Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég vil auðvitað með öllum hætti greiða fyrir því að framlengt sé leyfi til SÍBS til happdrættisrekstrar, en vil nota þetta tækifæri til að spyrja hæstv. ráðherra hvað líði þeim hugmyndum sem fram hafa komið, ég hygg í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, að minnsta kosti liggur það fyrir að í nefnd sem ég átti sæti í í tíð síðustu ríkisstjórnar þar sem rætt var um virðisaukaskatt voru uppi þær hugmyndir af hálfu fulltrúa Alþfl. og fulltrúa Framsfl. að virðisaukaskattur yrði lagður á happdrættismiða. Nú hefur sú nefnd sem á að endurskoða lögin um virðisaukaskatt ekki komið saman, en ég hygg að það hljóti að liggja í augum uppi að ríkisstjórnin hafi áður en hún lagði þetta frv. fram rætt um það og metið hvort hún telji rétt og skynsamlegt að virðisaukaskattur verði lagður á happdrættismiða eins og ég veit að ýmsir framsóknarmenn og alþýðuflokksmenn telja sjálfsagt að gert sé. Mér er sagt að það hafi komið upp hugmyndir um það á nýjan leik í fjmrn. nú í sambandi við síðustu fjárlög og vil því spyrja hæstv. menntmrh. hvort ekki sé óhætt að treysta því að happdrættin fái að vera í friði fyrir aukinni skattheimtu ríkissjóðs. Það er ekki einleikið hversu víða þessi ríkisstjórn reynir að komast ofan í vasann hjá fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum. Skattbyrðin er svo mikil orðin á þessu ári að það er talið að í henni felist 7% kjaraskerðing. Afrakstur happdrættismiðanna hefur fram að þessu runnið til menningarmála og líknarmála fyrst og fremst og íþróttamála. Nú er að vísu svo komið á þessu ári að ríkisstjórnin hefur seilst í peningahappdrætti Háskólans og er farin að nota þá í almennan rekstur Háskólans sem ekki hefur komið fyrr fyrir og er auðvitað algert brot á öllu velsæmi svo að ekki sé meira sagt. Ég tel þess vegna mjög mikils vert að það liggi fyrir áður en þessu máli er vísað til nefndar að ríkisstjórnin hafi enga þanka uppi um að leggja virðisaukaskatt á happdrættin.