Almannatryggingar
Þriðjudaginn 18. apríl 1989

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Mér fannst ástæða til þess vegna orða hæstv. heilbrmrh. að bæta hér við smáathugasemd inn í þessa umræðu. Hæstv. ráðherra talaði um að hann teldi óheppilegt að gera breytingar eða taka einstök atriði út úr heildarlöggjöf, og þá eins og hér er verið að ræða um almannatryggingalögin. Ég er hreint ekki sammála þessu. Ég tel einmitt það vera oft mjög áhrifaríkt og gagnlegt að taka einstök atriði sem eru þýðingarmikil í viðkomandi löggjöf og leggja fram breytingar á þeim. Við höfum reynslu af slíkum litlum, einföldum frv. Ég gæti sjálf nefnt dæmi um slíkt. Ég hef flutt hér frv. lítil og stutt sem hafa látið lítið yfir sér en hafa farið hérna í gegnum þingið og fengið umræðu. Ég get nefnt kosningar á laugardögum í staðinn fyrir sunnudaga. Ég get nefnt stimpla fyrir blinda við að kjósa, breytingar á umferðarlögunum, bílbeltamálið, ljósafrumvarpið o.s.frv. Allt eru þetta atriði sem hafa farið hér í gegnum þingið einmitt kannski vegna þess að þau hafa verið tekin út úr heildarlöggjöf. Ég er því ekki sammála hæstv. ráðherra um að það geti verið óheppilegt að taka slík atriði út úr löggjöfinni og ég vildi koma þessu hér á framfæri.