Karl Steinar Guðnason:
Frú forseti. Það eru undur og stórmerki að gerast í þessari hv. þingdeild. Hér kemur hvert frv. á fætur öðru um undanþágur og niðurfellingu á söluskatti mitt í umræðunni um það að tekjur ríkissjóðs mættu vera meiri, tekjur ríkissjóðs væru kannski ekki nægar. Það væri kannski ástæða til þess að leggja í púkkið. Það væri ágætt að fá felldan niður söluskatt af vörum til sjávarútvegs, tógi og lyfturum og öðru slíku, það er hægt að halda svona áfram. Hér hefur verið talað um námsbækurnar og það hefur verið talað um garðyrkjuáhöld, garðyrkjutæki o.s.frv. Það væri ástæða til að fá viðbrögð við þessu. Og í framhaldi af þessum viljayfirlýsingum væri fróðlegt að vita hvort menn vita hvað þetta kostar. Hafa menn gert sér grein fyrir því hvað þetta kostar sem menn eru að tala svona ljúflega um? Ég er þeirrar skoðunar að undanþágur eigi að vera sem allra fæstar. Undanþágur skapa hvers konar spillingu og vitleysu, misgengi og klíkuskap. Hér kemur fólk upp líka sem hefur skoðanir eftir árum, eftir því á hvaða tíma ársins þeir taka afstöðu til mála. Þetta er allt mjög fróðlegt. Ég spyr um meiri fróðleik og það er: Hvað kostar þetta?