Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um Framleiðnisjóð landbúnaðarins, nr. 89 frá 17. des. 1966, sbr. lög nr. 77/1972. Þetta er þskj. 825.
Frv. inniheldur fimm greinar og felur hin fyrsta í sér breytingu á stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Ákvæði laganna frá 1966 og 1972 eru nokkuð úr sér gengin hvað þetta atriði snertir þar sem m.a. er gert ráð fyrir því í gildandi lögum að stofnun sem lögð hefur verið niður, Framkvæmdastofnun Íslands, tilnefni mann í stjórn. Fleira má til nefna sem gerir það að verkum að eðlilegt hlýtur að teljast að þessum ákvæðum sé breytt.
Samkvæmt 2. gr. laga nr. 89 frá 17. des. 1966 tilnefna eftirtaldir aðilar einn mann í stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins: Búnaðarfélag Íslands, Stéttarsamband bænda, stjórn Búnaðarbanka Íslands og stjórn Framkvæmdastofnunar Íslands. Frv. þetta gerir ráð fyrir að fjölgað verði um tvo fulltrúa í stjórn sjóðsins þannig að sameinað Alþingi kjósi þrjá menn hlutbundinni kosningu, sem er nýmæli, stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins tilnefni einn fulltrúa í stað stjórnar Búnaðarbankans áður og Búnaðarfélag Íslands og Stéttarsamband bænda tilnefni hvort sinn fulltrúa. Þá hefur Framkvæmdastofnun ríkisins verið lögð niður og Byggðastofnun tekið við ýmsum verkefnum hennar.
Framleiðnisjóði landbúnaðarins er nú, eins og menn vita, tryggt fjármagn úr ríkissjóði sem ákveðið hlutfall af heildarverðmæti búvöruframleiðslunnar, eða 4% skv. 2. mgr. 37. gr. laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Er það breyting frá því sem gilti fyrir gildistöku búvörulaganna. Jafnframt hefur fjmrn. nú tekið beinan þátt í gerð búvörusamninga ríkisstjórnar og Stéttarsambands bænda. Með tilliti til allra þessara breytinga og þess viðamikla hlutverks sem Framleiðnisjóði landbúnaðarins og stjórn hans hefur verið fengið þykir rétt að breyta ákvæðum um stjórn sjóðsins þannig að sameinað Alþingi kjósi þrjá menn í stjórn. Þetta tryggir m.a. það, sem oft hefur verið bent á, að bæði stjórn og stjórnarandstaða eigi tryggðan aðgang að þessari sjóðsstjórn.
Þá þykir eðlilegt og sjálfsagt að stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins tilnefni fulltrúa í stjórn Framleiðnisjóðs í stað stjórnar Búnaðarbankans áður m.a. vegna þeirra breytinga sem urðu á yfirstjórn bankans við gildistöku laga um viðskiptabanka, nr. 86/1985. Það hlyti að teljast óeðlilegt að stjórn Búnaðarbankans færi áfram með þetta hlutverk.
Breytingar þær sem um er fjallað í 2., 3. og 4. gr. frv. og lúta aðallega að breytingum á 5. og 6. gr. núgildandi laga, að því er varðar umsjón með sjóðnum og endurskoðun reikninga hans, verða að teljast eðlilegar í framhaldi af þeim breytingum sem lagðar eru til á skipan stjórnar sjóðsins, sbr. 2. gr. núgildandi laga og 1. gr. þessa frv. Fordæmum fyrir því að sjóðir af þessu tagi sem tengjast atvinnuvegum séu í umsjón Byggðastofnunar hefur farið fjölgandi og
má þar nefna ákvæði bráðabirgðalaga nr. 82 frá 28. sept. 1988, um Atvinnutryggingasjóð útflutningsgreina. Af ýmsum öðrum ástæðum má einnig telja rök fyrir því að tengja Framleiðnisjóð enn frekar Byggðastofnun en nú er. Má þar m.a. nefna það hlutverk sem Framleiðnisjóði er falið, þ.e. að stuðla að atvinnuuppbyggingu í sveitum með því fjármagni sem honum er ætlað á grundvelli búvörulaganna.
Síðan eru í frv. ákvæði sem lúta að því að Ríkisendurskoðun skuli annast endurskoðun reikninga Framleiðnisjóðs. Þar eru á ferðinni ákvæði sem hafa verið að koma inn í löggjöfina síðan Ríkisendurskoðun færðist undir Alþingi og má telja eðlilegt að það endurskoðunarhlutverk sé þar til heimilis.
Að öðru leyti tel ég að einstakar greinar frv. þarfnist ekki frekari skýringa því hér er í raun og veru ekki um veigamiklar breytingar að ræða. Fyrst og fremst er um að ræða eðlilega aðlögun stjórnar og starfrækslu Framleiðnisjóðs að breyttum tímum og aðstæðum. Vonast ég því til þess að frv. fái greiðan framgang í gegnum hið háa Alþingi og að lokinni þessari umræðu, herra forseti, legg ég til að málinu verði vísað til hv. landbn.