Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða stórmál. Það slys sem varð suðvestur af Bjarnarey á föstudaginn var er mjög stórt mál þótt geislamengun eftir þetta óhapp hafi ekki verið staðfest og það er sannarlega ástæða til þess og þó fyrr hefði verið að taka það til umræðu á Alþingi. Ég vil þakka hæstv. utanrrh. fyrir þá skýrslu sem hann hefur gefið þinginu um viðbrögð við þessu slysi og þær aðgerðir sem hann hefur haft í frammi til að afla fyllri upplýsinga um það sem þarna gerðist og þá alveg sérstaklega um þann búnað og þau efni sem eru um borð í flakinu af þessum kjarnorkukafbáti svo að Íslendingar geti lagt mat á hættuna sem þarna er á ferðinni í þeirri tímasprengju sem hvílir á hafsbotni langt undir yfirborði sjávar.
Það er nauðsynlegt fyrir okkur að átta okkur á því að það þarf að ganga fast fram þegar bornar eru upp kröfur um upplýsingar þegar kjarnorkuiðnaðurinn á í hlut. Menn þekkja það væntanlega að óvíða er leyndarhjúpurinn jafnmikill og í kjarnorkuiðnaði. Þar nægir að benda á kjarnorkuiðnað til raforkuframleiðslu, kjarnorkuver sem vel eru þekkt hér á landi, og þann leyndarhjúp sem hvílir yfir þeim óhöppum sem þar hafa orðið. Hvað þá þegar um hernaðarhagsmuni er að ræða eins og í sambandi við þennan kjarnorkukafbát sem snerta allan búnað, herbúnað á sjó og tengjast kjarnorkuvopnum og kjarnakljúfum sem knýja skip og kafbáta. Ég tel að þær kröfur sem hæstv. ráðherra hefur borið fram við sovésk yfirvöld séu í fyllsta máta réttmætar og þar eigum að ganga mjög ákveðið fram og krefjast svara. Við eigum ekki að láta okkur nægja að sovésk yfirvöld svari norskum stjórnvöldum þeim spurningum sem norsk yfirvöld og norskar stofnanir höfðu borið fram og hæstv. ráðherra rakti hér. Við eigum að fara fram á að fá svör við þeim spurningum beint til okkar. E.t.v. fólst það í orðum hæstv. ráðherra og samtölum við sendiherra Sovétríkjanna, ég tók ekki alveg nógu vel eftir hvað hann sagði um það efni í sinni ræðu hér áðan.
Ég tel að þetta atvik kalli á að við Íslendingar leitum sem fyllstra upplýsinga um það sem er að gerast í höfunum í kringum okkur, hér upp við strendur landsins, í sambandi við vígtólin sem þar eru á ferð allt í kringum landið. Að við áttum okkur á, hafi menn ekki gert það nú þegar, þeirri geigvænlegu hættu sem hagsmunum okkar þjóðar er búin vegna þessa herbúnaðar. Ferðir kjarnorkuknúinna kafbáta, sovéskra, bandarískra og frá öðrum ríkjum eins og Frakklandi og Bretlandi, er staðreynd hér í norðurhöfum. Tölur yfir þessi fley, ef nota má það skáldlega heiti yfir þessar vígvélar, eru nokkuð á reiki. Mér er ekki kunnugt um að NATO hafi t.d. gefið upp opinberlega fjölda kafbáta í sínu liði sem á ferðum eru í heimshöfunum og margt fleira er óljóst í þessu efni. Varsjárbandalagið hefur samkvæmt nýlegum upplýsingum hjá starfsmönnum Öryggismálanefndar talið kjarnorkukafbátana sín megin á norðurslóðum eða í Evrópu vera um 228 talsins en hjá NATO 200. Þetta
eru þeirra tölur, e.t.v. ýktar og rangsnúnar, en frá Atlantshafsbandalaginu hafa ekki komið fram hliðstæðar tölur.
Við skulum gera okkur í hugarlund hvað það þýddi fyrir okkur ef atburður af því tagi sem gerðist um 1600 km norðaustur af landinu sl. föstudag hefði orðið í grennd við Ísland á fiskimiðum á Selvogsbanka eða austur við Hvalbak svo að dæmi séu tekin. Hvar værum við stödd í umræðunni um þessi mál ef við færðum atburð af þessu tagi svolítið nær okkur? Ætli það hefði ekki verið tilefni til snarpra viðbragða á Alþingi Íslendinga og af hálfu íslenskra stjórnvalda hver sem í hlut hefði átt? Þetta eru atburðir sem geta gerst hvenær sem er, geta yfir okkur dunið eins og málum er nú háttað varðandi umferð kjarnorkuknúinna farkosta á hafinu í grennd við landið. Kjarni þessa máls er því í rauninni, jafnhliða því sem leitað er sem fyllstra upplýsinga og reynt að svipta leyndarhjúpnum sem tengist þessum atburði, þessum kjarnorkukafbáti og búnaði hans og gerð, að Ísland taki nú á sig rögg og knýi á um það af alvöru að hafnar verði viðræður milli kjarnorkuveldanna og risaveldanna með þátttöku annarra ríkja um afvopnun á höfunum. Það má ekki dragast marga daga að vart verði viðbragða og stefnumótunar af hálfu íslenskra stjórnvalda í þá átt. Að íslensk stjórnvöld geri þær kröfur að sínum, sem tillögur liggja fyrir um á Alþingi og margsinnis hafa verið ræddar á þingi á undanförnum árum, að stefna okkar ætti að vera sú að hafa um það frumkvæði að afvopnunarviðræður hæfust varðandi heimshöfin og alveg sérstaklega varðandi norðurslóðir.
Ég minni á það að sl. mánudag var lögð fram í þinginu till. til þál. um kjarnorkuafvopnun á norðurhöfum flutt af fjórum hv. alþingismönnum úr fjórum þingflokkum. Ég vil leyfa mér að rekja efni þeirrar tillögu, með leyfi virðulegs forseta:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hafa frumkvæði að því að kveðja hið fyrsta saman alþjóðlega ráðstefnu til að ræða um afvopnun á höfunum og undirbúa samningaviðræður með sérstöku tilliti til kjarnorkuafvopnunar á norðurhöfum. Jafnframt verði leitað eftir því við ríki sem eiga kjarnorkukafbáta og kjarnorkuknúin skip í norðurhöfum að þau takmarki umferð þeirra í grennd við Ísland og að aðrar tiltækar ráðstafanir verði gerðar til að bægja frá hættu af geislamengun vegna slysa og óhappa.``
Í rökstuðningi fyrir þessari tillögu er minnt á fjölmörg slys og óhöpp sem vitað er um og upplýsingar liggja fyrir um að orðið hafi fyrir utan hin fjölmörgu tilvik sem tekist hefur að þegja yfir af hlutaðeigandi ríkjum og hernaðaryfirvöldum. Í rauninni finnst manni óþarfi að rökstyðja slíka tillögu með mörgum orðum og ég ætla að spara mér það hér og nú. Svo sjálfsagt virðist manni, miðað við það sem er í húfi, að þessi stefna verði opinber stefna íslenskra stjórnvalda og að þau reki af sér slyðruorð sem safnast hafa fyrir á mörgum árum. Íslensk stjórnvöld hafi um það frumkvæði að ýta á eftir um slíkar
afvopnunarviðræður, ýti á eftir að þau kjarnorkuveldi sem halda úti herbúnaði í norðurhöfum takmarki umferð þeirra í grennd við Ísland. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa af okkar hálfu.
Hæstv. ráðherra minntist á það í sinni ræðu að hann hefði óskað eftir upplýsingum frá bandarískum hernaðaryfirvöldum um mat þeirra á hættunni af herskipum og kafbátum Bandaríkjahers. Hæstv. ráðherra vitnaði lauslega í það yfirlit og boðaði að við mundum fá að sjá það. Ég segi um það að það er ágætt og sjálfsagt að fá greinargerðir frá bandarískum hernaðaryfirvöldum. En við skulum ekki ætla okkur þá dul að það sé mikið á þeim byggjandi í sambandi við öryggisbúnað og áhættu varðandi herkost þeirra megin. Það væru blindir menn sem gerðu það mat að sínu miðað við þann leyndarhjúp sem er haldið yfir þessum málum, bæði í austri og í vestri. Þetta yfirlit sem ég hef barið augum frá flotamálastjórn Bandaríkjahers á Atlantshafi er hið kyndugasta plagg en kemur ekki á óvart. Þar er á röskum tveimur síðum nánast gert ekkert úr hættu af umferð herkosts á þeirra vegum, en þess er svo getið undir lokin að að vísu hafi nú sokkið tveir kjarnorkuknúnir kafbátar í eigu Bandaríkjahers og þeir tilgreindir eins og hæstv. ráðherra nefndi. Einnig er á það bent að því sé nú fyrir að þakka að herskipin og kafbátarnir séu hreyfanleg og að því leyti miklu betur sett en kjarnorkuver á landi. Það liggur við að hægt sé að brosa að þeim málflutningi sem þarna er á ferðinni en málið er miklu alvarlegra en svo að maður geti leyft sér það.
Ég vil nefna í þessu samhengi að vegna kjarnorkukafbátsslyssins við Bjarnarey hafa hagsmunaaðilar í Noregi í fiskiðnaði og fiskveiðum lýst þungum áhyggjum sínum undanfarna daga yfir því hvað kunni að gerast í tímans rás þótt geislamengun hafi ekki verið staðfest. Þeir benda réttilega á að enginn veit hvænær hún getur orðið og áhættan fyrir norska hagsmuni og annarra ríkja sem byggja sitt á auðlindum hafsins er auðvitað afar mikil eftir sem áður. Þetta er auðvitað tekið fram í þeirri greinargerð sem hæstv. ráðherra vitnaði til í sínu máli frá Geislavörnum ríkisins þar sem segir m.a., með leyfi virðulegs forseta:
,,Hér á landi hefðu skapast alvarlegir erfiðleikar ef kafbáturinn hefði farist á hafsvæðunum umhverfis landið, í fyrsta lagi vegna þess að rannsóknastofur stofnunarinnar fyrir geislamælingar eru ekki enn tilbúnar og í öðru lagi vegna þess að hvorki liggja fyrir nægilegar bakgrunnsupplýsingar um geislavirkni á hafsvæðunum umhverfis Ísland né um geislavirkni í sjávarafurðum.`` Þetta varðar óhapp þar sem raunverulega er ekki um mælanlega geislavirkni að ræða eins og ekki hefur enn orðið varðandi þetta slys, hvað þá ef til slíks kæmi.
Af því sem fram kom í máli hæstv. ráðherra vil ég nefna eitt sérstaklega. Hann vék að því að upplýsingar hefðu borist sér nokkuð seint um þetta efni og ástæðurnar fyrir því væru m.a. þær, eftir því sem fram kom í máli hæstv. ráðherra, að það er hið svokallaða
varnarlið, bandaríska herliðið hér á Íslandi, sem er ætlað það hlutverk að tilkynna íslenskum stjórnvöldum og íslenskum yfirvöldum um atburði af þessu tagi. Íslensk stjórnvöld virðast byggja á því að fá tilkynningar frá Bandaríkjaher um atburði af þessu tagi. Íslenskar stofnanir eins og Almannavarnir ríkisins, Landhelgisgæslan og Geislavarnir eru háðar því að fá upplýsingar frá herliðinu bandaríska. Það er sá meginöryggisventill sem stjórnvöld virðast byggja á í þessu máli eftir því sem fram kom í máli hæstv. ráðherra. Ég er ekki þar með að segja að stjórnvöld vilji ekki taka við sér ef fréttirnar bærust eftir öðrum leiðum, en í þessu tilviki var á því byggt og það virðist vera meginregla að við fáum upplýsingar um atburði af þessu tagi eftir þessum leiðum.
Ég minnti á leyndarhjúpinn hjá kjarnorkuveldunum í sambandi við allt sem lýtur að kjarnorkumálum og kemur m.a. fram í því að Atlantshafsbandalagið neitar að veita upplýsingar um það hvort kjarnorkuvopn séu um borð í skipum sem eru á ferð um höfin og leita til hafna í aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins. Hvernig dettur nokkru ríki í hug að byggja viðbúnað sinn á því sérstaklega að fá upplýsingar frá þessum hernaðaryfirvöldum varðandi slík efni? Auðvitað eigum við ekki að hafna slíkum upplýsingum þegar og ef þær berast, en við eigum ekki að teysta á þær sem meginupplýsingaleið um þessi mál og skiptir þá engu þótt samningar kunni að vera um það eins og hæstv. ráðherra vék að, lægju fyrir milli risaveldanna tveggja um upplýsingaskyldu.
Ég hygg ég hafi tekið eftir því í máli hæstv. ráðherra að það samningslega
brot sem Sovétríkin hafa gert sig sek um varði samning sem gerður er á milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna sérstaklega en ekki með þátttöku annarra ríkja. Þetta er auðvitað gersamlega ófullnægjandi, í fyrsta lagi að sjálfsögðu að þessi samningur skuli brotinn í svo viðamiklu máli en að ekki skuli vera til alþjóðasamningur um slíka tilkynningarskyldu, og við Íslendingar eigum að reisa kröfuna um það á alþjóðavettvangi, m.a. í ljósi þessa atburðar, að hið fyrsta verði gerður alþjóðasamningur um slíka tilkynningarskyldu.
Það er þannig margt, virðulegur forseti, sem tengist þessu stóra máli sem kallar á frekari athuganir og upplýsingaöflun af hálfu íslenskra stjórnvalda og viðbrögð af hálfu íslenskra stjórnvalda. Ég tel að hluti af því máli snerti upplýsingar um fortíðina, mat á þeirri hættu sem er fólgin í umferð kjarnorkuknúinna skipa og kafbáta með tilheyrandi vopnabúnaði um heimshöfin og alveg sérstaklega það sjálfsagða og brýna frumkvæði sem við biðjum íslensk stjórnvöld um að sýna til þess að knýja á um afvopnunarviðræður varðandi herbúnaðinn á heimshöfunum. Þar eru norðurslóðir okkur nærtækastar. Atburðurinn við Bjarnarey á að vera okkur nægjanlegur, nægjanleg áminning hér og nú, til þess að slík krafa verði reist, til þess að hæstv. utanrrh. beri hana fram á alþjóðavettvangi, til þess að hann beri fram óskina um að alþjóðleg ráðstefna verði
kvödd saman, gjarnan hér á Íslandi, til þess að hefja slíkar viðræður, ræða um eðli málsins og undirbúning og að slík ráðstefna verði haldin hið allra, allra fyrsta.