Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti deilir þeim áhyggjum og þeim ótta með hv. 12. þm. Reykv., en það verður að fara sem fara vill. Náist ekki að ljúka þessari umræðu á morgun verður vitaskuld að halda henni áfram á næsta þingfundi. Það er alveg ljóst. En það verður ekki hægt n.k. miðvikudag og verður það því að bíða lengur.