Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Ég vil nú taka undir með hv. 12. þm. Reykv. í sambandi við ábendingar af hennar hálfu varðandi umræðu um utanríkismál og líka það, sem fram hefur komið hjá hæstv. forseta, að þetta setur þingstörfin í dálítinn vanda þegar svo stór mál eins og umræða um skýrslu utanrrh. fær ekki rúm í dagskránni eftir því sem ráð er fyrir gert, skýrslan raunar mjög seint fram komin miðað við það sem þyrfti að vera. Þó mun hún hafa borist þingflokkum um miðja síðustu viku í handriti og hefði kannski þess vegna mátt ræða málið á þessum degi.
Það kemur á óvart ef umræðan er flutt til vegna fjarvistar hæstv. utanrrh. sem er í landinu á þessum degi. Ég var á fundi þar sem hann var í utanrmn. þingsins í morgun svo að ég skil ekki í því að það hefði hindrað umræðuna hér í dag. En aðalatriðið er að þessi mál, utanríkismálin og skýrsla ráðherrans fái eðlilegt pláss í dagskrá þingsins eins og ég heyri raunar að er hugur forseta og það hefur verið gert ráð fyrir tveimur dögum til þessarar umræðu. Ég vona að það verði svigrúm til þess og tel ekki rétt að stefna að næturfundi um málaflokk af þessu tagi, ekki síst vegna þess að þingmenn eru önnum kafnir yfir daginn og upplýst hefur verið að hæstv. ráðherra sé að fara úr landi á miðvikudag, líklega miðvikudagsmorgni, og þarf sjálfsagt að fá smáhvíld einnig eins og þingmenn aðrir. Ég bið þingflokksformenn að taka tillit til þessa þegar þeir ráða ráðum síðar í dag um þennan þátt með forsetum.