Flm. (Margrét Frímannsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég kem hér aðeins til þess að ítreka fyrri orð mín vegna þess að það hafa komið fram spurningar um það hvað þessi niðurfelling kosti. Niðurfelling á söluskatti á ákveðnum aðföngum fyrir landbúnað á sér stað núna. Garðyrkjubændur búa hins vegar við það að þurfa að sækja sérstaklega um niðurfellinguna vegna þess að tæki sem söluskattur er felldur niður af innan hefðbundinna landbúnaðargreina eru söluskattsskyld innan garðyrkjunnar. Má t.d. nefna að skítadreifari, áburðardreifari sem heitir allt öðru nafni hjá garðyrkjubændum, nýtur niðurfellingar innan hefðbundinna búgreina en ekki hjá garðyrkjubændum. Þeir hafa því ekki setið við sama borð og aðrir innan landbúnaðarins og það er vegna þess sem frv. er fram borið. Hér er ekki um neina spillingu að ræða, enda er spilling falin í einhverju sem maður vill ekki koma með upp á yfirborðið, en hér er verið að draga það upp á yfirborðið að garðyrkjubændur sitja ekki við sama borð og aðrir hvað varðar niðurfellingu á söluskatti og aðföngum fyrir garðyrkju. Þeir sitja heldur ekki við sama borð og aðrir hvað varðar samkeppni og innflutning á þeim vörum sem þeir framleiða. Það er bannað að flytja inn vörur sem framleiddar eru innan hefðbundinna búgreina. Það er hins vegar ekki bann við innflutningi þeirrar vöru sem garðyrkjubændur framleiða, því miður. Með þessu frv. er aðeins verið að reyna að grynnka á því óréttlæti sem þeir búa við og verið að setja inn í lög það sem í raun og veru er þegar að hluta framkvæmt.
Ég ætla ekki að fara að bera saman niðurfellingu á söluskatti og fyrirgreiðslu innan ýmissa atvinnugreina, en ég er sannfærð um að garðyrkjubændur kæmu vel út úr þeim samanburði. Þeir hafa ekki fengið þá fyrirgreiðslu hér hvorki hjá þessari ríkisstjórn né öðrum sem á undan hafa setið að þeir þoli ekki að samanburður sé gerður hvort sem er úr ræðustól á Alþingi eða annars staðar.
Þetta frv. lætur ekki mikið yfir sér en ég vona að hv. þm. þessarar deildar styðji það vegna þess að hér er um réttlætismál að ræða.