Söluskattur
Þriðjudaginn 18. apríl 1989

     Flm. (Margrét Frímannsdóttir):
    Virðulegi forseti. Aðeins til þess að upplýsa nánar um nákvæmlega þetta atriði, þá hefur frv. verið flutt með vitund stjórnar samtaka garðyrkjubænda og þessi niðurstaða sem varð, að ég flytti frv. í því formi sem það er, er með samþykki þeirra og hæstv. fjmrh. Þessi listi liggur þegar fyrir með öllum þeim nöfnum sem ég nefndi hér áðan og hann er langur, mörg blöð, en hæstv. ráðherra hefur lýst yfir fullum vilja sínum til þess að setja vinnu í það strax ef af samþykkt frv. verður.