Söluskattur
Þriðjudaginn 18. apríl 1989

     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Ég þakka nú guði fyrir það að enn skuli vera hér þingræði, virkt, ég var farinn að óttast það um tíma að hæstv. fjmrh. mundi geysast upp og flytja hér klukkutíma ræðu eða lengri.
    Ég ætla að fá að bera af mér eða réttara sagt gera hér athugasemd við ræðu hv. þm. Karls Steinars Guðnasonar, sem situr núna í forsetastóli, út af ummælum hans og hvernig hann hagaði orðum sínum áðan í sambandi við það sem ég hafði sagt hér fyrr í dag. Það er ansi hart, svo ekki sé meira sagt, ef þingmenn mega ekki skýra satt og rétt frá því sem þeir hafa sagt hér í deildinni og aðhafst án þess að á þá sé ráðist með þeim hætti sem hv. þm. gerði áðan og líkti mönnum, ja, ég ætla ekki að hafa það eftir. Ég vona að hv. þm. sem situr nú sem hæstv. forseti eigi eftir að iðrast orða sinna að vitna þannig til Biblíunnar. En hann um það. Ég verð að segja það, hæstv. forseti, það er mjög hart að vita það að sumir hv. þm. Alþfl. hér í þessari deild gjörsamlega umturnast í hvert einasta skipti sem það er rifjað upp með hvaða hætti söluskattur var samþykktur hér á hinu háa Alþingi á síðasta þingi og með hvaða hætti þáv. hæstv. fjmrh. keyrði hér í gegnum deildir þingsins frv. til laga um virðisaukaskatt.
    Ég endurtek það hvernig núv. formaður Alþfl., þáv. hæstv. fjmrh. og núv. hæstv. utanrrh., keyrði hér í gegnum þingið, í gegnum stjórnarflokkana þáverandi, Framsfl. og Sjálfstfl., hvernig hann keyrði í gegn söluskattsfrv. og seinna virðisaukaskattsfrv. Þá gerðist það í deildinni, og það var það sem ég var að rifja upp hér áðan, og hv. þm. þoldi ekki að heyra það, þá gerðist það að ég ásamt fleiri sjálfstæðismönnum, við risum hér upp í deildinni, og einn hv. alþýðuflokksmaður, Karvel Pálmason, við risum hér upp í deildinni þegar við vorum búnir að láta hafa okkur í það að samþykkja til bráðabirgða söluskattinn, hann átti að gilda til 1. júlí 1989 en þegar við sáum hvert stefndi í sambandi við virðisaukaskattsfrv., þá risum við hér upp í deildinni og mótmæltum. (Gripið fram í.) Og við gerðum meira en að mótmæla. (Gripið fram í.) Ég mótmælti virðisaukaskattsfrv. og ég greiddi því ekki atkvæði. ( KSG: Söluskattsfrv.) Virðisaukaskattsfrv. Ég held að hv. þm. ætti að lesa þingtíðindin. Ég greiddi atkvæði með söluskattsfrv. Það er rétt. Það var bráðabirgðaráðstöfun sem átti að vera til 1. júlí. Það gerði ég með þeim fyrirvara að þegar virðisaukaskattsfrv. sem varð að lögum kæmi til framkvæmda 1. júlí þá yrði annað skattþrep vegna matvæla, lægra. Ég veit að margir hv. þm. sem eru hér inni minnast þess sem þá gerðist. Ég held því að hv. þm. ætti að spara sér það að vitna í Biblíuna með þeim --- ég vil segja óviðeigandi hætti, eins og hann gerði hér áðan. Ef hann þorir ekki að heyra sannleikann þá er það verst fyrir hann.
    Ég vil svo segja það að þegar hv. þm. Karl Steinar leyfir sér að segja það að það sé ekkert að marka Sjálfstfl. og sjálfstæðismenn í sambandi við mál hér á þingi. Ég mótmæli þessu. Ég mótmæli því. Það hefur verið annað hljóð í strokknum hjá ágætum

þingmönnum Alþfl. þegar þeir hafa þurft að leita til okkar sjálfstæðismanna um samstarf á hinum ýmsu sviðum. En það er von að þeir örvænti í þeirri stöðu sem þeir eru komnir í í dag. En það fannst mér athyglisvert að þegar hv. þm. Karl Steinar talaði og úthrópaði Sjálfstfl., þá hrópaði hæstv. fjmrh.: Heyr, allt rétt. Og hæst kallaði hann fram í þegar hv. þm. Karl Steinar sagði að það væri ekkert atvinnuleysi hér á Íslandi, eða ekki sem teljandi væri. Það væru engir 5000 eða 10.000 atvinnuleysingjar. En er ekki nóg að það séu 2500--3000? (Gripið fram í.) Er það ekki nóg fyrir verkalýðsforingja Alþfl. að það skuli vera 2500 manns á skrá nú þegar? Og stefnir í það, hv. þm., að það verði ekki 2500 innan mánaðar, það verða 7000--8000 þegar unga fólkið kemur úr skólunum til þess að leita sér að atvinnu. Hvað hefur hæstv. ríkisstjórn gert í þeim efnum að tryggja þessu fólki atvinnu í sumar? Ég held að hv. þm. Karl Steinar, verkalýðsforingi, ætti að tala varlega. (Gripið fram í.) Hvað sagði hv. þm.? ( MF: 15 millj. í landgræðslu.) Ég vildi óska þess að þessar 15 milljónir mundu duga til þess að tryggja það að öll þessi ungmenni sem eru að koma inn á vinnumarkaðinn fengju atvinnu. En því miður verð ég að segja það að reynslan kennir mér það að það dugar lítið að setja 15 millj. í landgræðslu til þess að forða því atvinnuleysi sem við stöndum frammi fyrir. (Gripið fram í.) Ég veit að hv. þm. Margrét Frímannsdóttir veit að það sem ég er að segja um atvinnuástand og framtíðarhorfur í þeim efnum er miklu, miklu alvarlegra heldur en hæstv. ríkisstjórn vill viðurkenna. ( KP: Hvar skyldi þessi landgræðsla verða?) Hún verður örugglega ekki á Vestfjörðum, hv. þm. Karvel Pálmason, þannig að unga fólkið þar mun ganga um atvinnulaust ef ekki verður stefnubreyting.
    Virðulegi forseti. Ég skal ekki misnota það að ég er kominn hér upp í þriðja skipti, en ég mótmæli því og ég harma það að jafnágætur maður og hv. þm. er, Karl Steinar, að hann skuli ekki hafa tekið eftir því að það eru 2500 manns á atvinnuleysisskrá. Einu sinni var ég staddur á fundi verkalýðssamtakanna í Bretlandi og þar stóð upp merkur breskur verkalýðsleiðtogi. Og hann sagði í umræðum um atvinnuleysi: Það að einn maður gengur atvinnulaus er nóg fyrir
mig. Það er 100% fyrir þann einstakling sem lendir í þeirri ógæfu. (Gripið fram í.) Þegar Sjálfstfl. stjórnaði hér þá var ekki atvinnuleysi. Það veit hv. þm. Karl Steinar, en því miður þegar flokkar ,,jafnréttis og félagshyggju`` tóku völdin, þá gleymdu þeir að standa við það sem þeir lofuðu, að tryggja undirstöður atvinnulífsins. Þeir gleymdu því og þeir hafa ekki gert neinar ráðstafanir til þess að tryggja stöðu atvinnuveganna. Við hlupum ekki frá neinum vanda vegna þess að vandinn var lítill þá borið saman við það hvernig hann er í dag.
    En það var annað sem réði því sérstaklega hvers vegna Alþfl. fór út úr ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar og við skulum ekki ræða það hér á þessu stigi. ( Fjmrh.: Þetta var nú engin ríkisstjórn.) Ég skil það vel að hæstv. fjmrh. skuli vera ánægður með þessa

ríkisstjórn en ég skil það ekki að hann sem formaður Alþb. skuli láta sér það í léttu rúmi liggja að það skuli vera 2500 atvinnuleysingjar á hávertíðinni og það stefnir í 5000--6000 manna atvinnuleysi innan tíðar. Ég skil ekki í hvaða heimi hæstv. ráðherra lifir. Ég segi það bara eins og er. Ég held að hæstv. ráðherra ætti að koma hér út í sjávarþorpin með okkur sem erum þó í tengslum við atvinnulífið og kynna sér það hvaða örvænting er þar meðal fólks sem lifir og starfar í sjávarútvegi og fiskiðnaði. Það er ekki nóg að stofna sjóði, Atvinnutryggingarsjóð og Hlutabréfasjóð, eða hvað það heitir, sem duga svo ekki til þess að tryggja undirstöður atvinnulífsins.
    Nei, virðulegi forseti, ég mótmæli því hvernig talað hefur verið um afstöðu einstakra þingmanna hér í deildinni eins og það hafi ekki gerst. Ég vil einnig mótmæla því að við sjálfstæðismenn séum sá flokkur sem fari ofan í buddu fátæka mannsins. Það var ekki Sjálfstfl. sem ákvað þá skatta sem núv. ríkisstjórn hefur verið að leggja á fólkið í landinu. ( Fjmrh.: Alla skatta sem eru á í dag.) Ekki var það Sjálfstfl. sem hafði frumkvæði um það að hækka hér bensín. Ekki er það Sjálfstfl. sem hefur verið að leggja á og hækka vörugjald á ýmsum veigamiklum vöruflokkum sem leggst með fullum þunga á neytendur í landinu, ég tala nú ekki um unga fólkið sem er að reyna að eignast íbúð, þar skiptir það hundruðum þúsunda hvað íbúðaverð hefur hækkað vegna hækkunar á vörugjaldi. Þetta flokkast kannski ekki undir það að fara ofan í buddu fátæka mannsins. Það er kannski ekki sama hver gerir það.
    En að lokum, virðulegi forseti, vil ég segja að mér fannst sérstaklega eftirtektarvert hjá hv. þm. Skúla Alexanderssyni þegar hann sagði að þessir þrír flokkar sem núna standa að ríkisstjórninni, þ.e. Framsfl., Alþfl. og Alþb., þegar þessi hv. þm. sagði: ,,Við tókum við hroðalegu búi 1988.`` Ég ætla að staldra við það og ljúka mínu máli með því að segja þetta:
    Hæstv. þáv. fjmrh., Jón Baldvin Hannibalsson, núv. hæstv. utanrrh., sem hefur mikið að gera í utanríkismálum þó hann fylgist nú ekki vel með varnar- og öryggismálum, það er annað mál, hann sagði á miðju síðasta ári að hallinn á ríkissjóði yrði ekki nema svona í kringum 800--1000 millj. kr. Flest þau plögg og skýrslur sem hann lagði fyrir ríkisstjórnina sem við, þáverandi stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar, fengum að sjá bentu til þess að þetta væri staðreynd. En hvað kom svo í ljós hjá þessum ágæta fjmrh.? Mér hefur skilist á hæstv. núv. fjmrh. að sá vandi sem hann hafi þurft að glíma við sem við fengum ekki að vita um, sem vorum þó stjórnarstuðningsmenn hæstv. þáv. fjmrh., að vandinn hafi ekki verið 800--1000 millj. heldur 3000--4000 millj. kr. Þetta er rétt, hv. þm. Karl Steinar Guðnason. Staðreyndin er sú að við vorum með fjmrh. í fyrrv. ríkisstjórn sem hafði ekki hugmynd um það hvað leið fjármálum ríkisins. Þetta var á ábyrgðarsviði þessa manns. Og það er ekki hægt að ásaka aðra ráðherra sem voru í þáv. ríkisstjórn fyrir það ef einstakir ráðherrar, eins og þessi ágæti ráðherra, leyndi menn

því hvernig ástandið var raunverulega orðið í ríkisfjármálum. Þetta er hið hroðalega bú sem núv. hæstv. fjmrh. þurfti að taka við af formanni Alþfl.