Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ja, nú er svolítið gaman. (Gripið fram í.) Já, fyrir utan það að sjónvarpið --- ég hélt að þeir mundu nú hætta um leið og konurnar færu hér úr ræðustólnum. ( DS: Þeir eru vanir að gera það þessir íslensku.) Já, þeir eru vanir að gera það. En nú er gaman segi ég enn á ný.
Fyrir rúmu ári síðan komu stjórnarliðar hér hver á fætur öðrum, sem þá voru, og útlistuðu það fyrir hv. alþm. hvað það væri nú fjarstæðukennt að vera með alls konar undanþágur frá söluskatti. Það yrði þess vegna að leggja á matarskatt o.s.frv. Hér koma síðan tvö frumvörp hvort á fætur öðru um ósk um undanþágu. ( KP: Þetta átti nú ekki við alla stjórnarliðana áðan.) Ekki kannski alveg alla, en það er nú sama. Þetta sýnir það að í þingmannahópnum eru bjartsýnismenn sem trúa á það að nú sé orðin breyting á, kominn fjmrh. sem er alveg til í það og veit það að það skiptir ekki svo miklu máli þó það sé svolítið af undanþágum. Það er alveg jafnauðvelt að innheimta söluskatt þó að svo sé og við vitum það að það hefur því miður allt of lítil breyting orðið á innheimtu söluskattsins þó að það hafi verið fallið frá undanþágunum. Það hefur sem sagt verið lagður á matarskattur og fleiri þættir söluskatts verið teknir inn í eða fleiri vörugreinar teknar og lagður á söluskattur. Mér finnst gaman að þessu að það skuli vera að koma hvert frv. á fætur öðru um það að byrja nú á blessuðum undanþágunum sem eru svo sjálfsagðar og mörg góðu málin og margir góðu þættirnir sem eru á þann veg að það er sjálfsagt að undanþiggja þá söluskatti. Og ég sem formaður landbn. tek nú sérstaklega undir það seinna, að undanþiggja sérstaklega garðyrkjuáhöld, og að það sé ekki nein mismunun á milli landbúnaðargreina, alveg sjálfsagður hlutur. Og ekki síður náttúrlega í sambandi við kennslubækurnar. (Gripið fram í.) Ja, það hefur kannski ekki verið athugað alveg nógu vel að muna eftir því, en við getum athugað það á morgun að koma með frv. um að undanþiggja hann. Þá fer þetta nú að komast allt í lag og þá förum við að geta hætt við þennan matarskatt.