Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Aðeins út af þeirri athugasemd hjá hv. þm. sem kom þarna fram að lokum sem ég heyrði nú ekki í hans fyrri ræðu varðandi óhlutdrægni í umfjöllun, þá vil ég láta það koma fram að eitt af því sem ég óskaði eftir við skólaþróunardeildina var að það yrði tekið inn í kaflann um skólastarfið sjálft áhersla á það að nemendur m.a. og skólastarf þurfi ekki að líða fyrir átök sem kunna að verða í skólunum á hverjum tíma. Þá var ég að tala af fenginni reynslu bæði vegna átaka í einstökum skólum og átaka sem hafa orðið og geta alltaf orðið, m.a. á vinnumarkaði. Ég tel því að þessi ábending hv. þm. sé góð og gild og henni hafi raunar þegar verið haldið til haga þó ég hafi ekki náð henni þannig að ég gat ekki svarað henni í fyrri svarræðu minni hér áðan.
Hv. þm. vék aðeins að almennum viðhorfum í þessu efni varðandi aðalnámsskrá grunnskóla. Ég get út af fyrir sig sagt það fyrir mig að það kemur iðulega fyrir að ég kýs að endurmeta mín viðhorf í ýmsum efnum. Ég hef ekki öðlast hinn endanlega sannleika eða réttu trú frekar en aðrir og ef hv. þm. telur að ég hafi skipt um skoðun á einhverjum sviðum, þá getur vel verið að svo sé. Það sem ég átti nú hins vegar við í fyrri svarræðu minni hér áðan var ósköp einfaldlega það að ég var að hvetja til þess að við reyndum í umræðu um þessi mál að skyggnast víðar og gæta þess að detta ekki ofan í gamlar skotgrafir sem eru nú óðum að lokast víða að mér sýnist.