Aðalnámsskrá fyrir grunnskóla
Föstudaginn 21. apríl 1989

     Birgir Ísl. Gunnarsson:
    Hæstv. forseti. Það er nú liðið að lokum þessarar umræðu, enda hefur hún staðið í bráðum tvo og hálfan klukkutíma. Hún hefur verið fróðleg og ánægjuleg og í sjálfu sér ekki mjög mörg atriði sem ég þarf að taka fram nú að lokum.
    Hv. 13. þm. Reykv., hæstv. forseti Sþ., og hæstv. menntmrh. töluðu bæði um það að ekki væri við hæfi að nota í umræðu eins og þessari orð eins og vinstri sjónarmið eða grillur eða vinstri menn í skólastarfi og hv. 13. þm. Reykv. sagði að hér væri um að ræða gamaldags og úrelt sjónarmið. Ég fagna sérstaklega þessari yfirlýsingu bæði hæstv. forseta og hæstv. menntmrh. vegna þess að ég er henni alveg sammála. En ég fagna henni sérstaklega frá fulltrúum þess flokks sem hafa einmitt beitt sér fyrir sjónarmiðum af þessu tagi, en baráttumenn þeirra sjónarmiða hafa sjálfir stimplað sig sem róttæka skólamenn. Þess vegna fagna ég því að umræðan sé komin á að stig að þeir sem dýpst hugsa um þessi mál af hálfu stjórnmálamanna séu farnir að sjá að þetta er úrelt sjónarmið og gamaldags.
    Við skulum taka dæmi. Ég minntist á í minni ræðu svokallað samfélagsfræðiverkefni sem hér var mjög í tísku upp úr árunum 1970 og hefur verið jafnvel allt fram á þennan dag, þar sem ákveðið var að samþætta allmargar námsgreinar, þ.e. sögu, átthagafræði, landafræði og félagsfræði og samkvæmt þeirri samþættingu var ekkert til sem hét Íslandssaga og ekkert til sem hét íslensk landafræði. Þetta átti allt að samþætta eftir ákveðnum tískustefnum sem uppi voru. Það gekk meira að segja svo langt að það var heill árgangur sem komst upp í gegnum grunnskólann sem lærði ekkert í landafræði annað en mjög ítarlega um Tansaníu að mig minnir. Það stóð þannig á að menn töldu að nóg væri að læra ítarlega landafræði um eitthvert eitt land og síðan væri hægt að yfirfæra þann skilning yfir á önnur lönd og einhvern veginn stóð þannig á að það var Tansanía sem varð fyrir valinu það árið og heill árgangur fór upp án þess að læra annað í landafræði.
    Þetta er auðvitað ýkt mynd en þegar farið var að finna að þessu og þegar menn brugðust til varnar, áhugamenn um skólamál, þá áttu þessar kenningar og þessar hugmyndir sér fyrst og fremst skjól í Þjóðviljanum. Menn sem gengu fram undir nafni Alþb., menn sem gengu fram undir því nafni að þeir væru róttækir skólamenn, vildu koma á breytingum og byltingum á skólakerfinu áttu sér þarna skjól. Það er ekki nema örstutt síðan að þessi umræða komst raunverulega á það stig sem hún er núna, að menn eru fallnir frá þessu að meira eða minna leyti. Þess vegna fagna ég því sérstaklega að báðir þessir hv. ræðumenn telja að hér sé um úrelt sjónarmið að ræða og gamaldags, að þeir sem gengu fram undir merkjum róttækni hafi ekki haft erindi sem erfiði og sjónarmið þeirra eigi ekki lengur upp á pallborðið.
    Þess vegna tel ég einmitt að þessi, ja, viðhorfsbreyting getum við sagt fólks í Alþb. hafi gert það að verkum að það var hægt að ná jafnvíðtækri

samstöðu um aðalnámsskrá grunnskóla eins og raun ber vitni um. Ég fellst að vísu ekki á þá skoðun hæstv. ráðherra að ég hafi hér verið sérstaklega að leita eftir ágreiningi um þetta mál eða um þau drög sem hér liggja fyrir.
    Ég kom fram með athugasemdir um nokkur atriði. Sumum af þeim svaraði hæstv. ráðherra. Ég geri mér auðvitað fullkomlega grein fyrir því að í umræðu eins og þessari er ekki hægt að ætlast til þess að hann svari öllum spurningum eða athugasemdum sem fram koma um jafnítarlegt og faglegt plagg og hér er á ferðinni. Ég set þetta þó fyrst og fremst fram til þess að hann hugleiði það betur, hann skoði þau atriði sérstaklega sem ég gerði að umtalsefni. Ég vil ítreka eitt atriði sem hann gerði ekki að umtalsefni í sinni seinni ræðu og það er atriðið um óhlutdræga umfjöllun í skólanum sem er fellt út í þessu plaggi en ég held að sé afar mikilvægt, að þjóðfélagið, foreldrar geti treyst því að grunnskólinn endurómi ekki einstök dægurmál í þjóðfélaginu og menn megi treysta því að fullkomin óhlutdrægni ríki í grunnskólunum og að ekki megi beita nemendum í deilum er snerta starf eða starfslið skóla. Ég segi þetta t.d. að gefnu tilefni varðandi Ölduselsskóla. Ég ætla ekki að fara að rifja það mál upp hér, en ég hef séð skrifuð gögn og skýrslur sem benda til þess að óhlutdræg umfjöllun um þá deilu sem þar fór fram hafi alls ekki átt sér stað, a.m.k. hjá hluta af kennaraliði skólans. Nemendur hafi verið beittir þar ákveðnum þrýstingi. Þetta finnst mér mjög mikilvægt að fram komi í aðalnámsskrá og ég bið hæstv. ráðherra um að hugleiða það atriði sérstaklega.
    Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. Ég skal fyllilega taka undir það sem hæstv. ráðherra sagði að það er æskilegt að sem víðtækust samstaða náist í þjóðfélaginu öllu og meðal stjórnmálamanna um atriði eins og aðalnámsskrá grunnskóla og ég heiti hæstv. ráðherra mínum stuðningi í því að þessi námsskrá, sem nú kemur út fljótlega, hljóti þann sess í þjóðfélaginu sem henni ber.