Umhverfismál
Þriðjudaginn 18. apríl 1989

     Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Hér er til umræðu frv. til l. um umhverfismál og hefur það mál æði oft komið hér til umræðu í hv. deild á undanförnum árum með einum eða öðrum hætti. Það er augljóst að stofnun umhverfismálaráðuneytis verður samþykkt í framtíð og má reikna með að menn geri það, enda er þessi málaflokkur sá sem hlýtur hvað mesta umfjöllun nú þessa dagana í öllum heiminum. Hér er því mál sem tekur til allra. Fólk almennt hefur mikinn áhuga á þessum málum, hvort sem um er að ræða mengun eða gróðurvernd eða vernd náttúru. Það er ekki nokkur vafi á því að um þetta verður að fjalla af ýtrustu nákvæmni og ekki má gleyma neinum þætti.
    Þeir hv. þm. sem hér hafa talað hafa fjallað mjög ítarlega um þetta og komið inn á marga mjög áhugaverða þætti í þessu sambandi, bæði hv. 1. þm. Reykn. og hv. 2. þm. Austurl., með þeim hætti að það er auðséð að þeir hafa kynnt sér þessi mál mjög náið, og ég tel að margt af því sem þeir sögðu þurfi nánari umfjöllun.
    Ég vil ræða um það atriði að þessi mikli málaflokkur skuli hér vera lagður fram en það vantar sárlega einn þátt í þetta frv. Það er kostnaðaráætlun. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt þegar svona viðamikill lagabálkur er lagður fram er lýtur að svo umfangsmiklum viðfangsefnum eins og hér eru talin upp, þeir mörgu lagabálkar, sem eru að vísu ekki allir í gildi, sem hér koma fram. Það hlýtur að vera mjög brýnt að lögð sé fram nákvæm kostnaðaráætlun um hvað það kostar að setja á laggirnar umhverfismálaráðuneyti og hvað áætlað er að það muni vaxa í framtíðinni því ef maður les efni þessa frv. sem er þó ekki mikið að vöxtum, þá er alveg ljóst að það mun kosta verulegar upphæðir. Og áður en kostnaðaráætlun verður gerð tel ég að það sé ekki tímabært að afgreiða málið. Í öðru lagi verður að hafa það í huga að það tæki þá ekki gildi fyrr en í fyrsta lagi um næstu áramót og verði þá tekið inn á fjárlög sem kostnaðarliður. Það hlýtur að teljast mjög mikilvægt að við getum afgreitt lög hér með áætlunum um hvað þau kosta og hvað það muni þýða fyrir fjárhag ríkisins að láta slíkt frv. fá lagagildi.
    Ég get hins vegar sagt að auðvitað er mjög brýnt að þessi málaflokkur fái þá umfjöllun hér á þinginu sem nauðsyn er og þá verði litið til þeirra mörgu þátta sem í honun felast og litið til þess hvort ekki er hægt að sameinast um að afgreiða hér lög sem við gætum sameinast um að ættu að falla undir þennan málaflokk.
    Ég vil benda á það að til eru ýmsir sáttmálar, sem við höfum að vísu ekki gerst aðilar að enn, en fjalla um þessa málaflokka, sem hafa verið samþykktir bæði hjá Evrópuráðinu og fleiri samtökum og væri nauðsynlegt að skoða þá, bæði hvað varðar verndun dýrategunda t.d. og ýmsa þætti sem snúa að þessum lögum. Það er líka ljóst að þessi málaflokkur kemur inn á ýmis verksvið sem áður hafa heyrt undir önnur ráðuneyti og það hefur verið andstaða gegn því hjá mörgum þeim aðilum sem málið snertir. Um það skal

ekki fjallað hér eða fullyrt á þessu stigi hvort það er rétt eða rangt. Hins vegar verður að líta til þess þegar slíkt mál er afgreitt hvort það er til bóta eða ekki til bóta.
    Þá eru líka nýjungar í þessu frv. Það er verið að setja kostnað yfir á aðila með þeim hætti sem ráðuneytið ákveður. T.d. segir í 10. gr.: ,,Könnun skal kostuð af framkvæmdaraðila, nema ráðuneytið ákveði annað.`` Og í 11. gr. segir: ,,Á sama hátt fer um annan iðnrekstur.`` Þetta eru allt ákvæði sem krefjast nákvæmrar íhugunar og menn verða að meta hvort eiga að standa í lögum með þessum hætti.
    Ég vil líka benda á að í 18. gr. er ráðuneytinu falið það vald að leggja á dagsektir, allt að 50.000 kr. á dag og láta vinna verk á kostnað aðila, ef ekki er sinnt fyrirmælum þess. Ég tel að þetta eigi ekki að heyra undir ráðuneytið með þessum hætti heldur eigi að fela það dómstólum að kveða upp úr um það hvort að aðilum ber skylda til að sinna þessum lögum eða ekki.
    Ég vil síðan stuttlega benda á það að Heilbrigðisfulltrúafélag Íslands hefur gert samþykkt um frv. og í bréfi til þingflokks frjálslyndra hægrimanna sem er dagsett í gær, segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Á aðalfundi Heilbrigðisfulltrúafélags Íslands sem haldinn var 15. apríl sl. var rætt um frv. til laga um umhverfismál sem nýlega hefur verið lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988--1989. Heilbr.- og trmrh., hr. Guðmundur Bjarnason, flutti erindi á fundinum og kynnti hann þar m.a. frv. Að loknum ítarlegum umræðum og umfjöllun um efni frv., þar sem kom fram að fundarmenn teldu ekki ráðlegt að skipta núverandi starfsemi Hollustuverndar ríkisins milli tveggja ráðuneyta og óttuðust að nægilegs samhengis yrði ekki gætt í umhverfiseftirliti, var eftirfarandi samþykkt gerð:
    ,,Aðalfundur Heilbrigðisfulltrúafélags Íslands, haldinn 15. apríl 1989, gerir eftirfarandi ályktun til Alþingis:
    Fundurinn fagnar hugmyndum um samræmingu stjórnar umhverfismála, en varar við afgreiðslu frv. að lögum um umhverfismál á svo skömmum tíma sem er til þingloka. Nauðsynlegt er að aðrar lagabreytingar sem lúta að umhverfiseftirliti haldist í hendur við slíkar breytingar og jafntengdir
málaflokkar og heilbrigðiseftirlit, umhverfiseftirlit og mengunarvarnaeftirlit séu undir yfirstjórn eins ráðuneytis.````
    Undir þetta skrifar Guðmundur H. Einarsson formaður.
    Ég vil taka undir það sem stendur hér. Það er auðvitað mjög nauðsynlegt að ekki sé afgreitt hér svo viðamikið frv. án þess að slíkar breytingar séu tengdar öðrum þáttum sem lúta að þessu og eru ekki allir reifaðir hér. Því væri nauðsynlegt að málið væri miklu ítarlegar unnið.
    Ég vil einnig benda á það að þetta frv. er þannig úr garði gert að það þyrfti að koma töluvert nákvæmar fram í því um ýmsa þætti. Ég tel líka að

á skaðabótaákvæði og dagsektaákvæði og önnur slík ákvæði í frv. þyrfti að líta nánar áður en þau eru afgreidd hér sem lög frá hinu háa Alþingi.
    Ég held að allir séu sammála um það út af fyrir sig að umhverfismál eru mjög nauðsynleg, en það verður auðvitað að fara saman að samræmd niðurstaða sé í þessu og ég vil benda á það að þetta frv. nær því tæpast. Hins vegar það svo að það þarf að liggja fyrir mjög nákvæm áætlun um kostnað við slíka málaflokka. Og ég hef hugmynd um það að frv., því að ég hef lauslega farið yfir það, muni kannski kosta 200 millj. eða jafnvel 300 millj. á ári, lágmark. Hér liggur ekki fyrir neitt um það mannahald sem þarf til að framkvæma þessi lög. Hér liggur ekki fyrir neitt um rekstur sem þyrfti að vera með, rannsóknarstofum og ýmsu fleiri. Það liggur ekki fyrir nein kostnaðaráætlun um rekstur þessa ráðuneytis og um fræðslustarfsemi sem hér er gert ráð fyrir og það liggur ekki fyrir nein kostnaðaráætlun um eftirlit og viðurlög sem þó jaðra við að vera ólögleg í þessu frv.
    Ég tel því mjög nauðsynlegt að sú nefnd sem fær þetta til umfjöllunar fari mjög ítarlega yfir frv., kanni einstaka þætti þess og leggi fram kostnaðaráætlun. Það verði lögð fram kostnaðaráætlun um hvað það kostar árið 1990, árið 1991 o.s.frv., þannig að við sjáum hvað við erum að samþykkja. Það er kominn tími til að Alþingi og alþm. standi þannig að gerð laga og frumvarpa héðan að ekki sé verið að samþykkja hér viðamikil frv. sem kosta geysilega mikið án þess að fyrir liggi nákvæm kostnaðaráætlun og ítarleg dagsetning á því hvernig það muni eiga sér stað.
    Að öðru leyti get ég sagt að í meginefni er ég auðvitað samþykkur því að þessi málaflokkur verði tekinn undir sérstakt ráðuneyti. Frv. sem liggur hér fyrir með þessu, um breytingu á Stjórnarráði Íslands, er síðan annar hluti þess sem má ræða um því að þar eru breytingar sem varða allt aðra hluti og mun ég ræða það þegar það frv. kemur hér til umræðu, en ég vil ítreka það að þetta frv. verður að fá mjög ítarlega umfjöllun og leita verður umsagna miklu fleiri aðila en hefur verið gert áður. Þá verði kannað, eins og hér hefur reyndar verið reifað af hv. 2. þm. Austurl., t.d. með alþjóðasamninga sem utanrrn. hefur með að gera, framkvæmd þeirra og með hvaða hætti við stöndum að því að þeir séu teknir hér í notkun.