Umferðarlög
Föstudaginn 14. apríl 1989

     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Ég hef eitthvað komist klaufalega að orði áðan ef ummæli mín voru skilin þannig að ég hafi gert athugasemdir við efnisatriði frv. hv. 6. þm. Reykn. Þvert á móti vakti ég athygli á því að það ákvæði frv. að taka upp hlífðarhjálma fyrir reiðhjól væri mjög þarflegt. Mér var hins vegar bent á það af manni sem þekkir vel til í tryggingamálum að það væri æskilegra, ef hægt er, að ganga skrefið lengra. Ég er hv. þm. alveg sammála um að það er betra að þetta taki til 10 ára barna heldur en ekki og lagði áherslu á það. (Gripið fram í.) Hitt sagði ég um rannsóknarnefnd umferðarslysa að forsendan fyrir því að slík nefnd gæti unnið vel úr sínum málum, væri sú að glöggar upplýsingar lægju fyrir um tildrög umferðarslysa og árekstra í umferðinni. Ég hélt því fram líka vegna ábendinga frá mönnum sem kunnugir eru og hafa af því daglega atvinnu að fylgjast með umferðarslysum, að upplýsingar um tildrög þeirra og ástæður eru ekki jafnöruggar og áður og raunar mjög af skornum skammti eftir að sú regla var afnumin að lögreglan gæfi skýrslu á slysstað eða árekstrarstað. Þannig að athugasemd mín hné ekki að því að ástæðulaust væri að stofna nefndina, síður en svo. Athugasemd mín laut að því að ég vildi breyta framkvæmd laganna þannig að lögreglan gæfi skýrslu um árekstra eins og áður þannig að umferðarnefndin, slysarannsóknanefndin hefði öruggari grunn, hefði öruggari forsendur fyrir sínu starfi og betri upplýsingar að byggja á í störfum sínum. Það var að því sem athugasemd mín laut en ekki hinu að draga úr nauðsyn þess að nefndin yrði skipuð.