Ástandið í efnahags- og kjaramálum
Mánudaginn 17. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna orða hv. 5. þm. Austurl. um að ekki sé lokið umræðu um skýrslu forsrh. um stöðu og rekstur fiskvinnslufyrirtækja vill forseti upplýsa að það er alveg rétt. Þeirri umræðu varð að fresta vegna þess að beðið hafði verið um umræðu utan dagskrár um heræfingar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Síðan hefur það háð því að umræðan gæti haldið áfram að við misstum einn dag sem var sumardagurinn fyrsti og hér í dag hafa farið fram umræður utan dagskrár einnig þannig að ég mun reyna að sjá til þess að á næsta reglulega fundi í sameinuðu Alþingi verði reynt að ljúka þessari umræðu um stöðu og rekstur fiskvinnslufyrirtækja.