Karl Steinar Guðnason:
    Frú forseti. Það er ætíð svo að þegar á að byggja hús eða breyta einhverju rísa menn upp til andmæla. Það er mjög algengt á Íslandi. Og þá fyrst færist líf í málið. Andóf verður mikið. Maður finnur dæmi um þetta um allar jarðir. Menn fyllast eldmóði og fítonskrafti gegn breytingum, gegn því nýja, gegn því að horfa fram á veg.
    Sú tillaga sem hér liggur fyrir fjallar um að kaupa Hótel Borg. Það hús var á sínum tíma glæsilegur vitnisburður um byggingarlist hér á landi og er það reyndar enn. Þar var líf mikið og fjör og eiga margir rómantískar minningar frá þeim stað. En það vill svo til að tíminn hefur liðið, árin hafa liðið og þjóðfélagið hefur breyst. Miðbærinn hefur breyst frá því að vera lifandi miðbær yfir í það að vera dauður miðbær. Miðbærinn í dag er dauður miðbær og það er ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur að svo skuli vera. Ákvarðanir borgarstjórnar Reykjavíkur í skipulagsmálum hafa gert að verkum að miðbærinn er ekki neitt hjá því sem hann var. Lífið hefur færst annað. Það hefur flust frá Borginni og það er ekki Alþingis að breyta því. Reyndar þori ég að fullyrða að við það að Alþingi kaupi þessa byggingu færist fyrst líf í bygginguna. Ég er sannfærður um það, enda er það ekki tilviljun að húsið er til sölu.
    Hver hótelhaldarinn á fætur öðrum hefur gefist upp. Það er ekki grundvöllur fyrir þessum rekstri, hvorki veitinga- eða hótelrekstri, og þess vegna er húsið til sölu. Breytingar hvað varðar hótelrekstur og veitingarekstur hafa orðið þvílíkar að sá rekstur sem þarna hefur verið stendur ekki undir sér.
    Öllum er ljóst sem hér eru hversu starfsaðstaða alþingismanna er ömurleg, hversu mikil þörf er á því að bæta úr, og öllum er okkur ljóst að í kringum þetta virðulega hús, Alþingishúsið, eru hvers kyns kofaræksni sem menn hafa haft starfsemina í og að úr því þurfi að bæta. Það er ekki bara að starfsaðstaða sé slæm heldur er hún líka mjög óhagkvæm. Þess vegna eru raddir um að kaupa þetta hús sem verður vafalaust góður kostur til bráðabirgða --- ég ítreka til bráðabirgða. Ég er einn af þeim sem vilja byggja nýtt hús. Ég er einn af þeim sem telja þá teikningu sem fyrir liggur teikningu að glæsilegu húsi sem mun rísa. En það mun taka langan tíma. Ég geri mér það ljóst. En við eigum að reisa þá byggingu og hún verður sómi fyrir Íslendinga og mikil prýði fyrir Reykjavíkurborg. En að vera að standa í vegi fyrir að einhver hús séu keypt til að aðlaga starfsemina breytingum finnst mér með ólíkindum. Þess vegna tel ég að samþykkja eigi þessa tillögu.
    Það hefur reyndar komið fram að í þingflokkunum er mikill vilji fyrir því að þetta hús verði keypt og því verði breytt eftir þörfum Alþingis. Það hafa nokkrir talað gegn þessu hér. Það er afar lítill minni hluti að mínu mati. ( Gripið fram í: Talað gegn því hér?) Talað gegn því að kaupa þetta hús, talað gegn þessari þáltill. En þó margir hafi talað í þessum ræðustól og fleiri verið á móti eru það afar fáir miðað við allan þingheim og það er mikill meiri hluti með

þessari tillögu að mínu mati.
    Hitt er annað mál að ég geri mér það alveg ljóst að sú kostnaðaráætlun, sem liggur fyrir hvað endurbætur snertir, er ekki raunhæf að mínu mati. Það verður dýrara að breyta. Menn eiga ekkert að vera að dylja þann sannleika. Eða gera sér annað í hugarlund. En við eigum heldur ekki að hopa af hólmi vegna þess. Við eigum að leysa húsnæðisvandamál Alþingis til bráðabirgða, kaupa þetta hús og gera það myndarlegt, myndarlegra en það er, gera starfsaðstöðuna góða og byrja strax að huga að nýrri byggingu þegar fé er fyrir hendi til að gera það.