Sjúkraliðar
Þriðjudaginn 18. apríl 1989

     Frsm. heilbr.- og trn. (Guðrún Helgadóttir):
    Hæstv. forseti. Ég vil upplýsa það að ég er ekki starfsstúlka hér í stofnuninni og boða ekki fundi í nefndum. Sem formaður nefndarinnar læt ég boða til nefndarfunda og ég hélt að það lægi alveg ljóst fyrir hverjir ættu að verða boðaðir í hvert skipti og ekki þyrfti margsinnis að ítreka það. Mér þykir það afar leitt ef það hefur farið svo að hv. 18. þm. Reykv. hefur ekki verið boðaður til funda en ég mun framvegis sýnist mér verða að ganga á eftir því í hvert skipti að svo sé.
    Hins vegar vil ég taka fram að ég er búin að hafa samband við þessi stéttarfélög og niðurstaðan varð sú að því yrði ekki mótmælt, satt að segja eru sjúkraliðar harla ánægðir með þessa niðurstöðu, hjúkrunarfræðingar e.t.v. ekki eins ánægðir, en svona eins og maður gæti orðað það, höfðu ekki við það athugasemd þó að málið færi svona til hv. Nd. á ný. Því held ég að það sé ástæðulaust að hv. þm. fari fram á frestun á þessu máli. Við skulum ekki gleyma því að málið á eftir að fara í hv. Ed. og þar hafa auðvitað báðir aðilar alla möguleika á að koma til nefndarinnar til viðræðna þannig að ég mundi nú vilja fara fram á það til að flýta fyrir gangi málsins að um það yrðu greidd atkvæði í dag og því hleypt upp til hv. Ed.
    Fyrir liggur gífurlegt efni sem hefur borist út af þessu máli og það er auðvitað sjálfsagt að láta það fylgja málinu til Ed. Ég sé ekki að það verði málinu til framdráttar að stranda hér. Það er þá eðlilegra að það strandi í síðari deild ef það stendur til að stöðva málið sem ég held satt best að segja, eftir viðræður mínar við þessa tvo formenn, Kristínu Á. Guðmundsdóttur og formann Hjúkrunarfélagsins, að ekki sé ástæða til. Þetta vildi ég sagt hafa.
    En ég vil ítreka að ég harma það að hv. þm. skyldi ekki vera boðaður til fundar en ég skal reyna að stimpla það inn í vitund þeirra sem til nefndarfunda boða að það beri að boða hv. þm. til funda.