Óli Þ. Guðbjartsson:
Hæstv. forseti. Þetta mál, sem hér er til umræðu, er mörgum hv. alþm. gamall kunningi, frv. til l. um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Ég hygg að málið sé að verulegu leyti undirbúið á vegum næstseinustu hæstv. ríkisstjórnar þó að það hafi að vísu ekki komið fram fyrr en á vegum þeirrar seinustu í desembermánuði 1987. Eins og fram kom hjá seinasta hv. ræðumanni kom þar að vísu einungis fram hluti þessa máls, þ.e. fyrri hluti af þeim breytingum sem hér er verið að undirbúa.
Nú er málið hins vegar lagt fram öðru sinni og þá fyrst fyrir hv. Ed. í heilu lagi á grundvelli þeirrar vinnu sem tvær nefndir a.m.k. höfðu unnið áður að. Á ýmsa lund hefur nú málið samt sem áður breyst í meðförum eins og gefur að skilja og ég ætla mér ekki þá dul í þessari umræðu að fara yfir þær breytingar allar heldur ætla ég mér að lýsa skoðun minni í fáum orðum sem er nákvæmlega sú sama og þegar þetta mál var til umræðu á seinasta þingi. Í fyrsta lagi er ég í grundvallaratriðum ósammála vinnubrögðum af þessu tagi þar sem um er að ræða að taka nánast fyrirmynd frá því sem er venjulega árlega við afgreiðslu fjárlaga á hverju ári. Þingmenn þekkja allir bandorminn sem þar er um að ræða eða réttara sagt lánsfjárlögin sem tengd eru fjárlagagerðinni. Hér er um að ræða þau vinnubrögð að það er í bandormslíki sem fjöldi lagabálka er sneiðskorinn ef svo má segja. Það er farið inn í þau á hinum ýmsu stöðum og er í sjálfu sér ekkert að furða þó að ýmislegt misjafnt komi út við slík vinnubrögð.
Þetta er það fyrsta sem ég vil taka fram. Ég er ósammála vinnubrögðum af þessu tagi. Ég tel að það sé miklu eðlilegra að taka viðkomandi lög til gagngerðrar endurskoðunar í heild út frá þeirri lagasetningu sem þar er lögð til grundvallar, en ekki uppskurður af því tagi sem hér er um að ræða, enda mun það sjálfsagt koma fram í umfjöllun um tekjustofnana hér rétt á eftir að það kemur ýmislegt skrýtið þar fram.
Við fljótlegan yfirlestur á frv. eins og það liggur núna fyrir sýnist mér að það hafi hrakist að sumu leyti af leið meira að segja frá því það var lagt fram í haust. Ef ég gríp niður í III. kafla er í 4. gr. talað um kostnaðarskiptingu við byggingu og búnað heilsugæslustöðva. Nú er hér lagt til að kostnaðarskiptin séu 85% frá ríki en 15% frá sveitarfélögum eins og gildandi löggjöf er. Í haust var hins vegar lagt til að kostnaðarhlutinn yrði 60:40 og það segir sig sjálft að þarna hefur eitthvað í millitíðinni gerst sem hrakið hefur frá fyrri áformum.
Hér er hins vegar um að ræða mjög veigamikla breytingu þar sem um er að ræða tilhögun í 5. gr. um að rekstrarkostnaður heilsugæslustöðva greiðist 100% úr ríkissjóði. Þetta er mikil breyting.
En lítum þá á hvernig menn ætlast til að hér verði haldið á stjórnarþættinum. Er þá gert ráð fyrir að sá aðili sem borgar hafi að verulegu leyti með stjórnun að gera? Að vísu er sporið stigið að minni hyggju nokkuð í rétta átt í 6. gr. þar sem gert er ráð fyrir að
ráðherrar skipi stjórnir heilsugæslustöðva, einn eftir tilnefningu starfsliðs stöðvarinnar, en þrjá kosna af hlutaðeigandi sveitarstjórnum og einn án tilnefningar. Ég er sammála því spori sem þarna er stigið, en ég tel hins vegar að það sé of skammt vegna þess að ég held að tengslin á milli þeirra aðila sem fara með kostnaðinn og eiga síðan að sjá um reksturinn eigi að vera meiri. Ég tel að þetta sé fráleitt eins og það er, að sá sem fer með 85% hluta af kostnaðinum hafi nánast ekkert með stjórnunina að gera.
Ég ætla ekki að fara mjög náið í margar greinar. Ég ætla hins vegar að geta tveggja annarra atriða sem ég er mjög mótfallinn. Það er annars vegar í VI. kafla frv. og hins vegar í XI. kaflanum. Ef ég fer fáeinum orðum um VI. kaflann finnst mér koma þar nokkuð vel fram gallinn við vinnubrögð af þessu tagi við lagasmíð. Hér segir, með leyfi hæstv. forseta, í 31. gr. í frv. sem er um breytingu á lögum um grunnskóla nr. 63/1974, með síðari breytingum, að 12. gr. þeirra laga eigi að orðast svo:
,,Fræðsluráð fjallar um og fer með sameiginleg málefni sveitarfélaga á sviði fræðslumála í hlutaðeigandi fræðsluumdæmi. Fræðsluráð skal vera fræðslustjóra til ráðuneytis um dagleg störf hans.``
Ég er nú þeirrar skoðunar að þetta sé lagasmíð sem næði aldrei tilgangi og sé bókstaflega óframkvæmanlegt að aðili eins og fræðsluráð geti verið fræðslustjóra til ráðuneytis um dagleg störf hans. Þetta þekkja í rauninni allir sem nálægt þessum málum hafa komið og meta svona grein með sjálfum sér, hugsa ég. Síðan segir:
,,Fræðsluráð getur falið fræðslustjóra að annast framkvæmdastjórn fyrir ráðið. Fræðsluráð hefur samvinnu við skólanefndir og samræmir störf þeirra í umdæminu. Það fer að öðru leyti með þau málefni sem hlutaðeigandi sveitarstjórnir fela þeim eða ákveðin kunna að vera í reglugerðum settum samkvæmt lögum þessum.``
Hér er um fræðsluráðin á allt annan veg gripið á máli en raunveruleikinn er í dag, en löggjöfin er. Mig langar aðeins til þess, með leyfi hæstv. forseta,
að lesa 1. mgr. um fræðsluráð samkvæmt þessari sömu grein í gildandi grunnskólalögum. Þar segir:
,,Fræðsluráð hefur með höndum eftirtalin verkefni:
1. Það fer með stjórn fræðslumála innan umdæmis síns í umboði menntmrn. og sveitarstjórna sem hlut eiga að máli.``
Þarna er reginmunur á. Fræðsluráðin hafa í dag það verkefni í umboði annars vegar ráðuneytisins og hins vegar sveitarstjórnanna sem heildar á viðkomandi svæði að hafa meginumsjón og stjórn þessara mála. Hér, eins og lagt er til í 31. gr. í þessu frv., er gert ráð fyrir að minnka verksvið fræðsluráðanna og þynna þau að verulegu leyti út.
En svo kemur það furðulega fram. Í gær held ég að það hafi verið, þá kom í hólf hv. þm. frá núv. hæstv. menntmrh. frv. til l. um breytingu á þessum sömu lögum sem er að vísu prentað sem handrit. Það er ráðherra í hæstv. ríkisstjórn sem nú situr, samstarfsráðherra hæstv. félmrh. sem flytur þetta frv.,
að vísu var það hæstv. forsrh. sem flutti málið á síðasta þingi. Þá kveður við allt annan tón um nákvæmlega þessa sömu grein. Þá er ekki verið að leggja til að fræðsluráð fjalli um og fari með sameiginleg málefni sveitarfélaga á sviði fræðslumála. Nei, þá er stefnan miklu nær löggjöfinni eins og hún er. Þetta sýnir vinnubrögð af þessu tagi. Þegar svona bandormsfrumvarp er í meðferð sem grípur inn í hin ýmsu lög og lagabálka er ekkert óeðlilegt við að þá komi hnökrar í ljós sem geta verið verulega alvarlegir. Í handriti núv. hæstv. menntmrh. segir um þessa sömu grein:
,,Fræðsluráð markar stefnu um fræðslumál í hlutaðeigandi fræðsluumdæmi í samvinnu við fræðslustjóra. Verkefni þess eru m.a. að sjá um að gerðar séu áætlanir um fræðslumál í umdæminu, fylgjast með framkvæmd skyldunáms í viðkomandi umdæmi og samræma og hafa eftirlit með störfum skólanefnda. Fræðsluráð fer að öðru leyti með þau málefni sem hlutaðeigandi sveitarstjórnir eða menntmrn. fela þeim eða ákveðin verða í reglugerðum settum samkvæmt lögum þessum.``
Þarna er lagt til að málin séu í svipuðum anda og löggjöfin er frá 1974, en eins og hér er lagt til samkvæmt þessu er lagt til að málin fari í allt annan farveg.
Þá kem ég að því atriði þessara mála í 34. gr. sem ég er mest mótfallinn. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta: ,,Gerð skólamannvirkja er undirbúin heima í héraði af sveitarstjórn í samráði við skólanefnd.`` Þessu er ég vitaskuld sammála. En næsta lína er þessi: ,,Stofnkostnaður grunnskóla greiðist af sveitarfélögum.`` Þetta er grundvallaratriðið sem ég er ósammála rétt eins og á síðasta þingi og ég býst við því að búi menn við það kerfi sem hér er í uppsiglingu hvað þennan þátt snertir muni víða hrikta í og þá sérstaklega hjá fámennu sveitarfélögunum og þar muni verða um að ræða spor aftur á bak. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvers vegna það er, en nánast alls staðar þar sem maður grípur niður í þessu kerfi, samvinnu ríkis og sveitarfélaga, að þar sem annar aðilinn fer með málin að öllu leyti, kostnaðinn að öllu leyti, virðist fara illa. Við þekkjum úr umræðum fyrr á þessu þingi að nánast allar stórar húseignir sem eingöngu eru á vegum ríkisins grotna niður. Við þekkjum reynsluna af því þegar viðhald skólahúsnæðis var flutt 100% yfir til sveitarfélaganna. Reynslan af því er mjög slæm. Ég geri mér ekki fulla grein fyrir af hverju það er, en mig grunar að það sé vegna þess að þegar menn eiga hlutdeild í byggingum eða viðhaldi með öðrum, hvort sem það er ríkið eða sveitarfélagið, sé það hvati fyrir hvorn aðila fyrir sig til að láta sinn hlut ekki eftir liggja. Þegar um er að ræða að annar aðilinn hefur verkefnið eingöngu með hendi virðist yfirleitt fara illa.
Ég vil geta þess í framhjáhlaupi varðandi 42. gr. að þar er lagt til að kostnaður við ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu greiðist 100% úr ríkissjóði. Því er ég hjartanlega sammála. Það hefur verið illa haldið á þeim málum í langan tíma og það er vegna þess að
þarna er um ósamræmi að ræða miðað við aðra starfsemi í skólunum.
Þá vildi ég vekja athygli á VII. kafla laganna. Þar er um að ræða breytingu á íþróttalögum nr. 49/1956. Þar sýnist mér vera stigið spor í rétta átt miðað við það sem lagt var til í þessu efni á seinasta þingi og ég fagna því.
63. gr. þessa frv. og raunar allur X. kaflinn fjallar um dagvistarheimili og ég vil leyfa mér að taka undir það sem kom fram hjá seinasta hv. ræðumanni um áhyggjur út af því að það er lagt einungis til að menntmrn. skuli í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga setja reglugerð um almenn ákvæði um húsnæði og búnað dagvistarheimila sem falla undir þessi lög. Það er sjálfsagt að menntmrn. setji ákvæði um húsnæði og búnað. En ég vil taka undir það, sem kom fram hjá seinasta ræðumanni, hv. 12. þm. Reykv., að auðvitað á þessi reglugerð einnig að taka til rekstrar í sömu heimilum. Það er ekki eðlilegt að ráðuneytið sleppi hendinni af jafnveigamiklum þætti og rekstri í yngsta hluta fræðslumálanna ef tekið er tillit til nemendanna.
Þá kem ég að seinni þættinum sem ég vildi leggja þyngsta áherslu á í máli mínu þar sem ég er mjög mótfallinn frv. Það er varðandi XI. kaflann um
breytingu á lögum nr. 75 frá 1985, um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Í 66. gr. segir, með leyfi hæstv. forseta: ,,Stofnkostnaður tónlistarskóla greiðist af stofnendum hans`` og í 67. gr.: ,,Sveitarfélög sem reka tónlistarskóla greiða launakostnað kennara og skólastjóra.``
Eins og þessum málum er háttað í dag er um að ræða helmingaskipti og flestir sem að þessum málum hafa komið eru ánægðir með þá skipan. Af þeirri ástæðu sé ég ekki hvaða nauður rekur til að breyta kerfinu. En ef því er á annað borð breytt fyndist mér að breytingin ætti að ganga í þveröfuga átt, þ.e. að launakostnaður kennara og skólastjóra sem starfa við tónlistarskóla ætti að vera á vegum ríkisins alveg eins og hvarvetna annars staðar í okkar skólakerfi. Ég sé ekki hvaða munur á að vera á því eða hvers vegna það á að setja einmitt þessa skóla, sem eru einna viðkvæmastir í rekstri, í þá óvissu sem hér mundi fylgja.
Ég ætla að segja frá því, hæstv. forseti, að ég mun fara þess á leit fyrir Borgfl. að Borgfl. fái áheyrnarfulltrúa í félmn. þessarar hv. deildar, ekki síst með tilliti til meðferðar þessa máls, og ég býst við því að sá fulltrúi muni leggja til brtt. a.m.k. við tekjustofnaþáttinn í þessu efni.
Að svo mæltu hef ég lokið máli mínu.