Flm. (Guðmundur Ágústsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þær umræður sem hér hafa verið nú og undanfarna daga, aðallega í síðustu viku, um frv. það sem ég flyt ásamt hv. 7. þm. Reykn. um breytingu á lögum um söluskatt. Það stóð nú ekki til að þetta frv. gæfi tilefni til almennrar umræðu um efnahagsmál, vaxtamál og gjaldeyrismál, en að sjálfsögðu kemur margt inn í þetta frv. þar sem þetta eitt sér hefur áhrif á aðra þætti.
Ég vil taka það skýrt fram hér að þær tölur sem koma fram í frv. eru unnar úr gögnum Þjóðhagsstofnunar, sem hún lagði fram í janúar upp á 2 milljarða 539 millj., og segja það að þetta miðast við eitt ár. Verði þetta frv. að lögum núna í apríl eða maí þá lækkar þessi fjárhæð að sjálfsögðu sem því nemur. Ef gildistökuákvæði laganna verður 1. júní þá er þarna ekki um að ræða nema 1,2--1,3 milljarða þannig að þær tölur sem fram komu í ræðu hæstv. forsrh. gætu því verið villandi.
Það var annað sem ég vildi koma inn á og það er staða iðnaðar hér á landi. Ég vil svara því sem kom fram í ræðu hæstv. forsrh. við fyrirspurn hv. þm. Júlíusar Sólnes. Ástæðan fyrir því hvað staða íslensks iðnaðar er slæm er ekki innflutningurinn heldur sú hvað fyrirtækjum sem starfa í samkeppnisiðnaði eru búin óviðunandi rekstrarskilyrði af hálfu ríkisvaldsins. Það er aðalatriðið. Það er ekki það hvort fyrirtækin geti framleitt og á viðunandi verði miðað við erlenda samkeppni ef skilyrðin eru þau sömu. Í mínum huga er of einfalt að segja að banna eigi innflutning vegna þess að hér eigi að halda uppi atvinnu. Þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið, m.a. af þessari ríkisstjórn, hafa einungis miðast við það að halda útflutningsatvinnugreinunum gangandi, en iðnaðarfyrirtækin hafa þurft að súpa seyðið af þeim ráðstöfunum.
Við sjáum þetta mjög vel þegar litið er á annan iðnað en smjörlíkisiðnað eins og tilefni var í þessari umræðu. Má þar nefna sælgætisiðnað, húsgagnaiðnað og fleira. Allur þessi iðnaður á undir högg að sækja vegna þess hve gengisskráningin er röng og hvað þau fyrirtæki sem starfa að þessum iðanði búa við erfið skilyrði, bæði varðandi skatta og það að gengið er þeim mjög óhagstætt.
En ég vil ítreka það, sem ég sagði hér í upphafi, að ég þakka þessa umræðu og vona, þar sem hæstv. forsrh. er nú búinn að lesa frv., að hann taki það til gaumgæfilegrar athugunar. Vonandi má það verða tilefni til umræðu í hæstv. ríkisstjórn og verða að lögum á þessu þingi.