Frsm. allshn. (Jón Helgason):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til l. um breytingu á lögum um vöruhappdrætti fyrir Samband ísl. berklasjúklinga frá allshn.
    Sambandi ísl. berklasjúklinga var heimilað að stofnsetja og reka vöruhappdrætti með lögum frá Alþingi árið 1949. Síðan hefur sú heimild verið tvívegis framlengd um tíu ára skeið og nú er í fjórða sinn lagt fram slíkt frv. á Alþingi sem felur í sér að Samband ísl. berklasjúklinga fái að reka þetta happdrætti til ársloka ársins 1999.
    Allshn. er sammála um að mæla með afgreiðslu frv. eins og það hefur verið lagt fram.