Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég er meðflm. að þessu máli og fyrst og fremst vegna þess að ég tel að hér sé um sanngirnismál að ræða. Það eru ekki margir einstaklingar sem lenda í slíkum óhöppum sem lýst er í grg. og reyndar í málsgrein frv. sem betur fer. En vandi þeirra getur verið mikill og honum hefur í raun alls ekki verið sinnt sem skyldi hér á landi hingað til. Það er þekkt víða erlendis að heilbrigðisstarfsfólk þarf að tryggja sig gagnvart slíkum mistökum. Það getur þó gengið út í öfgar. Hér er ekki um slíkt að ræða. Hér er fyrst og fremst um það að ræða að samfélagið tryggi þeim einstaklingum bætur sem fyrir slíkum óhöppum verða.
Ég tel að sú leið sem hér er stungið upp á sé mjög vel fær. Hún er eins og hér er sagt einungis ætluð um stuttan tíma þar til frekari löggjöf verður sett af hálfu stjórnvalda, t.d. um tryggingasjóð sjúklinga eða hver önnur leið sem verður valin. Ég held að þetta mál geti mjög vel náð fram að ganga á þessu þingi og engan veginn réttlætanlegt að heildarendurskoðun á almannatryggingalöggjöfinni verði látin tefja afgreiðslu þess.
Það er reyndar til mikils vansa hversu langan tíma hefur tekið að endurskoða þá löggjöf og ég vil minna hæstv. ráðherra á fsp. sem einmitt liggur fyrir þessu þingi, þ.e. það er spurst fyrir um það hvenær þessari endurskoðun muni ljúka. Fjölmörg mál koma hér inn á hverju þingi þar sem verið er að reyna að bæta almannatryggingalöggjöfina. Nær öllum er vísað til þeirrar nefndar sem stundar endurskoðunina. Hún hefur tekið allt of langan tíma og ég hlýt að skora á hæstv. ráðherra að hvetja það ágætis fólk og veita því póltískan byr til að ljúka þessu starfi. Ég held að það sé fyrst og fremst spurning um pólitískan vilja til þess að ljúka endurskoðuninni en ekki elju þess fólks sem hefur verið valið til þessara verka nú sem er allt ágætis fólk og hefur að ég held fullan hug á málinu.
Hvað varðar tæknilega útfærslu, þá er ég viss um að heilbr.- og trn. deildarinnar getur komið sér saman um og fundið niðurstöðu sem allir sætta sig við í þessum efnum. Það er aukaatriði í sjálfu sér undir hvaða lagagreinar þetta heyrir svo lengi sem bæturnar verða viðunandi fyrir þá sem lenda í slíkum óhöppum.
Ég ætla ekki að lengja mál mitt í þetta sinn en styð eindregið að eitthvað verði gert til að bæta úr í þessum efnum og skora á hæstv. ráðherra að beita sér fyrir því líka.