Egill Jónsson:
Herra forseti. Að því leyti get ég verið þakklátur hæstv. landbrh. að hann lýsti því hér yfir að það væri Alþingi sem mundi afgreiða þetta jarðræktarlagafrumvarp. Það var þannig helst á honum að skilja að það gæti nú farið svo að það yrði ekki eins ógeðfellt þegar búið væri að fjalla um það hér á þinginu eins og það er núna. Ef ég hef skilið hæstv. landbrh. rétt þá er þetta þó heldur í áttina.
Varðandi það sem hann hins vegar sagði hér, og var að tala um leiðréttingar í þeim efnum, um að ekki hefði verið tekið tillit til óska búnaðarþings, þá stend ég við það sem ég sagði í þeim efnum. Búnaðarþing bað hvergi um lið III eins og hann er hérna í jarðræktarlagafrumvarpinu. Það orðaði það ekki. Búnaðarþing bað um óbreytta löggjöf að þessu leyti. Búnaðarþing breytti þessu og Alþingi breytti þessu árið 1987 með því að færa til sömu upphæðar framlög á óbrotið eða fyrrum brotið land. Það var afstaða búnaðarþings þá og hún var lögfest. Það er því alveg grundvallarmisskilningur og það er hvergi minnst á það að búnaðarþing óski eftir að tekin verði upp einhver skömmtunarúthlutun á pólska vísu á ræktun í landinu.
Mér er eiginlega alveg óskiljanlegt hvað hæstv. landbrh. á erfitt með að átta sig á grundvallaratriðunum í þessu máli. Hæstv. ráðherra talar um það að önnur þörf sé fyrir ræktun nú en áður var. Þetta eru nú meiri vísindin. Þetta eru nú aldeilis vísindi. Hvað skyldi ræktunin vera mikil miðað við það sem var hér á árum áður? Sannleikurinn er nefnilega sá að það er ekki nema undir vissum kringumstæðum sem bændur brjóta land til ræktunar núna. Ég geri ráð fyrir að það sé svona *y1/5*y til *y1/7*y hluti af því sem var hér á árum áður sem hefur verið ræktað á síðustu árum. En það eru bara aðstæður fyrir hendi sem kalla á nákvæmlega sömu þörf nú í dag eins og var fyrir fimm, sex eða sjö árum. Nákvæmlega sömu aðstæður, t.d. þegar ungir menn taka við búum, þegar menn eru að hefja búskap, t.d. þar sem lönd og ræktun hafa verið í niðurníðslu og heppilegra er að bæta úr með því að byggja á nýrri ræktun. ( SkA: Þá nota þeir ákvæði III. gr.) Þar fyrir utan væri svo kannski ástæða til þess að vekja aðeins athygli hæstv. landbrh. á því að menn hafa verið að leita eftir því að finna betri leiðir til endurræktunar á túnum en verið hafa. T.d. hafa menn á Norðurlöndum farið út í það að spara vinnslu- og ræktunarkostnað vegna þess hve orkukostnaðurinn verður þá mikill og þess í stað hafa menn verið að þróa upp sérstakar sáðvélar sem fella niður fræið og fella niður kalkið án þess að umbylta landinu. Það er fjarri því að ég sé að segja að við eigum að taka upp þessar aðferðir, við höfum ekki prófað þær, nema lítillega hér í okkar landbúnaði, en sem betur fer þá má kannski ætla að það finnist ráð í þeim efnum. Það er alveg hárrétt, sem hæstv. landbrh. segir hér, að við þurfum að stórbæta túnin okkar. Og við stefndum nú ekki hærra í þeim efnum á búnaðarþingi með okkar tillögum en að það næðust fram breytingar í þeim
efnum eins og á hálfri öld. Það væri hægt að umskapa túnin eins og á einum 50 árum. Þetta er nú það sem við lögðum til. Þannig að því meira sem hæstv. landbrh. upplýsir hug sinn í þessum efnum þá kemur betur í ljós þessi stóri misskilningur sem þetta mál gengur fyrir.
Hann segir það, hæstv. landbrh., að þetta sé niðurstaða ríkisstjórnarinnar. Hann hefur ekki sagt að þetta sé niðurstaða stjórnarflokkanna, og það þótti mér vænt um að hann skyldi ekki segja. Og hann sagði það sem meira var að Alþingi hefði lokaorðið. Kannski verður þá lokaorðið þar að afgreiða ekki frv. Ég sé að hv. formaður landbn. Ed. horfir mikið og hlustar vel og það er góðs viti.
Ég endurtek það svo einu sinni enn sem ég sagði hér áðan að hæstv. landbrh. er ekki að fyrirbyggja það að það geti skort greiðslur til að gera upp jarðræktarframlög við bændur. Það er síður sen svo að hann sé að fyrirbyggja það. Ræktunin og starfið kemur til með að ganga áfram þrátt fyrir þessi þrælalög, þessi pólsku þrælalög. Auðvitað munu náttúrlega bændur landsins halda áfram að rækta og bæta jörðina. Það fæst kannski það góð reynsla út úr búfjártalningu með lögregluvaldi að hæstv. landbrh. ætli að útfæra það víðar, m.a. í sambandi við ræktunarmálin. Það hefur frést að það standi sums staðar illa á í loðdýrabúskapnum, þannig að það sé erfitt að telja um þessar mundir. Það mundi væntanlega ekki baga í sambandi við að mæla túnin. ( SkA: Með lögregluvaldi.) Með lögregluvaldi. Þannig að það getur vel verið að með einhverjum slíkum aðferðum, þrælaaðferðum, að banna mönnum að rækta, standi ekki endar út af. En auðvitað gerist það undir öðrum kringumstæðum því að þó það sé að sjálfsögðu skelfilegur hlutur ef bændur fá ekki greidd jarðræktarframlögin, ekki meiri peningur en það er, er það þó enn skelfilegra ef þeir hætta að rækta og bæta jörðina. Og það sýnir afturhaldshugsunina í þessu öllu saman að þróunarverkum og umbótum eigi nú að ljúka.
Eins og ég hef margoft sagt hér hafa bændur fellt þá þörf að breyttum aðstæðum og það þarf ekki neinn boðskap um það, hvorki frá hæstv. landbrh. né neinum öðrum. Þeir breyttu sínum markmiðum frá því sem áður var strax eftir að þeir fengu ramma til þess að vinna eftir. Svo get ég sagt hæstv. landbrh. það
í lokin að ég er alveg hreint óhræddur að tala við hann um hvert stefnir í framleiðslumálum landbúnaðarins. Og mér er alveg fullkomlega ljóst að í sauðfjárræktinni er þar vandi fyrir dyrum. En það breytir ekki því að það eigi að auka á þann vanda, það eigi að skapa enn meiri vanda með því að draga fyrir þróunarstarfsemi í landbúnaði. Það skiptir máli og þar skilur á milli skoðana minna og hæstv. landbrh. Að það á ekki að halda því stöðugt áfram að þjarma þeim mun meira að þessari grein því meira sem bændur landsins leggja sjálfir á sig, eins og hæstv. landbrh. er hér að tala fyrir. Svo er hins vegar fyrir að þakka og ég vil vekja athygli á því og undirstrika það alveg sérstaklega að ekki var gert ráð
fyrir að jafnvægi næðist í þessum málum fyrri en árið 1992. Og það er að sjálfsögðu ýmislegt sem á eftir að breytast og fer náttúrlega mikið eftir því hvernig verður farið með þau mál hér í landinu.
Ég geri ráð fyrir, ef svo fer sem hefur verið mikið imprað á af stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar, að það eigi að fara að flytja inn kjúklingakjöt, niðurgreitt kjúklingakjöt, ( SkA: Og smjörlíki.) geti hæglega farið svo að það dragi þannig úr kindakjötsneyslunni hér í landinu að til vandræða horfi. ( SkA: En frelsið á smjörlíkinu?) Það er alveg það gagnstæða. Ykkar gjörðin er sú sama að því leyti. ( SkA: Með smjörlíkið og frelsið?) Þannig að það er sannarlega hárrétt hjá hæstv. landbrh. að það er að ýmsu að hyggja í þeim efnum. Það er ekkert víst að það standi á mér, eins og hæstv. landbrh. var að tala um hér áðan, að hjálpa til við að fá bærilegustu niðurstöðu í þeim efnum. Það stóð heldur ekki á mér að fá líðanlega niðurstöðu gagnvart jarðræktarlögunum. Það stóð heldur ekki á félögum mínum á búnaðarþingi að sú niðurstaða fengist. Það stóð á ríkisstjórninni. Og þegar menn eru að kalla til liðs við sig aðra menn, sem út af fyrir sig er ekki nema eðlilegt því að auðvitað eigum við margir skyldur í þessum efnum þótt við sitjum ekki sömu megin við stjórnarborðið, þá þýðir það ekki þegar menn bila sjálfir þegar mest á reynir, eins og í sambandi við jarðræktarlögin, búfjárræktarlögin, skógræktarlögin og reyndar allt það sem við lögðum vinnu í á búnaðarþingi. Það þýðir ekki að ætla að kalla menn til liðs við sig og fá stuðning þegar menn bila sjálfir. ( Gripið fram í: Þá þurfa menn nú mest á því að halda.) Það þjónar ekki tilgangi. Og það er af þeirri ástæðu sem ég sagði hér áðan að jarðræktarlögin eins og þau komu frá búnaðarþingi, af því að nú hefur reyndar verið upplýst að ríkisstjórnin hafi hafnað því í heild sinni, að frv. er ekki orðið samningsgrundvöllur. Landbrh. hæstv. verður því að treysta á stuðningslið ríkisstjórnarinnar við að koma málinu áfram. Það er búið að skella dyrum á ýmsa þá sem gjarnan hefðu viljað vera hæstv. landbrh. til liðs í þessu máli. Þannig verður það í fleiri málum sem varða íslenskan landbúnað að ef forustan heldur áfram að bregðast með sama hætti og nú hefur gerst og þrátt fyrir öll stóru orðin og miklu fyrirheitin þýðir ekki að kalla á bændur landsins til stuðnings, hvorki þann sem hér talar né annan.