Karvel Pálmason:
Virðulegi forseti. Það hvarflar stundum að manni hér undir umræðum að maður sé orðinn hálfruglaður. Hér kemur nú nánast í sömu vikunni upp hver þingmaðurinn á fætur öðrum sem studdu matarskattinn á sínum tíma en vilja nú fara að breyta. Nú vilja menn undanþágu. Ég man ekki betur en hv. 14. þm. Reykv. Guðmundur H. Garðarsson hafi staðið í ströngu hér að greiða atkvæði með matarskattinum. Og ég man ekki betur en framsóknarmenn hafi gert það líka. Eini svarti sauðurinn í stjórnarflokkunum þá gagnvart matarskattinum var sá sem hér stendur. Svo koma menn núna ... ( SalÞ: Sem koma upp á yfirborðið.) sem koma upp á yfirborðið? Já. Ekki er það nú betri skýring, að menn hafi bara róið undir einhvers staðar, ekki verið að láta skoðunina koma í ljós. Það er slæmt fyrir hv. þm. ef þeir eru allt annarrar skoðunar en þeir segja. ( SalÞ: Hefur komið í ljós.) Já, núna. ( SalÞ: Nei, líka áður.) Nei, hún hefur ekki komið í ljós því að hefðu t.d. sjálfstæðismenn staðið gegn matarskattinum, þá hefði hann ekki verið lagður á. Hefðu framsóknarmenn gert það, þá hefði hann ekki verið lagður á. Því miður voru of margir þingmenn Alþfl. sem stóðu að því. ( GHG: Og börðust fyrir honum.) Ég sagði of margir. En það var þó ein undantekning. Og nú eru menn að komast að raun um það að þessi eini hafði þá rétt fyrir sér. Núna rúmu ári síðar. Þannig að ég fer að halda það oft og tíðum, enda kannski kominn á þann aldur, að maður sé farinn að ruglast hér innan dyra.
En það var ekki þetta sem ég ætlaði aðallega að tala um. Ég ætla að bæta aðeins inn í umræðuna um undanþágumálin. Ég veit ekki betur en að það liggi á borði hæstv. fjmrh. --- og þó hann tali í símann, þá veit ég að hann heyrir með hinu eyranu --- ég veit ekki betur en það liggi á borði hæstv. fjmrh. undirskriftaóskir um það að fella niður söluskatt af nudd- og baðstofum. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig hyggst hann taka á því máli? Ég held að það eigi vel við hér í þessari umræðu, ég tala nú ekki um þegar slík ósk er komin fram á undirskriftalistum. Auðvitað mætti telja til fleira en hér hefur verið talað um sem félli undir það að það þyrfti að mismuna. Menn geta notað hvaða orð sem þeir vilja, hvort þeir telja það klíkuskap eða hvað. En það þyrfti að mismuna. Það er töluvert af slíkum tilvikum sem er nauðsynlegt kannski að mismuna með.
Ég skal ekki, virðulegi forseti, lengja þetta. En ég vildi gjarnan fá upplýsingar um það frá hæstv. fjmrh. hvort hann hefur þennan undirskriftalista undir höndum og sé svo, hvernig hann hyggst þá á honum taka og afgreiða það.