Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þær umræður sem hér hafa farið fram og þær málefnalegu athugasemdir sem hér hafa komið fram í þessari umræðu.
Í fyrsta lagi spurði mig hv. 2. þm. Norðurl. e. hvernig ætti að leysa þau mál sem um er að ræða í skólakerfinu ef verkfallið dregst mjög á langinn.
Svarið er ósköp einfaldlega það: Við höfum ekki gengið frá þeim málum í einstökum atriðum vegna þess að við höfum verið að gera okkur vonir um og gerum okkur vonir um að samningar takist fyrir þann tíma að enn frekari vandræði skapist í skólunum. Þess vegna höfum við ekki farið út í það að skipuleggja viðbrögð í einstökum atriðum. Þegar til þess kæmi, ef svo illa færi, þá munum við auðvitað gera það með viðtölum við Kennarasamband Íslands og Hið íslenska kennarafélag og Bandalag kennarafélaga og Skólameistarafélag Íslands. Þannig hljóta niðurstöður í þeim efnum að verða. Ákvarðanir í þeim efnum verða ekki til öðruvísi.
Hugmyndir um þessi mál hafa auðvitað nokkuð staðnæmst við samræmdu prófin að undanförnu, hvernig á því yrði tekið. Þar eru fræðilega séð --- ég sagði fræðilega, það eru ekki mínar tillögur og heldur ekki mínar ákvarðanir --- uppi ýmsir möguleikar. En ég tel að það sé ekki tímabært nú að slá því föstu hvernig að hlutum verður þar staðið í einstökum atriðum. Ég ítreka það sem fram hefur komið í viðtölum mínum við Bandalag kennarafélaga, Hið íslenska kennarafélag og Kennarasamband Íslands að á þeim málum yrði tekið í samvinnu við þessi stéttarsamtök.
Í annan stað innti hv. 2. þm. Norðurl. e. eftir því hvernig við myndum bregðast við ef verkfallið stæði fram eftir öllu árinu. Ég segi alveg eins og er að ég hef gert mér vonir um það og geri það enn að samningar takist þannig að ekki þurfi til slíks að koma.
Þá kem ég næst að efnislegum athugasemdum hv. 2. þm. Norðurl. e. Það er rétt hjá honum að í 1. gr. og fyrri mgr. 2. gr. er um að ræða áherðingu frá því sem er í gildandi lögum. Hv. þm. spurði: Hvernig á að meta það hvað er fámennt sveitarfélag og hvað ekki, þegar ákveðin er aukin kostnaðarhlutdeild ríkisins við byggingu framhaldsskóla? Svarið er: Það er Alþingi sem metur það eins og kemur fram í greininni. Það hlýtur að vera Alþingi. Og Alþingi hlýtur þá að meta bæði stærð sveitarfélagsins og getu, en líka önnur skylduverkefni sem sveitarfélagið kann að hafa á framhaldsskólastigi. Það er rétt, sem hv. 2. þm. Norðurl. e. nefndi, að með þeim breytingum sem verða á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá næstu áramótum, þá breytist myndin í þessu efni verulega. En vert er að benda á af því hann nefndi Akureyri að ríkið mun yfirtaka rekstur Verkmenntaskólans þar eins og annarra framhaldsskóla. Hv. þm. nefndi sérstaklega 3. gr. frv. og sagði: ,,Hér er um að ræða aukna miðstýringu frá því sem verið hefur.`` Ég vísa því algjörlega á bug. Hér er verið að flytja vald og ákvörðunarrétt út til fræðsluumdæmanna og héraðanna
sjálfra.
Í núgildandi lögum segir að það skuli starfa samstarfsnefnd framhaldsskólanna undir forustu menntmrh. Það er ein nefnd fyrir allt landið. Hér er gert ráð fyrir því að unnt sé að mynda nefndir eftir kjördæmum, eftir svæðum og eftir umdæmum, eftir því sem aðstæður leyfa í hverju umdæmi. Auðvitað hefði verið æskilegt að við hefðum getað staðið þannig að málum að vera með sama stjórnkerfi fyrir öll kjördæmi. Það er ekki hægt vegna þess að aðstæður að því er varðar framhaldsskólann í kjördæmunum eru svo mismunandi. Þess vegna er ekki hægt að setja eina allsherjarreglu. Þess vegna er lögð áhersla á það í þessari grein að undirstrika grundvallaratriðin og hvernig með skuli fara í meginatriðum.
Í 4. gr. er einnig um það að ræða að það er verið að flytja vald til starfsmanna skólanna, það er verið að flytja vald til þeirra og þeirra sem búa á svæðunum. Í máli hv. þm. Danfríðar Skarphéðinsdóttur kom fram að þetta væri erfitt mál með hliðsjón af því að sums staðar hefðu fleiri sveitarfélög komið nálægt þessu en annars staðar, t.d. á Vesturlandi eru þau mjög mörg, eins og menn þekkja og hv. þm. þekkir. Þetta er auðvitað afar flókið mál og afar erfitt. Ég kann ekki neina endanlega rétta formúlu í þessu efni. Ef menn geta fundið hana þá er að koma fram með hana. En ég held að þetta sé sú skásta miðað við stöðuna eins og hún er nú.
Ég ætla aðeins að víkja að 3. gr. frv. þar sem hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir spurði sérstaklega um faggreinafélögin, hvernig þau gætu komið inn í þessa mynd. Ég veit ekki hvernig. Þau eru mjög mörg og yrði mjög skrýtið ef fulltrúar allra faggreinafélaganna kæmu inn í samstarfsnefndina. Ekki er það það sem hv. þm. er að leggja til. Er þá hv. þm. að leggja það til að einhver fulltrúi sameinaðra faggreinafélaga komi þarna inn? Það má skoða. Út af fyrir sig má skoða það að þarna komi inn fulltrúi frá kennarasamtökunum til þess að vera þarna á vettvangi. En ég undirstrika að hér er fyrst og fremst um að ræða samvinnu skólanna um praktísk úrlausnarefni eins og námsframboð, áfangaskiptingu, verkaskiptingu og fleira þess háttar.
Varðandi 5. gr. frv. þá nefndi hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir það sérstaklega hvort námsráðgjafar ættu að koma þarna við sögu. Það getur út af
fyrir sig komið til greina að námsráðgjafi, einn í hverjum skóla, komi við sögu inn í skólastjórn af þessu tagi. En á því máli hefur ekki verið tekið og það er ekki verið vísvitandi að útiloka þá. Ef það hefur legið í spurningu hv. þm. þá er það misskilningur. Hér er eingöngu um það að ræða að við tökum áfangastjórana inn en tökum hins vegar inn ákvæði í frv. um að námsráðgjafar og skólasafnverðir skuli vera til í framhaldsskólum og að verkefni þeirra sé skipulagt með sérstökum hætti á hverjum tíma.
Í 7. gr. frv. er síðan fjallað um ráðningu og hv. 2. þm. Norðurl. e. gerði ekki athugasemd við hana, en hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir vitnaði til
stjórnarsáttmálans og spurði: Af hverju er þetta fólk æviráðið? Er það ekki í ósamræmi við stjórnarsáttmálann? Svarið getur verið já við þeirri spurningu, að það sé það. En aftur á móti eru þetta kjarasamningaatriði. Og það verður ekki gengið frá málum af þessu tagi öðruvísi en í samningum við hlutaðeigandi séttarfélög.
Báðir hv. þm. sem hér töluðu, og gerðu aðallega athugasemdir við frv., gerðu sérstakar athugasemdir við 9. gr. frv. Það er eðlilegt að upp komi spurningar í þeim efnum. Hvað erum við að gera að því er þetta varðar? Við höfum núna frá því á sl. hausti verið að fara yfir allt inntak framhaldsskólanámsins með tilliti til þess að endurskipuleggja það og gefa þar möguleika á miklu fjölbreyttara námsframboði en hefur verið kostur á á undanförnum árum.
Við gerum ráð fyrir því samkvæmt niðurstöðu þessarar nefndar, að svo miklu leyti sem hún liggur fyrir, að í haust hefjist tilraun með þetta breytilega námsframboð, styttri námsbrautir, í a.m.k. tveimur framhaldsskólum. En ég segi það eins og er þetta er mál sem krefst svo mikils tíma að það er útilokað að keyra það inn í allt framhaldsskólakerfið í haust. Auðvitað hefðu menn þurft að byrja á að skipuleggja þessa hluti fyrir löngu, og áður en lögin um framhaldsskóla voru sett. Það var ekki gert og þess gjöldum við núna sem þýðir það að það verður að vera víða áfram forskólanám eins og verið hefur í einhverjum framhaldsskólum en ég tel að það sé lagalega rangt að gera það að skyldu.
Menn tala mikið um það að þetta fyrirkomulag þýði það að fjölga muni gífurlega í framhaldsskólunum. Í framhaldsskólunum í landinu eru núna á milli 15 þús. og 16 þús. nemendaár. Af þessum framhaldsskólanemum er mjög mikill fjöldi fólks sem er á fyrsta ári. Á fyrsta ári í framhaldsskólanum er einn og hálfur árgangur. Það er verulegur fjöldi fólks í framhaldsskólanum í dag sem kemst ekki áfram, sem er fastur, sem spólar eins og það er stundum kallað. Ef við hefðum það fyrirkomulag að tveir þriðju hlutar nemenda í framhaldsskólanum lykju fjögurra ára námi og einn þriðji tveggja ára námi þá væru innan við 14.000 nemendaár í framhaldsskólunum í landinu. Þannig að þó að við gerum ráð fyrir því að allir fari í framhaldsskóla, allir, en að námið verði skipulagt og boðið upp á sveigjanlegri, opnari og fjölbreytilegri námsbrautir en þar eru núna, þá þýðir það í raun og veru ekki dýrari framhaldsskóla en rekinn er í dag. Það þýðir ekki dýrari framhaldsskóla.
Þessar niðurstöður sem við erum núna að vinna úr í ráðuneytinu höfum við rætt við forráðamenn einstakra framhaldsskóla núna á undanförnum vikum og það er mikill áhugi á að taka þessi verkefni inn í þessum framhaldsskólum.
Ég er þeirrar skoðunar að í staðinn fyrir það að nota gamla einkunnakerfið sem svipu á fólk sé mikið vænlegra að vera með skipulagða námsráðgjöf hvort sem það er í grunnskólum eða framhaldsskólum. Þetta gamla einkunnakerfi sem menn hafa í raun og veru
smátt og smátt verið að breyta samræmdu prófunum í, gagnstætt því sem stóð til, hefur ekki skilað miklum árangri. Það að leiðbeina nemendum og benda þeim á brautir og kosti sem eru til innan framhaldsskólakerfisins við hæfi hvers og eins, er örugglega mikið vænlegra heldur en þessar gömlu einkunnasvipur.
Í sambandi við breytt námsframboð framhaldsskólans kemst ég ekki hjá því að taka það fram að því aðeins getur það náð tilætluðum árangri að um það náist samkomulag við atvinnulífið í landinu. Það verður að opna fyrir það að nemendur á framhaldsskólastigi geti stundað margvíslega blöndu af námi, bæði verklegu og bóklegu, allt frá því að vera með 100% verklegt nám yfir í það gagnstæða. Það er brýn nauðsyn að breyta þessari einhliða áherslu á bóknámið sem hefur verið í skólunum, hefur orðið þessu unga fólki fjötur um fót og í raun og veru í mörgum tilvikum hrakið það frá skólum til lífstíðar.
Hv. þm. Halldór Blöndal vék síðan sérstaklega að 10. gr. og er það að vonum. Hún er sú grein sem örugglega veldur mestum deilum. Ég vil taka það fram, herra forseti, að af minni hálfu stendur ekki til að breyta þeim reglum sem gert er ráð fyrir í núgildandi lögum að því er varðar rekstrarframlög til framhaldsskólans. Ég held hins vegar að það sé vænlegra og stuðli að meira sjálfstæði framhaldsskólanna að gerður sé samningur við hvern skóla fyrir sig um allar greiðslur. Ég held að það sé vænlegra en núgildandi kerfi.
Varðandi fyrirspurn hv. þm. Danfríðar Skarphéðinsdóttur um 11. gr. frv. vil ég ekki á þessu stigi svara því hver þessi lágmarksfjöldi yrði. Hann verður að vera í samræmi við almennar reglur um lágmarksfjölda í áföngum eins og þær
kunna að verða settar á hverjum tíma.
Hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir beindi til mín mörgum spurningum og ég segi alveg eins og er að ég hefði alveg getað þegið það að fá þær áður en umræðan hófst. Ég sá að hv. þm. var með þetta skrifað hjá sér og ég kannast ekki við að ég hafi verið svo viðskotaillur hér við stjórnarandstöðuna í þessari deild að ekki sé óhætt að rétta mér blöð með skrifuðum textum. En ég skal reyna að svara eftir bestu getu.
Í fyrsta lagi spurði hv. þm. um það í þessu sambandi hvað menntmrh. hefði lagt til varðandi þá deilu sem stendur yfir. Með hvaða hætti, er fyrsta spurningin, hyggst menntmrh. beita sér fyrir því að kennarar fáist til starfa við skóla landsins í haust og í framtíðinni? Þetta er náttúrlega afar létt og þægileg spurning í knöppum tíma í hv. deild. En í þessum efnum höfum við auðvitað --- og af því að hún minntist á leiðbeinendur og stöðuna úti á landi, hvað við hefðum gert í þeim efnum? Ýmislegt. Ég ætla að nefna eitt dæmi. Við erum að undirbúa það sem heitir dreifð og sveigjanleg kennaramenntun. Við erum að flytja Kennaraháskólann út á land. Við höfum ákveðið að taka upp starfsleikninám fyrir grunnskólakennara þannig að í því verða á þessu og næsta ári 240
grunnskólakennarar. Við höfum ákveðið að hefja sérkennslunám fyrir sérkennara á Norðurlandi á þessu ári, sams konar og hefur verið núna að undanförnu á Austurlandi. Þetta hefur verið gert og þetta eru mjög stór atriði. Hins vegar þýðir ekki fyrir einn eða neinn að ætlast til þess að núv. menntmrh. leysi þessi mál hér og nú. Það er verið að vinna að þessum málum með þeim hætti m.a. sem ég hef gert grein fyrir og get gert grein fyrir ítarlegar þegar aðstæður leyfa.
Í öðru lagi er spurt: Hvaða tillögur hefur menntmrh. sem ábyrgur fagráðherra skólamála til lausnar þeirri kjaradeilu sem nú stendur yfir? Svarið er þetta: Auðvitað hlýtur kjaradeilan að því er kennarana varðar að taka mið af öðrum kjaradeilum og öðrum samningum sem gerðir hafa verið og kunna að verða gerðir. Ég get út af fyrir sig sagt það sem mína skoðun að ég tel að það hefði verið heppilegt frá sjónarmiði menntmrn. ef það tækist að gera heildarsamning við kennarastéttina í landinu, m.a. um kjör kennara og skólaþróunina almennt til lengri tíma. Ég tel að þetta gæti í raun og veru verið geysilega stórt og þýðingarmikið mál til þess að lyfta kjörum og sjálfsvirðingu kennarastéttarinnar í landinu.
Í þriðja lagi spyr hv. þm.: Hvernig ætlar ríkisstjórnin að stuðla að góðri menntun þjóðarinnar þannig að framtíðarlífskjör okkar séu tryggð? Ég held satt að segja að ég verði eiginlega að fá að ræða þetta við hv. þm. í annan tíma. Um þetta má segja svo fjölda, fjölda margt. Við höfum að undanförnu verið að fara yfir öll skólamál í þessu landi: forskóla, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, endurmenntun, háskóla. Og ég vil segja það við hv. þm.: Góð menntun þjóðarinnar í framtíðinni verður aldrei tryggð öðruvísi en að þjóðin eigi sér skólamálastefnu sem hún hefur sameinast um og það er það sem menntmrn. er að gera núna um þessar mundir. Það er verið að skapa eins og kostur er þjóðarsamstöðu um skólamálastefnu sem er til styrktar hvort heldur er í sókn eða vörn.
Hvað hyggst menntmrh. gera við skýrslur starfskjaranefndar frá 1987? Svarið er þetta: Þessar skýrslur starfskjaranefndar á auðvitað að taka upp á borðið í tengslum við þá kjarasamninga sem nú er verið að ræða um og það þarf að ganga þannig frá hlutum í þeim kjarasamningum, hvenær sem þeir verða gerðir, að það séu skýrir hlutir sem menn eru að tala um og þannig að menn eigi ekki eftirkaup hver við annan um þá samningsniðurstöðu sem kann að verða.
Í fimmta lagi er spurt: Hvernig verða mál þeirra nemenda sem ljúka eiga prófum í framhaldsskóla leyst ef deilan dregst enn á langinn? Ég tel mig þegar hafa svarað þessari fyrirspurn.
Í sjötta lagi er spurt: Hvernig verður staða skólanna í haust gagnvart því að taka inn nýja nemendur ef núverandi (Gripið fram í). --- Já, það er í raun og veru sama spurningin.
Loks er spurt: Hver er afstaða ráðherrans til hugmynda um þriggja ára kjarasamning? Ég segi það alveg eins og er að ef það væri hægt að ná
samkomulagi um þriggja ára kjarasamning, þá vildi ég gjarnan sjá eitthvað slíkt gerast. Hins vegar er alveg ljóst að það hefur verið gerður samningur við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og það er útilokað annað fyrir fjmrh. en að hafa hliðsjón af þeim samningi þegar hann er að ræða við Bandalag háskólamanna eða önnur samtök.
Varðandi niðurskurðinn sem hv. þm. spurði um er því til að svara: Ég hef sent öllum framhaldsskólum í landinu bréf þar sem bent er á ýmsar leiðir varðandi sparnað í framhaldsskólunum. Sömuleiðis hef ég sent fræðslustjórum bréf um þetta efni. Mér er fullkomlega ljóst að það er erfitt að ná fram þessum markmiðum á árinu 1989, en við munum reyna það eins og kostur er. Við munum auðvitað taka tillit til séraðstæðna þar sem um þær er að ræða og hlusta á röksemdir, en við reynum auðvitað að knýja fram þennan sparnað eins og Alþingi hefur ákveðið og byggist m.a. á því að menn hafa ekki treyst sér til
að leggja á viðbótarskatta, viðbót við það sem komið er --- og finnst víst mörgum nóg um --- og menn hafa heldur ekki treyst sér til þess að benda á aðrar leiðir varðandi sparnað í skólakerfinu eða annars staðar í ríkisbúskapnum þannig að þessi dómur er yfir okkur og við munum reyna að framkvæma hann eins og kostur er.