Lengd skólaárs og samfelldur skóladagur
Mánudaginn 24. apríl 1989

     Frsm. félmn. (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 907 um till. til þál. um lengd skólaárs og samfelldan skóladag frá félmn.
    Nefndin hefur rætt tillöguna á mörgum fundum og sendi hana til umsagnar. Svör bárust frá eftirtöldum: Fjárlaga- og hagsýslustofnun, fræðslustjóra Austurlandsumdæmis, fræðslustjóra Vesturlandsumdæmis og fræðsluskrifstofu Suðurlands. Fræðslustjórar taka undir þær hugmyndir sem fram komu í tillögunni.
    Leitað var upplýsinga í menntmrn. um vinnu í ráðuneytinu að þeim málum sem tillagan fjallar um. Sem svar barst nefndinni skýrsla sem bar heitið ,,Lenging skóladags og einsetinn grunnskóli``, unnin af vinnuhópi sem menntmrh. skipaði, útgefin í mars 1989. Þar koma fram margháttaðar upplýsingar um stöðu þessara mála og að áformað sé að skipa nefnd til að fjalla um leiðir til að koma á samfelldum skóladegi.
    Einnig barst nefndinni handrit að frv. til l. um breytingu á lögum um grunnskóla þar sem m.a. er gert ráð fyrir að skólahúsnæði skuli miða við einsetinn skóla, þ.e. 22. gr., og að reglulegur starfstími grunnskóla skuli vera níu mánuðir á hverju skólaári sem meginregla.
    Í ljósi þessa og í trausti þess að áfram verði unnið af atorku að því að koma á samfelldum skóladegi og eðlilegum starfstíma skóla á ári hverju mælir nefndin með því að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Þetta er gert á Alþingi 19. apríl 1989, undirritað af öllum fulltrúum í félmn.