Hlutafélag um Sementsverksmiðju ríkisins
Þriðjudaginn 18. apríl 1989

     Flm. (Friðrik Sophusson):
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir að taka þátt í þessari umræðu. Það er hins vegar athyglivert að ekki taka til máls fulltrúar þeirra stjórnarflokka sem lagt hafa stein í götu þessa frv. sem hæstv. ráðherra ætlaði að flytja sem stjfrv. á yfirstandandi þingi.
    Ég get ekki fallist á að sú sérstaða Sementsverksmiðjunnar að njóta fjarlægðarverndar sé svo mikil að hún réttlæti að menn geri mun á henni annars vegar og ríkisprentsmiðjunni Gutenberg hins vegar. Staðreyndin er sú að innflutningur á sementi er frjáls. Það eru íslenskir umboðsmenn sem hafa umboð fyrir sement sem framleitt er í nágrannaríkjunum og þeir sem byggja hús og önnur mannvirki hér á landi geta flutt inn sement ef þeim sýnist.
    Rekstur verksmiðjunnar hefur hins vegar verið ágætur og leitt til þess að hún hefur talsverða yfirburði og nánast er eingöngu notað sement frá Sementsverksmiðjunni eins og margoft hefur komið fram í þessum umræðum.
    Ég fagna því að hæstv. ráðherra telur ástæðu til þess að málið fari til nefndar og fáist sent þar til umsagnar og fái síðan eðlilega þingmeðferð. Ég ítreka enn á ný að enn er tími til þess fyrir Alþfl., þingmenn hans, og aðra þingmenn ríkisstjórnarinnar hæstv. sem eru hlynntir þessu máli að koma málinu áfram og þá á grundvelli nefndarstarfsins.
    Ég er sammála hæstv. ráðherra um hlutabréfamarkaðinn, að honum þarf að koma á. Ég hef hins vegar saknað þeirrar vinnu sem hefði þurft að fara fram miklu ákveðnar en gert hefur verið og þá einkum í ráðuneytum hæstv. ráðherra. Hann fjallaði hér um skattmeðferð hlutafjár. Ég minni á að í nótt voru umræður um þau mál án þess að nokkur hæstv. ráðherra væri við til að taka þátt í þeim umræðum þar sem ítarlega var fjallað um hlutabréfamálefni, þar sem rætt var um mál sem eru 321. og 322. mál þingsins og fjalla um skattmeðferð á grundvelli laga nr. 9 frá 1985 um frádrátt frá tekjuskatti og tekjum þegar um er að ræða kaup á hlutabréfum. Þar komu fram ýmis þau rök sem mæla með breytingum á skattmeðferð hlutabréfa til þess að ýta undir eftirspurnaráhrifin á hlutabréfamarkaðnum. Margt fleira þarf til að koma. Ég minni á að hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson hefur flutt frv. sem gerir ráð fyrir því að stimpilgjöld af skráðum hlutabréfum verði lækkað úr 2% í *y1/2*y%, en það er alveg í samræmi við þau sjónarmið sem koma fram í skýrslu Enskilda Securities sem minnst hefur verið á í þessari umræðu. Það er þess vegna áhugi ekki bara í einum heldur tveimur, þremur og jafnvel fjórum stjórnmálaflokkum á því að örva hér viðskipti á hlutabréfamarkaði og fullur skilningur á að slíkt getur leitt til þess að auka eigið fjármagn í fyrirtækjum, en það er auðvitað ein stærstu rökin fyrir því að örva hér hlutabréfaviðskipti.
    Það frv. sem við erum að ræða í dag er dæmi um hvernig hægt er að taka opinbert fyrirtæki, ríkisfyrirtæki, ákveða að breyta því í hlutafélagsform og síðar með samþykki Alþingis að selja bréfin smám

saman á hlutabréfamarkaðinum.
    Ég sakna þess, virðulegur forseti, að enginn úr þeim flokkum sem stöðvað hafa framgöngu þessa máls skuli taka til máls við þessa umræðu og lít á það sem rökþrot af þeirra hálfu.
    Þá vil ég í lokin taka undir með hæstv. ráðherra að full ástæða var til að setja lög um verðbréfaviðskipti hér á landi. Þau lög hafa nú verið sett og mikil og víðtæk samstaða tókst um það mál. Hæstv. ráðherra hefur nú lýst því yfir að í framhaldi af þessu verði hægt að vinna að virkari hlutabréfamarkaði hérlendis. Ég minni hæstv. ráðherra á það að hann lýsti því fyrr í umræðum á yfirstandandi þingi að hann teldi að samþykkt frv. um verðbréfaviðskipti væri einnig forsenda þess að leyfa mætti kaup á verðbréfum erlendis og sagðist hann þá mundu beita sér fyrir breytingum á þeim leikreglum sem gilda um þau verðbréfakaup.
    Nú hefur hæstv. ráðherra hér á vordögum tækifæri til að staðfesta t.d. í þessari umræðu eða einhvern næstu daga hvernig og hvort hann hyggst standa við sín fyrri ummæli.
    Virðulegur forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð öllu fleiri. Ég skil hæstv. ráðherra svo að hann og hans flokkur séu sammála efnisatriðunum í þessu frv. Ég skil hann svo að hann sé stuðningsmaður þess að þess verði freistað í nefndarstörfum að ná frv. fram og ég vænti þess að hæstv. ráðherra beiti sér fyrir því að frv. nái fram að ganga, enda eru mörg fordæmi fyrir því að frv. stjórnarandstöðuþingmanna hafi náð fram að ganga með atbeina ríkisstjórnarflokka. Mér finnst þá full ástæða til þess að á það sé reynt hvort Alþfl. sé í handjárnum Alþb. og framsóknar í þessu máli, ekki síst með tilliti til þess að ekki einn einasti maður úr þeirra röðum hefur haft kjark eða þor til að lýsa skoðunum sínum við þessa umræðu málsins.