Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Ég þakka svör forseta. Það er gott að fá upplýst hvernig þessum málum er háttað. En ég vek athygli á því að það var gert ráð fyrir tveim dögum í umræðu um skýrslu utanrrh. á sínum tíma og ég man ekki betur en í fyrra hafi líka verið tveir dagar sem hafi farið í það. Ég ótttast, þó ég sé ekki að lýsa því yfir að það taki endilega tvo daga núna, að það verði knappur tími að gera ráð fyrir að við ljúkum umræðu á morgun um skýrslu um utanríkismál. Ég vil koma því á framfæri við þessa umræðu.