Frsm. allshn. (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Eins og ég gat um við 2. umr. málsins leggur allshn. nú fram brtt. á þskj. 896 um að við 1. gr. frv. verði bætt þremur nýjum nöfnum. Það er í fyrsta lagi Óli Anton Bieltvedt, framkvæmdastjóri í Reykjavík, í öðru lagi Steven John Rodgers, iðnaðarmaður í Reykjavík, og í þriðja lagi Ahn-Dao Tran, kennari í Reykjavík.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þessari breytingu.