Frsm. samgn. (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Ég er ekki hissa á því þó að menn hafi áhyggjur af svona máli, enda full ástæða til þess. En hafi ég skilið þetta rétt er það mál sem við erum að tala um núna, 4. gr., einvörðungu komin hér í frumvarpsformi vegna þess að skipið er eldra en 12 ára. Heimildir til skipa sem eru yngri virðast vera fyrir hendi það ég best veit og eins og ég kynnti málið. Ef þetta skip hefði verið yngra en 12 ára hefði ekkert frv. þurft að koma fram um þetta. Þetta hefði trúlega verið gert án þess að Alþingi hefði haft hugmynd um það. Þetta er samningur sem er gildandi og a.m.k. ekki það ég viti til að ég hafi haft áhrif á hann að einu eða neinu leyti en trúlega aðrir sem eru búnir að vera lengur á þingi.
Ég ítreka að minn skilningur er sá að hér er einvörðungu um að ræða verksmiðjuskip. Ég hlýt að líta svo á að ef aðrir nefndarmenn ekki andmæla því sé nefndin um það sammála og ég treysti því að það verði tekið tillit til ákvarðana nefnda hér á Alþingi eins og þær leggja málin fyrir hverju sinni. Ef það verður annað um að ræða segi ég a.m.k. fyrir mig: Þá mun ég ekki bera ábyrgð á slíku.