Söluskattur
Föstudaginn 14. apríl 1989

     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Aðeins út af orðum hv. síðasta ræðumanns og flm. frv. þá vil ég vekja athygli á því að við töluðum báðir, hv. þm. Júlíus Sólnes og ég, um lækkun á ársgrundvelli, eða ég skildi það svo þegar hann ræddi um 2,8 milljarða og það gerði ég að sjálfsögðu einnig.
    En það sem hv. þm. sagði um erfiðleika iðnaðarins, þá tek ég undir það með honum að ég held að iðnaðurinn hafi þolað miklu verr fastgengistímann 1987--1988 því að hann naut ekki þess að hafa mesta afla í sögu þessarar þjóðar eins og sjávarútvegurinn hafði, um 15% meira aflaverðmæti en að meðaltali á áratugnum 1980 til dagsins í dag. En það er samt ekki hægt að segja að þessi ríkisstjórn hafi ekkert gert til aðstoðar iðnaðinum. Hún er búin að fella gengið um hvorki meira né minna en nálægt 15% þegar hvað reiknast ofan á annað. Það er satt að segja nokkuð meiri gengisfelling en ég hefði viljað sjá og við erum vitanlega í dag að súpa seyðið af því með verðbólgu og það kemur vitanlega öllum samkeppnisiðnaðinum til góða. Engu að síður er það eflaust rétt að raungengið, sérstaklega frá iðnaðinum séð, er of hátt.
    Út af orðum hv. þm. Halldórs Blöndals þá verð ég að segja það við herra forseta þessarar hv. deildar að mér er það satt að segja orðin hulin ráðgáta hvernig er hægt að stofna til almennrar umræðu um algjörlega óskyld mál undir næstum því hvaða máli sem er. Vitanlega er mér bæði ljúft og skylt að koma hér og svara fyrirspurnum um söluskatt þó að segja megi að það sé frekar fjmrh. þegar um söluskatt er verið að ræða. Nú hefur verið ákveðin utandagskrárumræða í Alþingi á mánudaginn um afkomu fiskvinnslunnar, gengisfellingar o.s.frv., sem er náttúrlega endurtekning á því sem við höfum rætt hér í allan vetur og ekkert nema gott um það að segja.
    Hv. þm. stóð upp og sagðist ekki sammála mér um vissa hluti. Það er alveg áreiðanlega rétt en það var um lækkun á matarskatti nú í sambandi við samningana. Við vorum sammála um að setja matarskattinn á og höfum síðan verið ósammála um allt og það kæmi mér afar mikið á óvart ef við værum sammála um eitt atriði eins og málin standa nú. Við samþykktum matarskattinn. Þessi ríkisstjórn er að leita leiða til að lækka verð á matvælum, annaðhvort með lækkun matarskatts eða eftir öðrum leiðum. Það er til alvarlegrar umræðu í ríkisstjórninni og þótt því miður að við misstigum okkur með því, við hv. þm. sameiginlega, að setja matarskattinn á, þá tekst þessari ríkisstjórn vonandi að bakka eitthvað út úr þessu háa matvælaverði.
    Síðan hóf hv. þm. að ræða gamalkunn málefni, um sjávarútveginn, um Hlutafjársjóðinn o.s.frv. Ég sagði að 31 fyrirtæki hefði sótt um aðstoð úr Hlutafjársjóðnum, það hefði farið fram gróf athugun á 15 fyrirtækjum og væri talið að það þyrfti að færa til þeirra um 2 milljarða samtals, ekki bara úr Hlutafjársjóðnum heldur líka úr Atvinnutryggingarsjóðnum, úr hagræðingardeild Atvinnutryggingarsjóðsins o.s.frv. þannig að þetta

hefur eitthvað misskilist. Ég held að ég megi fullyrða að það kemur ekki til mála að Hlutafjársjóðurinn leggi inn 2 milljarða í hlutafé í þessi fyrirtæki. Það er ekkert um það að ræða. Ég get því alls ekki svarað því á þessari stundu hvort nauðsynlegt kann að verða að auka að A-skírteinin sem njóta ríkisábyrgðar eitthvað umfram þær 600 milljónir sem þar eru. Það liggur ekkert fyrir um það á þessari stundu.
    Ég vil alls ekki gera svo lítið úr B-hluta skírteinum eins og hv. þm. gerir því að það liggur þegar fyrir að ýmsir bankar og sjóðir munu tapa umtalsverðu fjármagni ef til gjaldþrota þessara fyrirtækja kemur og það er engin ástæða til þess að ríkissjóður fari að ábyrgjast hlutafjáraðild slíkra sjóða eða slíks fjármagns sem væri að öðru leyti tapað. Þetta er náttúrlega hlutur sem stjórn Hlutafjársjóðsins mun væntanlega taka upp við viðkomandi sjóði og síðan meta.
    Hv. þm. sagði að ég hefði sagt að ljúka mundi greiðslum úr Verðjöfnunarsjóði og uppsöfnuðum söluskatti í lok maí. Ég sagði einnig að þar væri nokkurt fjármagn til til viðbótar og kæmi til greina að framlengja eitthvað greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði. Það er hlutur sem verður athugaður mjög gaumgæfilega þegar betur liggur fyrir þróun verðlags á erlendum mörkuðum og þannig heildarstaða atvinnugreinarinnar. Ég vil fullvissa hv. þm. um það að með þessu er fylgst mjög náið og líklega nánar en nokkru sinni fyrr. Það er gert af hálfu Þjóðhagsstofnunar alveg sérstaklega og verður eflaust nokkuð til umræðu hér á mánudaginn.
    Þessi ríkisstjórn hefur sannarlega engan hug á því að frystingin verði rekin með vonlausu tapi. Hins vegar er fjölmargs að gæta í því sambandi og fullyrðingar í dag um gengislækkun eða gengisfellingu eru alls ekki tímabærar. Ef allt fer á hinn versta veg, eins og ég sagði á þessum umrædda fundi í gær, engin verðhækkun erlendis o.s.frv., þá mun ríkisstjórnin taka upp viðræður um það, m.a. við aðila vinnumarkaðarins, hvernig eigi að mæta því. Þá getur vel verið að það þurfi að láta gengið eitthvað breytast og þá getur vel verið að talið verði skynsamlegt að verka á móti áhrifum þess á einhvern þann máta sem hér er verið að tala um. En það er bara alls ekki tímabært á þessari stundu að
vera að fullyrða eitt eða annað um það atriði.
    Hv. þm. spurði að því hvort láta ætti sjávarútveginn bera kostnaðaraukann, bæði af launasamningum og af hækkun fjármagnskostnaðar. Ríkisstjórnin vinnur að því að ná lækkun á fjármagnskostnaði eins og frekast er unnt og það var tekið skref núna um daginn með lækkun raunvaxta um hálfan af hundraði og fleiri skref verða tekin í náinni framtíð. Mæling á verðbólgu núna sýnir lækkun úr 3,2 í 2,2 í þessum mánuði og allt bendir til þess að verðbólga muni lækka áfram í næsta mánuði. Það er mat þeirra sem um þau mál fjalla svo það er á réttri leið. Þarna verður því að byggja á heildarmati á afkomu sjávarútvegsins en ekki á einstökum þáttum í því sambandi.
    Ég sá ekki að aðrar beinar spurningar væru til mín.

Hv. þm. talaði um 13% launahækkun hjá sjávarútveginum. Meðaltalshækkun á launum í þjóðfélaginu til áramóta, ef framkvæmd verður eins og í samningum ríkisins við BSRB, er um 8,5%. Það er vissulega aðeins umfram það sem þjóðhagsáætlun gerir ráð fyrir og veldur því eitthvað meiri erfiðleikum en þar kom fram. Meðalhækkunin hjá ríkisstarfsmönnum --- ég skal lýsa þessu aðeins nánar af því að ég sé að hv. þm. setur upp spurningarmerki --- meðalhækkunin hjá ríkisstarfsmönnum er 9,5% sem byggir á því að meðallaun þar eru 55 þús. kr. Meðallaun í þjóðfélaginu eru hins vegar 66 þús. kr. þannig að meðalhækkunin verður á grundvelli þessara meðallauna 8,5% ef framkvæmd er á þann máta. Hins vegar er náttúrlega mörgum samningum ólokið, vinnuveitendur standa í samningum o.s.frv. Þetta er aðeins vísbending um það hver þessi launahækkun gæti orðið miðað við það meðaltal sem er hjá BSRB.
    Ég skal ekki lengja þennan fund. Mér skilst að eigi að ljúka hér klukkan fimm og læt þessu máli mínu lokið.