Flm. (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að leggja hér fram frv. til laga um breytingu á lögum um lyfjadreifingu. Þetta er 379. mál þessa þings. Þar segir:
,,1. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna orðist svo:
Lyfsöluleyfi má veita einstaklingum, samvinnufélögum, bæjar- og sveitarfélögum sem standa að rekstri heilsugæslustöðvar og Háskóla Íslands samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.``
Hér er lögð til talsverð breyting eða að frá núgildandi lögum sé réttur samvinnufélaga aukinn, en í núgildandi lögum segir:
,,Samvinnufélög þau er öðlast hafa leyfi til að reka lyfjabúð fyrir gildistöku laga þessara halda leyfi sínu áfram.``
Þar var réttur þeirra mjög takmarkaður við þetta verkefni. Ég tel óréttlátt að gera upp á milli rekstrarforma. Ég tel að félög fólksins hafi ekki reynst verr í atvinnurekstri en einstaklingsfyrirtækin.
Þar sem nú er komið fram frv. um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þar sem lagt er til að rekstrarkostnaður heilsugæslustöðva greiðist úr ríkissjóði mætti jafnvel hugsa sér að það gæti verið ríkið sem eins ræki þessar lyfjaverslanir.
Með þessu frv. er lagt til að réttur samvinnufélaga til að reka lyfjabúðir verði efldur. Enn fremur er lagt til að bæjar- og sveitarfélög öðlist rétt til að reka lyfjabúðir. Með þessari breytingu flyst lyfjasala úr höndum lækna og hlýtur það að vera æskilegt eigi fullkominn trúnaður að ríkja. En svo mun allvíða vera háttað að þeir hafa með höndum rekstur lyfjabúða.
Lyfjasala er yfirleitt hagstæð rekstrareining. Smásöluálagning á lyfjum er há og rekstur lyfjabúða einfaldari í sniðum en áður var þar sem lyfjagerð fer þar ekki fram nema í mjög litlum mæli, aðeins 2% af heildarsölu lyfjabúða eru nú framleidd í lyfjabúðinni. Stærstur hluti lyfja er nú keyptur í lyfjabúðirnar frá heildsölu í stöðluðum formum og umbúðum sem ekki má rjúfa.
Ég vil hér máli mínu til stuðnings vitna í grein um heilbrigðismál eftir Ólaf Ólafsson landlækni sem birtist í fyrra í ritinu Sveitarstjórnarmálum. Þar segir, með leyfi forseta:
,,Í heilbrigðiskerfinu hefur þróun kostnaðar orðið sú, að nær enginn getur greitt þjónustuna að fullu, t.d. er kostnaður við einfaldan botnlangaskurð yfir 100 þús. kr. Þar af leiðandi greiðir ríkið mestalla þjónustuna. Á sömu leið er þessu farið í lyfjamálum. Lyfin eru orðin það dýr, að fæstir hafa efni á að greiða að fullu fyrir lyfjameðferð við smávægilegum kvillum, enda greiðir ríkið langt yfir 90% af lyfjakostnaði einstaklinga.
Með hliðsjón af þessari þróun, þ.e. að ríkið greiðir meira en *y9/10*y af kostnaðinum, liggur beinast við, að opinberir aðilar eigi og reki lyfjabúðirnar. Þar eð hagnaður af lyfsölu er góður, ýtir það á, að lyfsalan verði hluti af heilsugæslunni. Í héraði með 1000 manna byggð, þar sem lyfsalan er rekin af sveitarstjórn (heilsugæslu) dugar hagnaður af sölunni til þess að greiða hlut sveitarfélagsins í rekstri
heilsugæslunnar, þ.e. laun ritara, afgreiðslustúlku í lyfjabúð, hreingerningu og allar rekstrarvörur.
Svipuð tillaga sem þessi hefur áður litið dagsins ljós. A.m.k. einu sinni strandaði framkvæmdin á, að ríkið var ekki í stakk búið til þess að kaupa lyfjabúðirnar. Nú er það tillaga mín, að sveitarfélögum verði veitt heimild til þess að kaupa lyfjabúðir. Breytingin verði í áföngum, og þess vegna verður kostnaði dreift. Sveitarfélög eru ekki síður í stakk búin til þess að standa að fjármögnun og lántöku við yfirtöku lyfjabúða en einstaklingar. Með ákvæði um faglegt eftirlit lyfjafræðinga með allri lyfjaafgreiðslu er séð fyrir því, að gæði lyfjaþjónustunnar séu tryggð. Því er lagt til:
1. Að lögum um lyfjadreifingu verði breytt á þann veg, að sveitarfélög eigi forgangsrétt á því að kaupa og reka lyfsölu eftir því sem lyfsöluleyfin renna út.
2. Að lyfsala verði undir faglegri stjórn lyfjafræðinga. Við minni lyfjabúðir skal heimilt að ráða lyfjafræðing sem ráðgefandi eftirlitsaðila.
3. Að lyfjagerð verði aðeins leyfð í þeim lyfjabúðum og útibúum, sem lyfjafræðingar stjórna.
4. Að sala vissra vandmeðfarinna lyfja verði einungis heimil í lyfjabúðum, þar sem fastráðnir lyfjafræðingar starfa.``
Það er enginn vafi á því að víða er hagnaðurinn mikill af rekstri lyfjabúða og því ekki óeðlilegt, miðað við það sem ég hef hér sagt, að hagnaður af þessum rekstri renni til þjónustu við fólkið og komi því til góða. Því hef ég flutt þetta frv. og vænti þess að það fái hér þinglega meðferð og að að þessari umræðu lokinni verði málinu vísað til heilbr.- og trn. Nd.