Flm. (Kristín Halldórsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir 416. máli þessa löggjafarþings um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 80/1987. Það er á þskj. 776 og meðflytjendur eru hv. þingkonur Málmfríður Sigurðardóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir og Kristín Einarsdóttir. Frv. er í þremur greinum sem hljóða svo, með leyfi forseta:
,,1. gr. 1. gr. laganna orðast svo:
Kosningarrétt við kosningar til Alþingis eiga allir sem:
1. eru 18 ára eða eldri þegar kosning fer fram,
2. eiga íslenskan ríkisborgararétt og
3. eiga eða hafa átt lögheimili hér á landi.
2. gr. 2. tölul. 15. gr. orðast svo:
Þá sem uppfylla skilyrði 1. og 2. tölul. 1. gr. og eiga ekki lögheimili hér á landi en hafa átt það, sbr. 3. tölul. 1. gr. Skulu þeir færðir á kjörskrá þar sem þeir áttu síðast heimilisfesti samkvæmt þjóðskrá. Séu liðin meira en átta ár frá því íslenskur ríkisborgari átti lögheimili hér á landi, talið frá 1. des. næstum fyrir kjördag, skal hann sækja sérstaklega um að vera færður á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann átti síðast lögheimili áður en hann fór af landi brott. Slíka umsókn skal endurnýja á átta ára fresti ef lögheimili er áfram erlendis. Sótt skal um á eyðublaði, útgefnu af Hagstofu Íslands, sem fáanlegt skal vera hjá Hagstofunni og erlendis á skrifstofum sendiráða Íslands, fastanefnda, sendiræðisskrifstofum og skrifstofum kjörræðismanna.
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.``
Virðulegi forseti. Rétturinn til að kjósa fulltrúa á Alþingi og í sveitarstjórnum heyrir til almennum mannréttindum í lýðræðisþjóðfélagi. Þann rétt ber stjórnvöldum að tryggja öllum þjóðfélagsþegnum með sem allra minnstum takmörkunum. Kosningarrétturinn hér á landi er samkvæmt núgildandi lögum bundinn við 18 ára aldur, íslenskan ríkisborgararétt og lögheimili hérlendis eða hafa átt það á síðustu fjórum árum, talið frá 1. des. næstum fyrir kjördag.
Þessi tímamörk koma nokkuð misjafnt niður á Íslendingum búsettum erlendis þar sem misjafnlega hart er gengið eftir því að menn skrái lögheimili eftir því hvaða lönd eiga í hlut. Milli Norðurlandanna er þetta allt í föstum skorðum meðan fólk kemst upp með meiri losarabrag vegna dvalar í ýmsum öðrum löndum og með það eru landar okkar á Norðurlöndunum að vonum heldur óhressir. Svo er heldur ekki alveg sama hvað menn eru að bardúsa þar ytra því að námsmönnum líðst að dveljast þar lengur en fjögur ár án þess að missa kosningarrétt hér heima og er sú túlkun nokkuð frjálsleg og rúm, sem er reyndar mjög gott, enda er oft erfitt að gera greinarmun á eiginlegu skólanámi og verklegu námi.
Fyrir alþingiskosningarnar 1987 héldu námsmannafélög og Íslendingafélög á Norðurlöndunum fundi í Osló, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Gautaborg og buðu fulltrúum allra framboða að kynna þar stefnu sína og fræðast um þau mál sem Íslendingum á erlendri grundu liggja þyngst á hjarta.
Þetta var ákaflega fróðleg og skemmtileg ferð og margt sem bar á góma. Eitt af því var kosningarréttur Íslendinga erlendis og var auðfundið að flestum var verulega annt um þennan rétt og þótti hart að missa hann eftir aðeins fjögurra ára búsetu erlendis. Sumir virtust líta á þessa takmörkun sem ákveðna höfnun að heiman og það er hún að vissu leyti. Þetta ákvæði svo og misjafnar reglur og formsatriði eftir löndum valda og viðhalda mismunun sem er afleit að mati flytjenda þessa frv.
Til þess að hreyfa þessu máli bar sú sem hér stendur fram fsp. til dómsmrh. á síðasta þingi um afleiðingar þessa ákvæðis og um hvort uppi væru áform um að bæta stöðu Íslendinga búsettra erlendis hvað þetta varðar. Í umræðum á Alþingi um þessa fsp., en afrit af þeim er birt sem fskj. með þessu frv., kom fram áhugi margra þingmanna og þáv. dómsmrh. til þess að gera þær breytingar á kosningalögunum sem tryggðu betur rétt Íslendinga erlendis til að greiða atkvæði við alþingiskosningar. Síðan hefur hins vegar ekkert komið fram sem staðfestir vilja framkvæmdarvaldsins í því efni og eru það vissulega vonbrigði eftir viðbrögðin í fyrrnefndum umræðum.
Kvennalistakonur hafa því lagt fram þetta frv. hér á Alþingi um það að fella þessi tímamörk um lögheimili alveg niður eins og fram kemur í 1. gr., en eina breytingin sem fram kemur í 1. gr. frv. er við 3. tölul. greinarinnar og felur í sér að íslenskir ríkisborgarar, 18 ára og eldri, sem búsettir eru erlendis og eiga ekki lögheimili hérlendis öðlast nú kosningarrétt hafi þeir átt lögheimili á Íslandi áður en þeir fóru af landi brott.
Um 2. gr. er það að segja að hún skýrir sig náttúrlega að flestu leyti sjálf, en í 15. gr. kosningalaganna, sem þarna er gerð tillaga um breytingu á, er fjallað um það hvar og hvernig kjósendur skuli færðir á kjörskrá og í 2. tölul. þeirrar greinar er fjallað um þá sem ekki eiga lögheimili hér á landi. Þó að í 1. gr. þessa frv. sé lagt til að lögheimili erlendis takmarki ekki kosningarrétt íslenskra ríkisborgara þykir þó rétt að gera mönnum skylt að
staðfesta þann rétt með vissu millibili til þess að kjörskráin verði sem áreiðanlegust. Í þessari grein er lagt til að það sé gert á átta ára fresti.
3. gr. þarfnast ekki skýringar þar sem hún fjallar aðeins um gildistöku frv.
Virðulegi forseti. Kosningalögunum var síðast breytt árið 1987, en þau hafa nú um nokkurt skeið verið til umfjöllunar í sérstakri stjórnarskrárnefnd og sér engan veginn fyrir endann á því starfi enn þá. Kosningar geta orðið fyrirvaralítið eins og við þekkjum og er hart til þess að vita ef löggjafinn hefur þá ekki rétt hlut íslenskra ríkisborgara á erlendri grundu. Það er að okkar mati óþarfi, að ekki sé meira sagt, að refsa þeim fyrir búsetu erlendis, enda er staðreyndin sú að flestir flytja aftur heim til Íslands með dýrmæta reynslu og þekkingu sem nýtist ekki aðeins þeim sjálfum heldur einnig landi og þjóð.
Nú er vissulega ekki aðeins orðið áliðið á nóttu
heldur áliðið þings en vel mætti þó afgreiða þetta frv. ef áhugi og vilji væri fyrir hendi. Nútímafólki finnst kosningarrétturinn jafnsjálfsagður og andrúmsloftið sem við teygum að okkur. Þess er þó hollt að minnast að ekki eru mörg ár liðin síðan þessi sjálfsagði réttur var eingöngu bundinn við kyn og ákveðna stöðu í þjóðfélaginu. Það var þannig ekki fyrr en árið 1920, eða fyrir tæpum mannsaldri, að konur fengu loks fullgildan kosningarrétt á við karla. Því hafa konur ekki gleymt og munu ekki gleyma og e.t.v. þess vegna skilja þær mætavel réttmæta ósk Íslendinga búsettra erlendis um að fá að varðveita kosningarréttinn hérlendis svo lengi sem þeir eru íslenskir ríkisborgarar.
Virðulegi forseti. Að lokinni umræðu um þetta frv. legg ég til að því verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.