Egill Jónsson:
Herra forseti. Ég tel að sjálfsögðu fullkomlega eðlilegt að lögin um Framleiðnisjóð landbúnaðarins séu endurskoðuð. Það er hárrétt, sem fram kom í máli hæstv. landbrh., að það hafa ekki verið gerðar breytingar á þeim lögum frá því fyrir þann tíma sem sjóðurinn tók við því mikilvæga hlutverki sem hann hefur núna.
Ég á sæti í þeirri nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar og ég sé ekki neina ástæðu til þess að fjalla hér efnislega um málið í heild sinni. Ég vil t.d. hafa fyrirvara á því að það eigi að hýsa Framleiðnisjóð landbúnaðarins hjá Byggðastofnun. Menn vita að hún er á margan hátt að verða hálfgert eyðibýli og hennar verkefni eru komin til annarra sjóða þó svo að ágætir menn hafi þar farið með forræði mála. Eins hef ég efasemdir um að fulltrúi Stofnlánadeildar landbúnaðarins eigi að vera í stjórn sjóðsins. Það er langt síðan fulltrúi Búnaðarbankans hefði átt að vera farinn út úr sjóðsstjórninni og ég vil fá að skoða það nánar hvort einhver sérstök efni standi til þess að fulltrúi Stofnlánadeildarinnar sé þarna innan húss.
Að öðru leyti er eðlilegt að þetta mál fái greiða leið í gegnum þessa umræðu og það skýrist svo hver niðurstaðan verður úr nefndarstarfinu.