Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að leyfa Köfunarstöðinni hf., Dýpkunarfélaginu hf., Slysavarnafélagi Íslands og Íslenska úthafsútgerðarfélaginu hf. innflutning á skipum. Svo háttar til að skv. 25. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 51/1987 er óheimilt að flytja inn til landsins skip sem eldri eru en tólf ára. Alls engin undanþáguheimild er í þessum lögum frá ákvæðinu og þarfnast innflutningur skipa eldri en tólf ára og skráning þeirra hér á landi því sérstakrar lagaheimildar. Hennar er verið að leita með frv. þessu.
Í 1.--4. gr. laganna eru þeim aðilum sem upp eru taldir í fyrirsögn frv. heimilaður innflutningur á mismunandi sérhæfðum skipum, þ.e. Köfunarstöðinni hf. innflutningur á flotpramma, Dýpkunarfélaginu innflutningur á dýpkunarpramma, Slysavarnafélagi Íslands innflutningur á sérhæfðu björgunarskipi og Íslenska úthafsútgerðarfélaginu er í 4. gr. heimilaður innflutningur og/eða skráning á sérhæfðum verksmiðjumóðurskipum eða fiskiskipum til veiða í erlendri lögsögu.
Í því sambandi er rétt að vekja athygli á 3. mgr. 4. gr., en þar segir að skipum sem skráð verða samkvæmt heimild í 1. og 2. mgr. sé óheimilt að stunda fiskveiðar eða vinnslu sjávarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu.
Hér er á ferðinni skráning skipa til að nýta samning okkar Íslendinga við Bandaríkjamenn um fiskveiði- og fiskvinnsluheimildir í bandarískri fiskveiðilögsögu.
Öll þessi tilvik eru sérstaks eðlis og þykir því réttlætanlegt að leita lagaheimildar til undanþágu frá annars þeim ágætu lögum, sem allir eru sammála um að halda í heiðri, að heimila ekki innflutning skipa til landsins eldri en tólf ára. Óþarft er að taka fram að forsenda þess að af skráningu skipanna geti orðið á Íslandi er að þau fullnægi að öllu leyti íslenskum öryggiskröfum og mun Siglingamálastofnun ríkisins sjá um að svo verði áður en skipin fást skráð á Íslandi.
Rétt er að geta þess að samgn. hv. Ed. hefur þegar afgreitt frv. hingað samhljóða.
Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. samgn.