Tollalög
Þriðjudaginn 18. apríl 1989

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Mér er sérstök ánægja að mæla fyrir þessu frv. sem felur í sér breytingar á tollalögunum. Við umræðu um það mál sem hér var til umræðu áðan var sagt að það ætti að flytja lítil og einföld frv. sem allir skildu og það er margt satt í því. Þetta stjfrv. sem hér er til umræðu er einmitt eitt af þeim frv. sem eru lítil og einföld og allir geta skilið á svipstundu.
    Í frv. er annars vegar verið að leggja til að Egilsstaðir verði gerðir að aðaltollhöfn og hins vegar að heimilt verði að reka verslanir með tollfrjálsar vörur á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Svo sem kunnugt er eru allar framkvæmdir við Egilsstaðaflugvöll miðaðar við að flugvöllurinn geti í framtíðinni þjónað sem alþjóðaflugvöllur í millilandaflugi. Í ljósi þessa hlutverks flugvallarins er eðlilegt að Egilsstaðir verði gerðir að aðaltollhöfn, en í því felst að heimilt er að veita förum í utanlandsferðum fyrstu og síðustu afgreiðslu hér á landi á viðkomandi stað. Auk þess má hvers konar tollmeðferð vöru fara þar fram.
    Þó að frv. sé einfalt er kannski rétt að geta þess til skýringar að meginmunurinn á aðaltollhöfn og tollhöfn er sá að samskipta- og brottfararleyfi eru aðeins gefin út frá aðaltollhöfnum. Slík leyfi eru ekki gefin út í tollhöfnum, en þar má hins vegar afferma ótollafgreiddar vörur, geyma þær og tollafgreiða án sérstakra heimilda. Skipan aðaltollhafnar er lögbundin en ákvarðanir um tollhafnir eru teknar með reglugerð.
    Það er einnig rétt að geta þess að ýmsir aðilar í ferðamannaiðnaði telja vaxandi líkur á beinu millilandaflugi milli Akureyrar annars vegar og Egilsstaðaflugvallar hins vegar og umheimsins. Í þessu frv. er lagt til að heimilað verði að flugvöllum þessum verði bætt í flokk þeirra flughafna þar sem reka má verslanir með tollfrjálsar vörur, svonefndar fríhafnarverslanir, en fyrir í þeim flokki eru Keflavíkurflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur. Ein af ástæðum þess að margir aðilar í ferðamannaiðnaði telja vaxandi líkur á beinu flugi með erlenda ferðamenn til Akureyrar og Egilsstaða er að hægt er að gera þær ferðir ódýrari fyrir erlenda ferðamenn ef millilendingu í Reykjavík og gistingu þar er sleppt, enda séu margir ferðamannahópar sem fyrst og fremst hafa áhuga á náttúrufegurð og merkisstöðum á Norðausturlandi, Norðurlandi og Austurlandi og er kærkomið fyrir þá að geta þess vegna flogið beint til Akureyrar og Egilsstaða. Jafnframt yrði það veigamikið skref í uppbyggingu landsbyggðarinnar og byggðaþáttar ferðamannaiðnaðarins að geta þróað beint millilandaflug og beina farþegaflutninga með ferðamenn milli Akureyrar og umheimsins og Egilsstaða og umheimsins.
    Rétt er þó að taka fram að engar ákvarðanir hafa verið teknar um rekstur fríhafna á þessum stöðum, en eðlilegt þykir að þær heimildir séu fyrir hendi ef á þarf að halda.
    Að svo mæltu, virðulegi forseti, mælist ég til þess að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og fjh.- og

viðskn.