Ástandið í efnahags- og kjaramálum
Mánudaginn 17. apríl 1989

     Þorsteinn Pálsson:
    Frú forseti. Það er í sjálfu sér óþarfi að fara mörgum orðum um niðurstöðu þessarar umræðu sem hér hefur farið fram í dag. Hæstv. forsrh. hefur engin svör veitt við þeim spurningum sem hér voru bornar fram. Og ég hygg að það verði margir fyrir vonbrigðum jafnvel þó að ýmsir hafi gert sér grein fyrir því að þessi hæstv. ríkisstjórn væri komin að falli. Ég hygg að jafnvel sá þriðjungur kjósenda sem í síðustu skoðanakönnun taldi sig enn vera reiðubúinn að styðja hæstv. ríkisstjórn hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með ræðu hæstv. forsrh. sem í reynd fól í sér yfirlýsingu um það að hæstv. ríkisstjórn ætlaði ekkert að aðhafast til þess að bæta rekstrarstöðu atvinnuveganna, að hæstv. forsrh. ætlaði í reynd að beygja sig undir ögranir hæstv. fjmrh. í garð atvinnuvega landsmanna. Það hefur verið eftirtektarvert í þessari umræðu hér í dag að enginn af samráðherrum hæstv. forsrh. hefur treyst sér til að taka þátt í umræðunni, enginn þeirra hefur treyst sér til að hlýða á þessa umræðu, þeir eru allir fjarverandi umræðu um mesta lífshagsmunamál þjóðarinnar í dag. Hæstv. forsrh. hefur ekki fengið einn einasta utan Ólaf Þ. Þórðarson úr liði stjórnarflokkanna til þess að koma hér upp og veita sér liðsinni. Og hvernig var ræða hv. 2. þm. Vestf.? Hún var einn samfelldur reiðilestur yfir fyrri ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar.
    Hv. 2. þm. Vestf., sá eini sem varð við kalli hæstv. forsrh. um að koma hér upp, notaði þannig tækifærið til þess að ráðast á fyrri ríkisstjórn Steingríms Hermannsson, formanns Framsfl., en viðhafði við það þá aðferð sem Sovétmenn notuðu þegar þeir þurftu að koma höggi á Kína á sínum tíma, að skamma Albaníu. En boðskapur hv. þm. fór ekki fram hjá nokkrum manni. Það fór ekki fram hjá nokkrum manni að hverjum hv. 2. þm. Vestf. var að sneiða.
    Hæstv. forsrh. eyddi þó nokkrum tíma í að koma sér undan að svara fyrirspurnum hér í umræðunni í dag. Hann minnti á að í upphafi þessarar umræðu hefði verið sleppt að geta um forstjóra frystihúss á Þingeyri sem hefði tjáð hæstv. núv. forsrh. að forveri hans hefði gefið fyrirheit um aðgerðir á sl. hausti. Ég fór í heimsóknir í ákaflega mörg fiskvinnslufyrirtæki sl. sumar í öllum kjördæmum landsins, sennilega mikinn meiri hluta allra fiskvinnslufyrirtækja í landinu. Ég hafði þá trú þá að Framsfl. væri tilbúinn til þess að standa að nauðsynlegum aðgerðum til þess að bæta rekstrarstöðu undirstöðuatvinnuvega landsmanna. Því miður brást sú von. Framsfl. hafði áhuga á öðru en að standa að raunhæfum aðgerðum til þess að bæta rekstrarstöðu undirstöðuatvinnuveganna. Og það eru fleiri en ég sem urðu fyrir vonbrigðum með það. Það er greinilegt á þeim frásögnum sem forsrh. ber sjálfur af fundum sínum á vegum flokksfélaganna í framsókn að helstu forustumennirnir þar hafa líka orðið fyrir vonbrigðum.
    Hæstv. forsrh. fór nokkrum orðum um það að ekki hefði tekist að vinna gegn þenslu, spurði hér með nokkrum þjósti hvort það hefði tekist á árunum

1985--1987. Ég tek heils hugar undir þá gagnrýni sem fólst í þeirri spurningu. Það tókst ekki á þeim árum. En í tíð fyrri ríkisstjórnar var byrjað að beita aðhaldsaðgerðum með þeim árangri að umframeftirspurn eftir vinnuafli upp á 3000--4000 störf var komin í jafnvægi sl. haust. Það getur tekið á að vinda ofan af þenslu. Og það hlýtur að kosta sársauka. Það kostaði m.a. það að vaxtastigið í landinu varð um tíma hærra en góðu hófi gegnir þegar til lengri tíma er litið. En það var nauðsynlegt að beita slíkum aðgerðum til að ná þessu jafnvægi. Það tókst að koma jafnvægi á. Nú hefur núv. hæstv. ríkisstjórn snúið því jafnvægi yfir í hættu á verulegu atvinnuleysi.
    Hæstv. forsrh. sagði svo að það eina sem hefði valdið sjávarútveginum erfiðleikum væri vaxtastefnan. Hæstv. forsrh. er gjarn á að minna þjóðina á það að hann gleymi ýmsu úr núliðinni tíð. Man ekki hæstv. forsrh. að á síðasta ári gerðist það hvort tveggja að bandaríkjadollari féll og verð á erlendum mörkuðum var stöðugt að lækka frá upphafi árs og þangað til á haustmánuðum? Ætli þetta hafi ekki valdið sjávarútveginum neinum búsifjum? Ætli þetta hafi ekki valdið neinum erfiðleikum í sjávarútveginum? Auðvitað var það erfitt að þurfa að mæta ytri áföllum af þessu tagi á sama tíma og glíma þurfti við afleiðingar ofþenslu. Auðvitað gerði það vandann erfiðari, auðvitað kallaði það á meira úthald en ella hefði verið. En það brást hjá forustu Framsfl. Og nú er hæstv. forsrh. að hreykja sér af því að ríkisstjórnin ætli að koma í framkvæmd ákvæðum um takmörkun á verðtryggingu útlána til skamms tíma, sem ákvarðanir voru teknar um fyrir ári síðan. Það er tæplega stórmannlegt að koma hingað í dag og státa af því einu.
    Og heldur var hæstv. forsrh. seinheppinn þegar hann tók dæmi um frjálshyggjuna og vitnaði í formann Iðnrekendafélagsins sem lýst hafði okri í víxilviðskiptum. Það er satt og rétt að formaður Iðnrekendafélagsins hefur oft bent á þann viðskiptamáta sem viðgengst í samskiptum bankastofnana við atvinnufyrirtækin í víxlaviðskiptunum. En ætli það eigi einhverjar rætur að rekja til breytinga á bankalögunum frá 1986? Nei.
    Hæstv. forsrh. er gjarn á að vitna í ónafngreinda menn. Ég get sagt hæstv. forsrh. og rifjað upp fyrir honum vegna þess að löngu áður en bankalög voru
sett barst það mál í tal á ríkisstjórnarfundi í fyrri ríkisstjórn hans. En þá var einn af forustumönnum í atvinnurekstri landsmanna, forstöðumaður fyrir stórum atvinnurekstri, sem hafði haft orð á því að Búnaðarbankinn gerði hvorki meira né minna en 80% ávöxtunarkröfu í víxilviðskiptum við hans fyrirtæki undir bankaráðsforustu hv. þm. Stefáns Valgeirssonar og áður en vaxtafrelsislögin tóku gildi.
    Með öðrum orðum: Þessir óeðlilegu viðskiptahættir með víxla, sem ég hygg að Búnaðarbankinn hafi innleitt og aðrir bankar tekið upp á eftir honum, eiga ekkert skylt við þessi lög og lýsa einungis seinheppni hæstv. forsrh. í aumlegri varnarræðu hér í dag.

    Hæstv. ráðherra gat í engu svarað þeirri einföldu spurningu sem hér hefur verið borin fram: Með hliðsjón af verulegum halla í rekstri sjávarútvegs og iðnaðar ætlast hann til að atvinnufyrirtækin geri kjarasamninga um þær launahækkanir sem ríkisstjórnin hefur gert við opinbera starfsmenn? Eða ætlast hann til að atvinnufyrirtækin skjóti þeim málum á frest fram á haust og að starfsfólkið í atvinnufyrirtækjum og á almennum vinnumarkaði fái ekki launahækkun til samræmis við það sem hæstv. ríkisstjórn hefur mælt opinberum starfsmönnum? Er til of mikils mælst að hæstv. forsrh. svari þessari spurningu?
    Hæstv. sjútvrh. hafði kjark til þess að segja að þetta væri ekki hægt án aðgerða. En hæstv. forsrh. virðist ætla að taka hér undir ögranir hæstv. fjmrh. og segja við atvinnuvegina: Þetta eigið þið að gera án aðgerða. Þið eigið að semja miðað við þá stöðu sem þið eruð í. Og hver er sú staða? Ekki síst vegna þess að bæði hv. 2. þm. Vestf. og hv. 6. þm. Norðurl. e. hafa vikið að því hver rekstrarstaða fiskvinnslunnar var á síðasta ári. Þegar fyrrv. ríkisstjórn ræddi sl. haust um aðgerðir til þess að rétta við stöðu atvinnuveganna, þá var að mati Þjóðhagsstofnunar 6% halli, 5--6% halli á veiðum og vinnslu. Það lá fyrir þeirri ríkisstjórn tillaga um aðgerðir í efnahagsmálum sem hefði komið rekstri veiða og vinnslu í jafnvægi, upp á núllpunktinn, hefði komið rekstri frystingarinnar upp á núllpunktinn, úr 5--6% halla. En Framsfl. kaus að ná öðrum pólitískum markmiðum en þeim að standa að slíkum aðgerðum í þágu atvinnuveganna. Og hver voru þau markmið? Markmiðið var að gera hæstv. fjmrh. að stjórnanda í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Og hver er afleiðingin af því? Í hvaða sporum stöndum við í dag? Við stöndum í þeim sporum að rekstur á veiðum og vinnslu er enn í 5--6% halla miðað við stöðuna í dag. Með öðrum orðum: Við höfum eytt öllum þessum vetri án þess að nokkuð raunhæft hafi verið gert til þess að bæta rekstur útflutningsframleiðslunnar.
    Ég tek það enn og aftur fram að það var nauðsynlegt að standa að skuldbreytingum þó rétt hefði verið að gera það með öðrum hætti en hæstv. ríkisstjórn gerði. En hún hefur ekkert gert til þess að bæta rekstrarstöðu útflutningsframleiðslunnar. Að mati Þjóðhagsstofnunar stöndum við enn í sömu sporum. Og hverjar eru svo spár Þjóðhagsstofnunar um framhaldið? Spá Þjóðhagsstofnunar er sú að hallinn á veiðum og vinnslu verði kominn upp í 7--8% í júní og upp í 10% næsta haust. Og er nú Þjóðhagsstofnun ekki þekkt fyrir að draga upp dökkar spár, hvorki fyrir þessa hæstv. ríkisstjórn né aðrar.
    Þjóðhagsstofnun hefur metið þær aðstæður sem fiskvinnslan stendur frammi fyrir, metið þá kjarasamninga sem hún stendur frammi fyrir og hæstv. ríkisstjórn hefur óskað eftir að hún gerði án frekari aðgerða og umhverfi fiskvinnslunnar að öðru leyti. Með öðrum orðum er niðurstaðan sú að í haust verður halli fiskvinnslunnar orðinn 10% í staðinn fyrir 5--6%. Hann verður orðinn tvöfalt meiri en fyrir ári síðan. Það er spá Þjóðhagsstofnunar í dag í svarbréfi til

Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambands samvinnufélaganna að það verði í haust afraksturinn af ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, vinstri stjórn jafnréttis og félagshyggju, að hallarekstur sjávarútvegsfyrirtækjanna verði orðinn tvöfalt meiri en fyrir ári síðan. Og hæstv. forsrh. segir: Það á ekkert að gera. Það er eina svarið sem hann gefur. Og það er niðurstaða þessarar umræðu.
    Það hefur verið sýnt fram á það með skýrum rökum hér í dag að þó að rétt kunni að vera að einhver styrking verði á Evrópumarkaði, þá breytir það engu í grundvallaratriðum um rekstrarniðurstöðu sjávarútvegsins, enda viðurkennt og ekki mótmælt að í því afkomumati sem nú liggur fyrir hafi verið vanmetin þau áföll sem saltfiskvinnslan hefur orðið fyrir að undanförnu. Og það hefur komið skýrt fram að jafnvel þó að hæstv. ríkisstjórn næði vöxtunum meira niður, þá mundi það ekki breyta þessari niðurstöðu. Nafnvextirnir hækka dag frá degi. Raunvextirnir á verðtryggðum lánum hafa verið að lækka lítið eitt síðustu vikur vegna þess að hæstv. ríkisstjórn hefur misst tökin á því að fjármagna ríkissjóð innan lands og stefnir núna ríkissjóði í stórfelldar erlendar lántökur og hæstv. forsrh. hefur engin svör getað gefið við því hér í dag hvernig á að mæta þessari nýju aðstöðu ríkissjóðs sem er ástæðan fyrir því að það hefur komið nokkur slaki á fjármagnsmarkaðinn og vextir lækkað lítið eitt. Meginástæðan. Allir vita hver afleiðingin verður ef ekki verður tekið til hendi í þessu efni. Engin svör. Algjört ráðleysi. Þetta er sá boðskapur sem
hæstv. forsrh. vill að berist frá hæstv. ríkisstjórn, frá Alþingi út til þjóðarinnar. Enginn árangur í að bæta rekstrarstöðu fiskvinnslufyrirtækjanna, vaxandi halli og ef fram heldur sem horfir, tvöfalt meiri halli í haust þegar ríkisstjórnin heldur hugsanlega upp á eins árs afmæli sitt. Það er spádómur Þjóðhagsstofnunar um afrek þessarar hæstv. ríkisstjórnar. Hæstv. forsrh. kemur upp til þess eins að taka undir ögranir hæstv. fjmrh. í garð atvinnulífsins og starfsfólksins sem vinnur hjá fiskvinnslufyrirtækjunum og í iðnfyrirtækjunum og í verslununum og í ferðamannaþjónustunni. Finnst nú ekki hæstv. forsrh. að það sé kominn tími til að gefa hér skýrari svör?
    Það er til óskaplega lítils að gefa um það yfirlýsingar að á næstu tveimur mánuðum verði úr því skorið hver endalok þessarar stjórnar verða. Það er til ósköp lítils fyrir hæstv. forsrh. að vera að hóta sjálfum sér með þessum hætti og það er hálfbarnalegt þegar hv. 6. þm. Norðurl. e. er að flýja yfirlýsingar sínar með því að taka undir sjálfshótun hæstv. forsrh. í þessu efni. Það er kallað á skýr svör við þeim spurningum sem hér hafa verið bornar fram. Og það þýðir ekkert að ætla að koma sér undan því að svara með því að segja: Ef verðið hækkar ekki, þá ætlum við að leggja spilin á borðið fyrir launþega og forustumenn í atvinnurekstrinum. Þau spil liggja á borðinu í dag, hæstv. forsrh. Þau liggja á borðinu í dag frá Þjóðhagsstofnun, skýrt og skilmerkilega skráð. Aðilar vinnumarkaðarins sem eiga að ganga til

kjarasamninga vita nákvæmlega hvað er í þeim spilum. Og það er ögrun að segja: Við ætlum að ræða það hvað stendur á þessum spilum einhvern tíma í sumar því þessir aðilar standa frammi fyrir því í dag hvort fólkið á almennum vinnumarkaði á að fá sömu kjarabætur og opinberir starfsmenn. Það þýðir ekkert að segja við þetta fólk: Við ætlum að svara ykkur einhvern tíma í sumar. Það veit hvað stendur á spilunum. Það lokar ekki augunum fyrir staðreyndum þó að hæstv. ríkisstjórn kjósi að gera það í lengstu lög.