Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég vil aðeins fagna því hve hv. iðnn. þessarar deildar hefur afgreitt þetta mál fljótt og vel og kynnt sér málið rækilega svo sem fram kom í máli frsm. og formanns nefndarinnar, hv. 9. þm. Reykn. Hér er vissulega um merkilegt mál að ræða. Hér er um að ræða fyrirtæki sem á sínum tíma var mjög umdeilt, svo umdeilt að nafnkunnir menn gerðu sér sérstaka ferð á hendur til að reisa níðstöng á þeim stað þar sem þessi verksmiðja er nú risin og skapar mikil verðmæti og malar gull. En sem betur fer eru allar deilur löngu hjaðnaðar um þetta fyrirtæki og það tjón og þann skaða sem það ætti að valda. Þarna eru mengunarvarnir til mikillar fyrirmyndar, þarna er aðbúnaður starfsfólks með ágætum. Þetta fyrirtæki er þannig úr garði gert að það fellur vel að landinu, stingur ekki í augu, og þarna ríkir sömuleiðis hið ágætasta andrúmsloft milli starfsmanna og stjórnenda þannig að ég hygg að óvenjulegt sé og til mikillar fyrirmyndar. Þetta er vinnustaður sem gaman er að heimsækja.
Með þessu frv. er opnuð leið til að nota hluta af þeim arði sem í okkar hlut kemur af þessu fyrirtæki eða þann arð sem í okkar hlut kemur. Forustumenn þessa fyrirtækis hafa haft mörg spjót úti í þeim efnum og kannað margar leiðir og eru með margar nýjungar í sínum fórum og á könnunar- og athugunarstigi. Þeir hafa þar sýnt athyglisvert og áhugavert frumkvæði á ýmsum sviðum þannig að öðrum mætti verða til eftirbreytni.
En það sem ég hygg þó að hér skipti mestu máli er það að hér er opnuð leið til að nýta þann arð sem þetta fyrirtæki skilar, sem þessi góðu árin vissulega er mjög mikill á íslenskum mælikvarða, til að nýta hann okkur til hagsbóta og þá vil ég segja: ekki síst því svæði og því héraði til hagsbóta og framfara í ýmsum efnum þar sem þessi verksmiðja er staðsett.
Ég vona, herra forseti, að þetta mál fái hinn greiðasta gang í gegnum þingið.