Greiðslur úr ríkissjóði umfram heimildir
Föstudaginn 14. apríl 1989

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Ég held að það sé rétt að gera grein fyrir því að í fjvn. hefur umræða farið fram um aukafjárveitingar. Þar hefur á fundi með ráðherra verið rætt um þessa hluti og sá sem hér stendur gert honum grein fyrir því að hann telji að þær séu stjórnarskrárbrot og þær beri að afnema með öllu.
    Það er búið að samþykkja það í fjvn. að fá frá Háskólanum mann á fund nefndarinnar sem ætlað er að gera grein fyrir því hvort hann telji að texti stjórnarskrárinnar, eins og hann er skráður, haldi velli eða hvort búið sé að breyta þessu með hefðum. Sé búið að breyta því með hefðum, þá verður að sjálfsögðu að taka um það ákvörðun af Alþingi hvort við, eitt allra þinga, ætlum að samþykkja það að framkvæmdarvaldið fái í hendur vald sem önnur þing óumdeilanlega hafa.
    Ég lít svo á að í þessum efnum verði aldrei samin nein málamiðlun. Annaðhvort er fjárveitingavaldið Alþingis eða það er framkvæmdarvaldsins. Mér er ekki ljóst hvernig Alþingi Íslendinga getur haldið eðlilegri reisn gagnvart öðrum þjóðþingum ef það ætlar að afsala sér þessu valdi. Ég ætla því ekki að fara út í efnislega umræðu um það hvort --- ef sú ákvörðun væri tekin að þingið afsalaði sér þessu valdi --- þá bæri að setja upp lagatexta eins og hér er lagt til. Ég vil hreinlega ekki trúa því á þessu stigi að menn telji að þessu landi, með ekki fleiri íbúum, sé óstjórnandi nema fjmrh. hafi opið tékkhefti til útskrifta eins og honum sýnist. Því að menn verða að gera sér grein fyrir því að það sem hér er heimilað, samkvæmt þessum hugmyndum sem hér liggja fyrir, eru örugglega yfir 90% af öllum aukafjárveitingum sem fjmrh. veitir í anda þess sem hér er verið að tala um. Þær eru til framkvæmda sem einhverra hluta vegna er litið svo á að ekki þoli bið, launahækkana sem samið hefur verið um eða verðbólgu.
    Á fjmrh. að hafa frjálsar hendur um hvaða laun hann semur um? Og segja svo bara fimm mánuðum seinna: Þetta er samningsbundið. Ég verð að greiða þetta. Er það það sem menn eru að leggja til? Ég hreinlega trúi því ekki. Ég hreinlega trúi því ekki að mönnum detti það í hug.
    Þess vegna geri ég ráð fyrir því að þegar álit Háskólans liggur fyrir, þá verði rétt að taka aftur upp þráðinn við fjmrh. í þessum efnum og þá verður líka að meta það hvort menn una stjórnarskrárbreytingu sem átt hefur sér stað samkvæmt hefðum, ef það yrði þá niðurstaðan, eða hvort menn vilja gera tilraun til að breyta stjórnarskránni í samræmi við þann texta sem er í henni. Það verður að segjast eins og er að það er dálítið óþægilegt þegar maður vinnur eið að stjórnarskránni ef maður veit ekki hvort hinn skrifaði texti hennar er hinn rétti andi eða hvort búið er að gerbreyta henni með því að brjóta hana fram til þess dags sem menn vinna eiðinn. Ég held þess vegna að það sé alveg á hreinu að það hljóti að vera mjög þröngur rammi hefða sem getur gert það að verkum að það breyti stjórnarskránni.