Flm. (Þórhildur Þorleifsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég kem hér í stólinn rétt til þess að þakka fyrir þær undirtektir sem málið hefur fengið hér í hv. deild. Ég er alveg sammála því sem hæstv. menntmrh. segir hér um þær áherslur sem eru í íslensku menntakerfi, þ.e. hvort þær eru endilega réttar og hvort við þurfum ekki að taka þær til rækilegs endurmats, ekki síst þegar það er fram undan --- hvort sem verður byrjað á því næsta ár eða hvort það dregst lengur, þá er alveg ljóst að það stefnir í það að skóladagur verði lengdur hjá íslenskum skólabörnum og það má ekki verða neinum tilviljunum háð hvaða fög það verða sem þá hreppa það pláss sem skapast á stundaskrá. Það verður sjálfsagt hart barist þar um hverja stund og ég efa ekki að flestir vilja ná fram sem mestri lengingu eða aukningu í sínum greinum, en það er mjög mikilvægt þess vegna að það sé búið að marka þessa stefnu áður en til þessarar lengingar kemur þannig að það verði ekki neinum tilviljunum háð hvað þar fær forgöngu.
Ég held að sú áhersla sem verið hefur á bóknámi og tækni- og raunvísindanámi í skólum sé engin tilviljun. Það var vissulega þörf á þessu. Þjóðfélagið, eins og það hefur verið, í örri breytingu, hefur þurft á fólki að halda sem ræður yfir mjög góðri tækni- og raunvísindaþekkingu og það var í rauninni athyglisvert að fylgjast með því hvernig, mér liggur við að segja geta nemenda breyttist við það að kröfur breyttust í skólakerfi. Ég hugsa að við þekkjum flest goðsögnina um stærðfræðinga, það átti að vera meðfædd gáfa eingöngu. Annaðhvort voru menn stærðfræðingar eða voru ekki stærðfræðingar. Svo brá hins vegar skyndilega við þegar allt í einu varð miklu meiri eftirspurn eftir fólki með slíka þekkingu að miklu fleiri lögðu á þessa braut og reyndust vera stærðfræðingar, hvort sem það er nú meðfædd gáfa eða ekki. Á sama máta held ég að þurfi að fara að bregðast í dag við e.t.v. of mikilli tækni- og raunhyggju. Það kann alltaf að vera þannig að það myndist einhvers konar hugmyndafræðileg slagsíða í skólakerfum og í hugmyndakerfum, en ég held að það sé fyllilega tímabært núna að reyna aðeins að milda þann tæknilega hugsunarhátt sem því miður hefur orðið e.t.v. einum of ríkjandi í okkar þjóðfélagi og er auðvitað alls ekki því einu um að kenna að skólakerfið standi þannig að málum, heldur eru náttúrlega miklu, miklu fleiri þættir sem þar grípa inn í. En þörfin fyrir breyttar áherslur og aukið vægi svokallaðra húmanískra faga í skólakerfi er mikil.
Ég held líka að við megum ekki vera of sein að bregðast við ýmsum breytingum eins og t.d. notkun fjölmiðla og því hve þeir eiga stóran þátt núna í uppeldi og mótun barna. Ég held að við megum ekki bíða of lengi með að bregðast við þessu ástandi, heldur verðum við þarna að reyna að vera svo framsýn að við sjáum, svona eins og hægt er, fyrir fram hvaða afleiðingar það muni hafa þegar í rauninni íslensk börn hafa um árabil fengið sáralítið íslenskt efni, t.d. í fjölmiðlum sem þau sitja við löngum stundum. Við megum ekki ímynda okkur að það sé
meðfætt að skyndilega, einhvern tíma þegar sjónvarpsglápinu sleppir eða þegar það minnkar, fái þau áhuga á öllu því sem íslenskt er. Þann dag sem ekki nægilega margir hafa á því áhuga hvað íslenskt er, og hvað íslensk menning, íslensk tunga, íslensk arfleifð og saga er, er þjóðfélagið allt í stórri hættu.