Ástandið í efnahags- og kjaramálum
Mánudaginn 17. apríl 1989

     Stefán Valgeirsson:
    Virðulegi forseti. Mig undrar ekki þó að hv. 1. þm. Suðurl. biðji um utandagskrárumræður til að ræða ástandið í þjóðfélaginu. En mig undrar að hann skuli tala þannig að það sé allt af völdum þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr. Heldur hann virkilega að það sé hægt að endurtaka það nógu oft þannig að fólk fari að trúa því að umskiptin til hins verra hafi orðið með tilkomu þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr? Hvernig var viðskilnaður hjá fyrrv. forsrh. þegar hann fór frá í lok september sl.? Það hefur verið sagt frá því í blöðum og hér á Alþingi sem dæmi um hvernig umskiptin voru að eitt fyrirtæki sem hefði þénað 80 millj. 1986 og 1987 hefði tapað 90 millj. á fyrstu mánuðunum 1988. Ef nokkurn tímann hefur átt við að segja að það hafi verið móðuharðindi af mannavöldum á landsbyggðinni á það við ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar. En hvernig var þetta? Hvernig voru umskiptin?
    Þegar ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar tók við völdum voru vextir á ríkisvíxlum 20%, en voru komnir upp í 41,3% í desember og fóru upp í 43% í febrúar á sl. ári. Auðvitað er þetta skýringin, fyrst og fremst þetta, á því hvernig fór. Það þýðir ekki fyrir hv. 1. þm. Suðurl., fyrrv. forsrh., eða aðra að ætla að hlaupa frá þessu og reyna að láta fólk gleyma sögunni. Það er þýðingarlaust.
    Ég vil segja við síðasta hv. ræðumann að það er á ábyrgð okkar allra hvernig fer í þjóðmálum. Hv. kvennalistakonur bera sína ábyrgð eins og við hin. Það er ekki hægt að skorast undan því eða neita. Hver og einn þingmaður í þessari stöðu getur haft áhrif á úrslit mála hér og gert kröfur um breytingar og komið þeim e.t.v. fram. Við erum kjörin öll til að reyna að fylgja þeirri stefnu fram sem við boðuðum fyrir síðustu kosningar en ekki að setja kosningaloforðin niður í skúffu og loka henni þegar búið er að telja eða þora ekki að taka á málum og bera ábyrgð.
    Ég sagði þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar var mynduð að fyrrv. stuðningsmenn Þorsteins Pálssonar bæru allir ábyrgð á hvernig farið hefði. Á sama hátt bærum við ábyrgð á ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. En áður en lengra er haldið vil ég minna á að í mars 1988 skrifaði ég opið bréf til þings og þjóðar til að lýsa því hvernig ástandið væri og hverju við hefðum lofað. Ég ætla að koma með sýnishorn af því til upprifjunar. Það er nauðsynlegt að rifja upp til þess að menn athugi hvernig þróunin hefur verið.
    Það var sem sagt í mars 1988, þegar ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar var búin að koma vöxtunum, ríkisvöxtunum upp í 43%, að ég sagði:
Flokkarnir gáfu fyrirheit
um félagslegt jafnrétti í raun,
bæta aðstöðu í bæjum og sveit,
borga lífvænleg laun,
lækka verðbólgu og lánakjör,
loforðin mörg og góð.
Íhaldsstjórn var svo ykkur vör.
Eftir stóð þjóðin hljóð.

Fjármagnið sýgur framleiðsluna
og fátækan almenning.
Skattinn fræga á matinn muna
margir sem kjósa á þing.
    Umræðan í þessari ríkisstjórn var á þessa leið allan tímann. Ég rifja upp hvað ég sagði í áramótagrein minni, í lok hennar, gagnvart þeirri ríkisstjórn sem situr nú og ég ber að hluta til ábyrgð á. Og ég tek eftir því að það er fátt um ráðherra inni þegar þessi umræða um alvarlegustu mál þjóðarinnar ber á góma. Ég hef ekki séð nokkurn ráðherra t.d. Alþfl. hér inni og ég sé engan ráðherra nú. Ég sé þá ekki eða sjáið þið þá? Í lok þessarar greinar sagði ég, ég mun rifja upp, það stendur þannig, með leyfi forseta:
    ,,Ég sagði við myndun ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar að hægt væri að tryggja meiri hluta í báðum deildum Alþingis fyrir þeim málum sem nauðsynlegt væri að lögfesta ef þau væru á annað borð þannig að ég gæti staðið að samþykki þetta. Galdurinn er sá að meta aðstæður og einstaklinga og draga réttar ályktanir af stöðu mála, sem sagt heilbrigð skynsemi.
    Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar þarf engu að kvíða ef hún stendur við stjórnarsáttmálann og tekur verulega skref á fyrstu mánuðum þessa árs til réttlætisáttar. Náist ekki samstaða um það innan ríkisstjórnarliðsins er hætt við miklum átökum á vinnumarkaðnum og nýrri kollsteypu, vaxandi verðbólgu, meira misrétti eða áframhaldandi misrétti, þar með atvinnuleysi.
    Því þarf að taka á málum strax, koma hjólum framleiðslunnar af stað og tryggja henni rekstrargrundvöll. Endurskoða allt tekjuöflunarkerfi hins opinbera með það að markmiði að jafna lífskjörin og lífsaðstöðuna og fella niður matarskattinn af innlendri matvælaframleiðslu. Ef þjóðin sér og finnur að stjórnað er í anda jafnréttis og félagshyggju verður öllum kröfum stillt í hóf. En hér verða verkin að tala. Þá verður kröfum stillt í hóf og fyrir hendi verður meiri hluti í báðum deildum Alþingis fyrir slíkum breytingum. Því
stendur þjóðin á krossgötum. Framleiðslan og fyrirvinnufólkið í landinu mun sækja rétt sinn með verkföllum og hörðum kosningum á þessu ári ef ríkisstjórn og Alþingi tekur ekki á málum af raunsæi.``
    Þetta var sagt um síðustu áramót. Það hafa að vísu verið stigin skref til réttlætisáttar, en þau hafa því miður verið of fá. Það er ekki enn þá komið neitt verulegt skref í sambandi við lækkun vaxtanna og sannleikurinn er sá að grundvöllurinn sem framfærsluvísitalan er byggð á er hrein vitleysa. Það er hrein vitleysa að ef áfengi eða hvers kyns slíkar vörur hækka í innkaupum hækki skuldir launþeganna. Gengur þetta upp? Gengur það upp að miða meðaltekjurnar við langtum hærri laun, eins og gert var, en t.d. fyrirvinnustéttirnar sem ég kalla svo búa við? Verður ekki að haga þannig málum til að lágmarkstekjurnar dugi fyrir raunverulegri framfærslu og aðrar þjóðhagsstærðir séu miðaðar einmitt við það? Verður það ekki að vera krafan? Geta virkilega hv.

alþm. ekki samþykkt að fara þá leið? Eins og kom fram í þessum orðum sem ég las upp úr áramótagrein minni er komin reynsla á það að allt sem fyrrv. ríkisstjórn gerði í sambandi við tekjuöflunarbreytingar ríkisins hafi reynst illa og þarf að endurskoða og stokka það allt saman upp með það að markmiði að jafna lífsaðstöðuna í landinu.
    Ég sé að hæstv. forsrh. er kominn inn, en það er eini ráðherrann. Ég vil segja við hann að það er alveg rétt, sem var haldið fram eða sagt eftir honum á Kópavogsfundinum, að á næstu tveim mánuðum verður að gerast meira en hefur gerst á hinum mánuðunum. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar verður að komast upp úr hjólförunum hans Þorsteins Pálssonar, líka með afturhjólin.
    Ég er ekki viss um að það náist hóflegir samningar nema verði tekið til greina t.d. að endurskoða hinn illræmda matarskatt. Þegar Þorsteinn Pálsson, hv. 1. þm. Suðurl., var forsrh. var ekki verið að hugsa um ferðamannaþjónustuna þegar var verið að sprengja upp vextina. Það er orðið núna þegar hann ber ekki ábyrgð. En hann getur ekki eða aðrir þingmenn sem stóðu að þeirri ríkisstjórn þvegið hendur sínar eins og Pílatus forðum gerði.
    Nei, það verður að endurskoða þessar vísitölur. Ef á að byggja lánskjaravísitöluna á því. Það er ekki eðlilegt að launafólk uni því að fjármagnið sé vísitölutryggt ef launin eru það ekki. Það hljóta menn að sjá og skilja jafnvel þó þeir berjist fyrir hagsmunum fjármagnsins en ekki fyrirvinnufólksins eða hins fátæka manns nema fyrir kosningar.
    Ég ætlast til þess að sú ríkisstjórn sem ég styð reyni að koma sér saman um að gera eitthvað raunhæft og ég mun gera mitt til að reyna að ýta á bílinn upp úr skorningunum hans Þorsteins Pálssonar.