Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég get tekið undir það með hæstv. forsrh. og síðasta ræðumanni að umhverfismálin eru eitt alvarlegasta og þýðingarmesta málið sem við stöndum frammi fyrir. En halda menn, hæstv. forsrh., hv. síðasti ræðumaður, halda þeir að þau mál verði leyst með einhverju sérstöku ráðuneyti? Halda menn það?
Meðan ég var fjarverandi var verið að undirbúa þetta mál og við fylgdumst með þeirri umfjöllun sem var undanfari þess frv. sem við erum að ræða um. Auður Eiríksdóttir, sem hér átti sæti í fjarveru minni, leitaði til ýmissa sérfræðinga í sambandi við þetta mál og ritaði hæstv. forsrh. bréf sem ég mun lesa hér upp, með leyfi forseta. Þetta bréf er ritað 16. mars og þar segir að frumdrög að frv. um umhverfismál hafi verið yfirfarin og einnig hafi verið haft samráð við nokkra aðila sem hafa þekkingu á ræktun og umhverfismálum.
Við teljum ekki ástæðu til að stofna sérstakt umhverfisráðuneyti af eftirtöldum ástæðum:
1. Nýtt ráðuneyti eykur miðstýringu í þjóðfélaginu og hleður á sig starfsfólki.
2. Óeðlilegt er að aðskilja í stjórnkerfinu ákvörðunartöku um nýtingu auðlinda og verndun sömu auðlinda. Þetta mundi leiða til togstreitu milli ráðuneyta. Eðlilegast er að eitt og sama ráðuneyti vegi og meti hvort tveggja.
3. Umhverfismálin hér á landi eru önnur en þau sem nágrannalönd okkar eru að kljást við og því er ekki sjálfgefið að skipulag þeirra í umhverfismálum henti okkur. Við viljum hins vegar vekja athygli á eftirtöldum atriðum:
1. Umhverfismálin hérlendis verða ekki leyst á ráðuneytisstigi heldur á stofnunarstigi og hjá einstaklingum.
2. Gera þarf verulegar breytingar á skipulagi og starfsháttum stofnana er tengjast umhverfisvernd, t.d. með breyttu starfslagi Náttúruverndarráðs.
3. Ráðuneytin geta hugsanlega ráðið sér umhverfismálafulltrúa til að sinna umhverfismálum.
4. Færa þarf ákvörðunartöku í umhverfisvernd út til héraðanna með breyttu skipulagi.
5. Efla þarf fræðslu um umhverfismál.
6. Hlúa þarf að starfi almannasamtaka um umhverfisvernd.
Þannig hljóðaði þessi niðurstaða sem sá starfshópur fjallaði um á vegum þeirra samtaka sem ég er hér fulltrúi fyrir.
Nú kom fram í ræðu hæstv. forsrh. að það væri kominn tími til að taka á þessum málum og það mátti skilja það á máli hans að þetta frv. leysti vandann. Ég held að það bréf sem frú Auður Eiríksdóttir skrifaði ráðherra lýsi viðhorfi almennings úti á landi.
Hv. 1. þm. Reykn. las bréf frá heilbrigðisfulltrúum sem voru að þinga hér í Reykjavík, en búnaðarþing, aukaþing, stendur nú yfir í Bændahöllinni. Þeir höfðu tal af mér nokkrir í dag í matartímanum og þeir sögðu: Við höfum ekki heyrt í neinum sem er ekki undrandi á grg. um málið. Og þeir sögðu: Þetta er að
okkar dómi hið versta mál. Hið versta mál. Og hvað eiga þeir við? Það er hér t.d. umfjöllun um 6. gr. en þar stendur m.a., með leyfi forseta:
,,Gróður- og jarðvegseyðing er mesta umhverfismál á Íslandi allt frá landnámi. Ofnýting beitilanda og önnur átroðsla viðkvæmra landsvæða hefur haldið áfram fram á síðustu ár þrátt fyrir stórbætta vísindalega þekkingu. Líkur eru á því að landbætur og landvernd hafi gengið lakara en efni hafa staðið til, m.a. vegna mismunandi hagsmuna og ólíkra markmiða þeirra ráðuneyta og stofnana sem að þessum málaflokki koma. Hér er lagt til að ráðuneyti umhverfismála hagnýti sér ákvæði um skipulagsskyldu landsins alls til að efla stefnumótun í landgræðslu og endurheimt landgæða. Á skipulagsstigi má oft sjá fyrir og leysa árekstra milli ólíkra sjónarmiða og hagsmuna, svo sem mannvirkjagerðar, nýtingar gróðurs og umhverfisverndar.``
Það er víðar í þessari grg. orðalag sem hefur leitt það af sér að fulltrúar á búnaðarþingi eru undrandi, fyrst og fremst yfir grg., og yfir því hvernig að þessum málum er staðið. Hér stendur t.d. þessi setning: ,,Enn fremur má benda á að fyrri frv. endurspegli ekki nægilega að uppblástur og landeyðing hefur verið mesta umhverfisvandamál á Íslandi allt frá landnámi.`` Út úr þessu má lesa að jafnvel eldgos og veðrátta séu af völdum landbúnaðarins á undanförnum árum og öldum. Fulltrúum á búnaðarþingi er ofboðið því að þeir lesa út úr þessari grg. hvert stefnir í þessum málum. Og þeir spyrja: Hvernig stendur á því að geislavarnir eru ekki inni í þessu umhverfismálafrv.? Þeir spyrja: Hvers vegna eru sjávarútvegsmálin, verndun hafsins, ekki í þessu frv.? Og halda menn að t.d. kjarnorkuslysi eða geislamengun verði bjargað með þessu umhverfismálaráðuneyti? --- Ég sé að hv. 2. þm. Austurl. er að hrista höfuðið. Ég er ekki vísindamaður á þessu sviði eins og hann, en ég vil segja það að ég hygg að hann muni heyra það austur á landi að fólk þar er hissa á þessu frv. eins og það er fram sett og ekki síst á grg.
Ég ætla ekki að fullyrða um samþykktir búnaðarþings, hverjar þær verða. Það er verið að fjalla um málið nú. En sú nefnd sem fær þetta mál fær sjálfsagt
þær samþykktir. Og mér er tjáð að búnaðarsamböndin séu að hugleiða fjöldafundi út af þessu máli. Búnaðarþing var áður búið að fjalla um þetta mál og þeir segja, a.m.k. sumir af þeim, að frv. sé öllu lakara en þau drög sem þeir sáu að þessu frv. Um það get ég ekki dæmt, því að þó ég læsi það á spítalanum, þá las ég það ekki það vel að ég geti dæmt um það efni.
En ég skora á hæstv. forsrh. að hugleiða þetta mál vel. Auðvitað viðurkenni ég að ástæðan fyrir því hvernig bændur taka þessu er sú umfjöllun sem hefur verið í þjóðfélaginu um landbúnaðarmál að undanförnu. Þegar slík stjórn, sem er talin stjórn jafnréttis og félagshyggju, leggur fram slíkt frv. alveg í andstöðu við bændastéttina, þá er þeim nóg boðið. Þetta er það sem fyllir mælinn. Og hvers vegna eiga
ekki landshlutarnir, fólkið úti í byggðunum, fulltrúar þeirra, að fjalla um t.d. mál gróðurverndar og landgræðslu? Eru það ekki þeir fyrst og fremst sem fylgjast með ásigkomulagi landsins og þekkja það? Þeir eru tortryggnir út í ýmsa af þeim sem hafa próf upp á einhver vísindi í þessu efni og koma endrum og eins út um land en fylgjast ekki nægilega með áhrifum frá veðráttunni frá einu ári til annars.
Eins og ég hef lesið hér upp þá var það afstaða minna samtaka sem ég er fulltrúi fyrir að þau eru á móti þessu frv. í þeim búningi sem það er, en telja að það sé hægt að taka á þessum málum með öðrum hætti og eru einnig hrædd um það að þetta nýja ráðuneyti verði eins og var í Noregi, það stækkaði og stækkaði og var orðið eitt umfangsmesta ráðuneytið þar á tímabili, en það verði ekki til þess að þessi mál lagist hjá okkur. Það séu aðrar leiðir a.m.k. jafngóðar, þ.e. samstarf ráðuneytanna við fólkið sem býr um landið, og þá á ég aðallega við þann þátt sem snýr að landbúnaði. Aðallega við þann þátt. --- Já, hv. 2. þm. Austurl. hristir höfuðið og í skjóli, eða ég veit ekki hvað á að segja, hann er vísindamaður á þessu sviði. En hver er í raun og veru vísindamaður? Vísindamaður er sá sem hefur þekkingu á þeim málum sem hann fjallar um en ekki á prófum. Það er ekki einhlítt.