Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Forseta láðist að geta þess í upphafi þessa fundar að að lokinni afgreiðslu 4. dagskrármáls hefjast umræður utan dagskrár sem hv. 1. þm. Suðurl. hefur óskað eftir og munu fjalla um ástandið í efnahags- og kjaramálum. Sú umræða var leyfð skv. síðari mgr. 32. gr. laga um þingsköp og því er tími ómældur.