Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegur forseti. Í fjarveru dómsmrh. mæli ég fyrir frv. um breytingu á lögum um vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga þar sem gert er ráð fyrir því að heimild til handa SÍBS til að reka happdrætti þetta, sem rennur út í ágústlok 1989, verði framlengd í tíu ár í viðbót, til ársloka 1999.
Þetta er frv. sem þegar hefur sætt meðferð í hv. Nd. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn. trúi ég.