Náttúruvernd
Þriðjudaginn 18. apríl 1989

     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum um náttúruvernd. Hér er um að ræða fremur einfalt mál sem gerir ráð fyrir því að inn í náttúruverndarlögin verði skotið ákvæðum um landverði til þess að unnt verði að setja síðan reglugerð um starfssvið þeirra, skyldur og meginverkefni.
    Landverðir hafa unnið á vegum Náttúruverndarráðs í um það bil 15 ár. Hlutverk þeirra hefur stöðugt verið að vaxa eftir því sem ferðamannastraumur til landsins hefur aukist og þeirri þróun, stórfelldri fjölgun ferðamanna til landsins, hefur Náttúruverndarráð reynt að mæta fyrir sitt leyti með ráðningu landvarða á ýmsa helstu ferðamannastaði.
    Landverðir starfa nú á vegum Náttúruverndarráðs á allmörgum svæðum, þjóðgörðunum í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum, við Mývatn, í Herðubreiðarlindum, Öskju, Landmannalaugum, Hvannalindum, Dyrhólaey, á Hveravöllum og á Hornströndum. Á sumum landsvæðum hafa landverðir fast aðsetur yfir sumartímann en á öðrum ekki, t.d. á Hornströndum. Landverðir hafa verið sérstaklega þjálfaðir af Náttúruverndarráði, en á vegum ráðsins hafa verið haldin viðamikil námskeið fyrir verðandi landverði sem lokið hefur með prófi.
    Náttúruverndarráð og Landvarðafélag Íslands hafa á undanförnum árum lagt á það ríka áherslu að kveðið verði á um starfsmenntun og starfssvið landvarða í reglugerð. Í núgildandi lögum um náttúruvernd er hins vegar ekki kveðið á um störf landvarða og þar af leiðandi ekki unnt að setja starfssviði þeirra mörk með reglugerð.
    Í frv. því sem hér er lagt fram er gerð tillaga um svipaða skipun varðandi landverði og nú gildir um leiðsögumenn, sbr. lög nr. 60/1976, um skipulag ferðamála. Verður ekki séð að nein rök séu fyrir því að gerðar séu minni kröfur til starfshæfis og menntunar landvarða en gerðar eru til leiðsögumanna í þeim efnum þótt kröfur til landvarða verði að hluta til aðrar eðli málsins samkvæmt.
    Ég vænti þess, herra forseti, að þetta frv. fái skjóta meðferð hér á þinginu og verði að lögum í vor þannig að unnt verði hið allra fyrsta að setja þær reglugerðir sem Náttúruverndarráð leggur áherslu á og Landvarðafélagið einnig í þessum efnum. Það skiptir okkur Íslendinga miklu máli að hér sé vel á málum haldið. Starf landvarða er gríðarlega mikilvægt í allri okkar viðleitni til að vernda og gæta náttúru landsins. Ekki síður er það og mikilvægur starfi að leiðbeina fólki um dýrmætustu náttúruperlurnar og gera almenningi kleift að njóta þeirra.
    Að lokinni þessari umræðu legg ég svo til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.