Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegur forseti. Ég fagna því að hæstv. ráðherra skuli hafa tekið af skarið um afstöðu hans og framsóknarmanna til þessa máls. Því að þó að nokkrir ágætir framsóknarmenn séu á þessu frv. til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, þá var mér ekki alveg ljóst eftir fyrstu ræðu ráðherra hvert raunverulega stefndi með þetta mál. Ég þarf ekki að taka af tvímæli um hug sjálfstæðismanna til þess. Hv. þm. Salome Þorkelsdóttir hefur talað hér fyrir okkar hönd og lýst yfir stuðningi við þetta mál jafnframt þeim sem skrifa upp á þetta frv. Sjálfstfl. styður því eindregið að þetta frv. til laga verði samþykkt á yfirstandandi þingi og komi til framkvæmda sem fyrst.