Friðjón Þórðarson:
Virðulegi forseti. Ég sé ástæðu til að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu á þessari till. til þál. um gjafsóknarreglur. Þessi tillaga var flutt á síðasta þingi, en kom ekki til umræðu. Tillagan snertir endurskoðun á einum kafla einkamálalaganna nr. 85/1936. Þó að þau lög væru merk á sinni tíð og séu raunar enn er ekki úr vegi að líta á þessar reglur eftir rúma hálfa öld, en þær snerta að mínum dómi mikilvægan þátt þessara mála. Við vitum að allir eru jafnir fyrir lögunum, en það þarf líka að auðvelda efnalitlu fólki að ná rétti sínum að lögum. Að því lýtur þessi till. Ég ítreka þakkir mínar til hv. allshn.