim vandamálum starfsemi Alþingis sem eru húsnæðismálin nú eins og endranær.
    Ég ætla ekki að lengja þessar umræður með því að fara að rekja fortíðina í því máli, enda hefur það komið vel og skýrt fram hjá hv. þm. sem hér hafa talað. Það hefur komið fram hér að það eru skiptar skoðanir í þingflokki Sjálfstfl. í þessu máli og þess vegna finnst mér vera við hæfi að ein rödd úr okkar þingflokki sem er annarrar skoðunar en hefur heyrst hér á undan láti í sér heyra.
    Ég vil geta þess að það er stutt síðan þetta mál var lagt fyrir á fundi með þingflokksformönnum og varaforsetum svo að það er ekki langt síðan ég kynntist þessu máli eins og úttektarnefndin hefur lagt það fyrir, en mér finnst að það megi gjarnan koma fram að þessi úttektarnefnd, sem hv. 1. flm. þessarar tillögu gerði grein fyrir, telur þetta vera hagkvæma lausn fyrir Alþingi.
    En það sem ég vildi aðallega koma hér inn á er að lýsa skoðunum mínum á því, sem hefur ekki síst komið hér fram í máli manna, hvernig komið er fyrir miðbænum okkar. Ég get í raun og veru tekið undir allt sem um það hefur verið sagt.
    Hv. 2. þm. Reykv. sagði að það gengi ekki upp frá sjónarmiði öflugs og líflegs miðbæjar að leggja niður hótelrekstur í miðbænum. Ég get í raun og veru alveg tekið undir þetta. Hann talaði um að Alþingi ætti að láta Hótel Borg í friði og ég get líka alveg tekið undir það. Ég er í hópi þeirra sem vildu ekkert fremur en efla einmitt mannlífið hér í miðbænum og sá vilji minn nær raunar miklu lengra. Hann nær upp allan Laugaveginn. Það er svo komið að við Laugaveginn er hver verslunin af annarri að loka vegna þess að þar er einnig lífið að verða afskaplega dauflegt. Það er kannski meginmálið að í raun hefur ,,miðbærinn`` verið fluttur héðan úr miðbænum. Hann hefur flust inn í Kringluna þar sem er reyndar líka búið að koma borgarleikhúsinu fyrir og nú er gamla góða Iðnó til sölu eftir því sem nýlega hefur verið upplýst. Mér þykir þetta miður. Ég deili þessum skoðunum með miðbæjarsamtökunum og öðrum þeim sem vilja efla mannlífið hér og vilja jafnvel hafa hér blómlegan og líflegan hótelrekstur. En við megum ekki gleyma því að Alþingi er ekki að leggja niður hótelrekstur á Hótel Borg. Það kom einnig fram í máli að ég held hv. 2. þm. Reykv. að hér er nægilegt framboð af lausu skrifstofuhúsnæði allt í kringum Austurvöll, að ég held að hann hafi sagt. Og hvers vegna ætli það sé? Hvers vegna ætli sé laust húsnæði hér einmitt í þessum kjarna borgarinnar sem við mörg viljum gjarnan að haldi lífi og sé áfram miðborg höfuðborgarinnar

okkar?
    Þetta vildi ég aðeins minnast á og það er einmitt af þessari ástæðu að ég get fallist á að úr því að svo er komið, eftir því sem næst verður komist, að það er enginn kaupandi að Hótel Borg fyrir hótelrekstur, þá get ég ekki séð hvers vegna það væri ekki eðlilegt og hagkvæmt fyrir Alþingi Íslendinga að gera þetta virðulega hótel að húsnæði fyrir Alþingi á meðan ekki er grundvöllur fyrir hótelrekstri þar. Eins og hér hefur komið fram er alls ekki gert ráð fyrir öðru en því að í náinni framtíð þurfi að hefjast handa um nýbyggingu Alþingis, en ég var einn af þáverandi forsetum og átti aðild að því að vinna í því máli ásamt þáv. forseta Sþ., hv. 4. þm. Vestf., sem gerði góða grein fyrir þeim málum í sinni ræðu.
    Mér þótti nauðsynlegt, hæstv. forseti, að gera grein fyrir minni afstöðu hvað þetta varðar.
    Það var líka minnst á ráðhúsið, að vegna byggingar ráðhússins væri ekki lengur grundvöllur fyrir byggingu undir starfsemi Alþingis. Ég er alls ekki sammála þessu. Ráðhúsbyggingin breytir ekki mínum skoðunum á því að það þurfi að byggja yfir starfsemi Alþingis í framtíðinni. Ég tel að það færi vel á sambýli ráðhúss höfuðborgarinnar og Alþingis þegar þar að kemur. En ég geri mér grein fyrir því að þetta verður að bíða um sinn og þess vegna er ég sammála því að það verði leitað þessara leiða hver sem niðurstaðan af því verður. Hún liggur væntanlega fyrir þegar fjvn., sem fær þetta mál til meðferðar, hefur skoðað það nánar.
    Af því að það var minnst á það af hv. 5. þm. Vesturl. að höfuðsetur Alþingis ætti að vera á Þingvöllum get ég ekki látið hjá líða að taka undir það því að ég held að við allir sem þá vorum forsetar Alþingis og ég nefndi áðan ásamt fyrrv. þm. Ingvari Gíslasyni höfum öll verið sammála um það. Við meira að segja fórum til Þingvalla og vorum þar að ræða málin og skoða og ég held að við höfum öll verið sammála um að það færi vel á því að einhvern tíma langt inn í framtíðinni mundi sá draumur rætast. En ég tel að við höfum verið raunsæ að vera ekki með hugmyndir um að slíkt gerðist í dag. Mér datt í hug áðan þegar hv. 5. þm. Vesturl. nefndi þetta að mikið hefði ég verið glöð í vetur ef
þingið sæti á Þingvöllum því að þá hefði verið auðvelt fyrir mig að komast á milli því að þá hefði að sjálfsögðu alltaf verið hreinsað oft á dag þangað austur því að þar eru veður oft vond og válynd þegar snjóar og stormar geisa.
    Ég vil, hæstv. forseti, ekki lengja þessa umræðu, en mér fannst nauðsynlegt að láta það koma skýrt fram að mín skoðun á þessu máli eða stuðningur við það byggist á því sem ég tel vera staðreyndir og sem ég tel vera reyndar dapurlegar staðreyndir og það er að því miður er að dofna yfir mannlífinu í miðbænum og ef Alþingis nyti ekki við hér veit ég hreint ekki hvernig það væri.