Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. utanrrh. fyrir að gefa okkur þær upplýsingar sem hann hefur lagt hér fram í dag, um það slys sem hefur verið töluvert í fjölmiðlum undanfarið. Margt alvarlegt hefur komið fram í þeim upplýsingum hæstv. utanrrh. Alvarlegast er það hversu litlar upplýsingar liggja fyrir um þetta slys. Það er ámælisvert og mjög alvarlegt að Sovétmenn skuli leyfa sér að halda leyndum upplýsingum sem þeim er skylt að gefa eftir því sem ráðherrann upplýsti. Að vísu var mér ekki ljóst hvort í því fólst skylda gagnvart Íslendingum til að gefa upplýsingar en eftir því sem hann segir nú var það einungis til Bandaríkjanna.
Ég vil taka undir það með hv. þm. 2. þm. Austurl. Hjörleifi Guttormssyni að mér finnst nauðsynlegt að við knýjum á um að slíkar upplýsingar verði gefnar okkur ekki síður en öðrum. Að vísu hefur nú komið fram að þessi samningur er óskaplega lítils virði ef ekki er farið eftir honum eins og hér er upplýst að Sovétmenn gerðu ekki í þessu tilfelli. Mér finnst alveg sjálfsagt að Íslendingar mótmæli þessum seinagangi sem þarna er. Það er kannski erfitt fyrir okkur vegna þess að við erum ekki aðilar að neinum samningi en mér finnst þetta vera mjög alvarlegt mál af hálfu Sovétmanna. ( Utanrrh.: Því var mótmælt við sendiherra Sovétríkjanna á Íslandi.) Það er mjög ánægjulegt að heyra það að því hafi verið mótmælt.
Eldsneyti í kjarnorkukafbátum er venjulega úraníum 235. Það er að vísu ekki upplýst hvort það hafi verið í þessum kafbáti en það er það venjulegasta. Úraníum 235 hefur langan helmingunartíma og er ekki mjög hættulegt, ekki eins hættulegt og mörg önnur geislavirk efni eins og t.d. plútóníum ef það er brennsluefni í þessum ofni. Við brennsluna myndast ýmis efni, svo sem baríum og strontíum, sesíum, joð og fleiri, eins og kom hér fram, en þessi efni eru sérstaklega hættuleg lífverum. Þó að úraníum sjálft sé ekki verulega hættulegt, þá eru þessi dótturefni sem koma fram við brennsluna mjög hættuleg ef þau berast inn í lífverur. Þau eru mjög geislavirk og ganga inn í lífkeðjuna og eru t.d. tekin upp í stað kalks (kalsíums) inn í beinin og mörg önnur lífeðlisfræðileg ferli í lífverum þannig að þau eru verulega hættuleg. Það er því ástæða til að óttast mjög ef þessi efni berast út í sjóinn. Það fer því eftir því hversu langt var síðan eldsneytið var tekið og hversu mikið af efni þarna er um að ræða, þessum stórhættulegu brennsluefnum. Ef brennslan hefur farið úr böndum í ofninum, þ.e. ef algjör brennsla hefur orðið er málið alvarlegra en annars. Því er haldið fram af Sovétmönnum að þeim hafi tekist að stöðva ofninn og ég vona svo sannarlega að svo sé. Það er ýmislegt sem bendir til að svo sé þar sem ekki hefur mælst geislavirkni í sjónum á hafsbotni á því dýpi sem kafbáturinn er. Ég tel samt sem áður að ástæða sé til þess að trúa ekki endilega öllu sem þarna hefur verið sagt. Nógu alvarlegt er slysið þó að engin kjarnorkuvopn hefðu verið í kafbátnum. Nú hefur það verið upplýst að þar hafi verið kjarnorkuvopn, og þá
skiptir auðvitað máli hvort þar er um að ræða odda með úraníum eða plútóníum. Það hefur að því er virðist ekki verið upplýst frekar en annað í þessu máli. Ef plútóníum er í kjarnaoddunum er það miklu hættulegra heldur en ef um úraníum er að ræða þó að hættan sé mikil í öllu falli. Plútóníum er sérstaklega hættulegt ef það berst inn í lífverur. Þess vegna er það mikið hættulegra.
Það er ekki langt síðan hörmulegt kjarnorkuslys varð í Tsjernóbíl í Sovétríkjunm. Þá varð uppi fótur og fit sem eðlilegt er og mikil hræðsla greip um sig vegna þeirrar hættu sem geislunin vegna slyssins gæti haft í för með sér. Ef þetta slys er borið saman við Tsjernobílslysið er fyllsta ástæða til þess að hafa áhyggjur. Talað var um að u.þ.b. 10% af heildareldsneytinu hefði sloppið út í andrúmsloftið í slysinu í kjarnorkuverinu í Tsjernobíl. Það orkuver er um 1000 mw., þannig að ef reiknað er með að 10% af eldsneytinu hafi sloppið út má gera ráð fyrir að þarna hafi orðið u.þ.b. 100 mw. geislamengun. Ef um kjarnorkukafbát hefði verið að ræða og ef þessi bátur væri 50 mw., sem má telja líklegt eftir þeim upplýsingum sem liggja fyrir, þá væri um að ræða helmingi minni mengun en var frá Tsjernobíl ef allt fer út í hafið. Þetta er því ekkert smámál sem þarna er á ferðinni.
Að vísu er því haldið fram að þarna sé ekki mikil hætta á ferðinni vegna þess að engin efni sleppi út. Við vitum hins vegar ekkert hvað þarna mun gerast. Við vitum ekki hvenær kafbáturinn leysist upp. Við vitum ekki hve langan tíma það tekur. Við höfun engar upplýsingar um það hversu þykkt er í bátnum, hversu miklar líkur er á því að það taki hann mörg ár að leysast upp. Ef þetta tekur nógu langan tíma minnkar hættan smátt og smátt vegna þess að helmingunartíminn er ekki svo ýkja langur. Hins vegar þurfum við allar þessar upplýsingar til þess að geta gert okkur grein fyrir hversu mikil hætta er þarna á ferðinni.
Þess ber einnig að geta að geislamengun í hafinu berst mjög hægt burtu frá mengunarstaðnum og ef hún berst út í sjóinn hefur hún mjög alvarleg áhrif vegna þess að hún er mikil á litlu svæði ef borið er saman við mengunarslys í andrúmsloftinu þó að ég sé alls ekki að gera lítið úr þeim slysum sem verða í
andrúmsloftinu. Og það vekur eiginlega furðu hve lítið er gert úr þessu slysi af sovéskum yfirvöldum og af fleirum, ef ég skil rétt, því að hæstv. ráðherra upplýsti áðan að norsk rannsóknarstöð hefði gert lítið úr hættu á mengum af völdum þessa slyss. Ég held nefnilega að fyllsta ástæða sé til að hafa miklar áhyggjur af því sem þarna hefur gerst.
Það getur vel verið að hættan sé ekki mikil á næstu mánuðum eða jafnvel árum, en með tímanum má búast við að það berist einhver mengun út í hafið og auðvitað höfum við ákveðnar skyldur við framtíðina. Við getum ekki horft fram hjá því sem þarna er að gerast.
Það kom einnig fram hjá hæstv. ráðherra að mörg óhöpp hefðu orðið í kafbátum. Hann talaði um átta
óhöpp í sovéskum kafbátum og að einn kafbátur hefði sokkið --- þetta eru nú bara þær upplýsingar sem liggja fyrir, það getur vel verið að það séu enn fleiri bátar sem þarna hafa sokkið --- og tveir bandarískir kjarnorkukafbátar hefðu einnig sokkið. Það er því ekkert lítið sem þarna er á ferðinni ef út í hafið berst geislavirkt efni í einhverjum mæli. Þannig að þetta er ekki lítið alvarlegt. Þótt þetta slys sé mjög alvarlegt er greinilegt að þarna hafa orðið slys fyrr og við getum alveg eins átt von á fleirum í framtíðinni.
En hvað er þá til ráða? Hvað getum við gert? Það breytir litlu, því miður, þó að upplýsingar um slys og umfang þeirra berist fljótt og vel til allra aðila sem er auðvitað lágmarkskrafa. En það eina raunhæfa sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir slys af þessu tagi er að banna alla umferð kjarnorkuknúinna kafbáta og skipa hér við land til að byrja með og beita síðan öllum áhrifum okkar á alþjóðavettvangi til algjörrar kjarnorkuafvopnunar og notkunar kjarnorku til að knýja kafbáta og skip.
Ég heyrði ekki betur en að hæstv. ráðherra væri sama sinnis. Hann sagði hér áðan í umræðunni að nauðsynlegt væri að knýja á um gagnkvæma samninga um afvopnun á höfunum, og ég er honum fyllilega sammála. Það verður hins vegar að gera eitthvað í málinu. Það er ekki nóg bara að segja að maður hafi áhuga. Á seinasta löggjafarþingi var lagt fram frv. af hv. þáv. þm. Steingrími J. Sigfússyni, núv. hæstv. landbrh., um hvernig bæri að standa að friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorku- og eiturefnavopnum. Sú sem hér talar var meðflutningsmaður að frv. Ég tel fyllilega tímabært að við tökum á okkur rögg og vinnum að því að friðlýsing Íslands fyrir kjarnorkuvopnum verði að veruleika. Okkur ber skylda til að taka þetta mál föstum tökum og hafa um það frumkvæði á alþjóðavettvangi að ræða afvopnun á höfunum.
Það var einnig minnst á hér fyrr í umræðunni till. til þál. sem lögð hefur verið fram hér á Alþingi um að fela ríkisstjórninni að hafa frumkvæði í þessum málum. Ég vænti þess að Alþingi og ríkisstjórn taki sig á varðandi þessi mál og leggi lóð á vogarskálar til að bægja þeirri miklu hættu frá sem felst í kjarnorkunni og þá m.a. með því að samþykkja þessa tillögu og fleiri aðgerðir í sömu átt.